Fréttablaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 24
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit­ stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Með 20 mínútna vikulegri ástundun tekst meðlimum OsteoStrong að auka styrk sinn og jafnvægi hraðar en annars staðar án þess að finna fyrir harðsperrum eða öðrum fylgifiskum. Meðlimir auka styrk vöðva, beina, sina og liðbanda umtalsvert, auk þess að losa sig við verki. Sérhæfð tæki bjóða meðlimum að nýta vöðva í hámarks aflstöðu. Sumarið er tíminn til að prófa eitthvað nýtt „Sumrin eru svo spennandi og sumarið í ár er þar alls engin undantekning. Það eru allir svo spenntir að takast á við spenn- andi verkefni úti við, hvort sem það er að klífa fjall, hjóla, spila golf, synda í sjónum eða gera fínt í garðinum. Við vitum hins vegar að það getur verið erfitt að komast almennilega af stað ef fólk finnur mikið fyrir átökunum í kroppnum daginn eftir. Þar getur OsteoStrong hjálpað verulega til. Við viljum endilega styrkja fólk í því að njóta íslenska sumarsins sem best. Það langar engan að vera bundinn inni á sumrin og því er heppilegt að heimsókn í OsteoStrong tekur í heildina um 20 mínútur einu sinni í viku og þá fær fólk enn meira út úr útiverunni og hreyfingunni,“ segir Svanlaug Jóhannsdóttir, annar eigandi OsteoStrong. Hún bætir við: „Við leggjum áherslu á gott viðmót og notalegt umhverfi og erum svo stolt þegar við heyrum það út undan okkur að það hafi tekist.“ Flestir geta nýtt sér það sem OsteoStrong býður upp á, fólk á öllum aldri, óháð líkamlegri getu. Meðlimir geta átt von á að: n Auka styrk n Minnka verki í baki og liðamótum n Minnka líkur á álagsmeiðslum n Bæta líkamsstöðu n Auka jafnvægi n Lækka langtíma blóðsykur n Auka beinþéttni n 73% sterkari á ári „Enginn annar möguleiki sem við þekkjum býður upp á svona mikla styrkingu á jafn stuttum æfinga- tíma,“ segir Örn Helgason, eigin- maður Svanlaugar og meðeiganda OsteoStrong. Athuganir á árangri meðlima sýna að þeir eru að meðal- tali að styrkja sig um 73% á ári. Betra jafnvægi „Fólk sér fyrst mun á jafnvæginu. Eftir aðeins fimm skipti er fólk að meðaltali búið að bæta það um 77%. Fyrir suma þýðir það að þeir eru betri í golfi, eða stöðugri í fjall- göngu. Fyrir aðra þýðir þetta að þeir geta sleppt göngugrindinni, eða átt auðveldara með að ganga,“ segir Örn. 5.000 meðlimir „Um 5.000 manns eru og hafa verið meðlimir hjá OsteoStrong. Í hverri viku sækja um 350 manns stöðina í Hátúni og um 280 stöðina í Ögur- hvarfi. Við heyrum afrekssögur á hverjum degi. Okkur fannst best að láta fólkið okkar tala fyrir sig, sögur af auknum lífsgæðum eru frábær ástæða til að mæta í vinnuna á morgnana,“ segir Svan- laug. Frír prufutími „Við bjóðum upp á fría prufutíma fyrir alla. Þetta er ný hugmynd og það er gaman að geta sýnt fólki hvað við gerum. Flestir koma til okkar með margar spurningar en fara frá okkur spenntir, glaðir og með skýra sýn á það hvernig OsteoStrong getur hjálpað þeim,“ segir Örn. Ástundun OsteoStrong skilar miklum árangri með auðveldri ástundun. n Stöðvar OsteoStrong eru í Hátúni 12, 105 Reykjavík og í Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi. Frían prufutíma má bóka á www.osteostrong.is og í síma 419 9200. Með Osteo­ Strong ástund­ un bætir fólk styrk sinn og þol. Æfingarnar taka einungis 20 mínútur í hvert skipti. Þjálfarar leiðbeina fólki og passa upp á að æfingarnar séu rétt gerðar. Æfingarnar taka skjótan tíma en gefa mikinn árangur. Óstöðvandi í brekkunum „Í Covid hafði ég minnkað þá hreyfingu sem ég stundaði og ekki verið í jóga. Ég þurfti því að styrkja mig. Í dag er ég mun betri. Þegar ég byrjaði í jóganu aftur fann ég að ég var jafnvel enn sterkari en ég var áður en ég hætti. Ég var óstöðvandi þegar ég fór á fjöll og fann lítið fyrir brekk­ unum. Núna geysist ég upp brekkurnar eins og hind! Ég mæli með OsteoStrong til að styrkja líkamann og það besta er að það styrkir líka beinin og mótar líkamann. Svo er yndislegt og faglegt starfsfólk.“ Guðrún J. Kristjánsdóttir Allar hreyfingar betri „Ég var alltaf með mikla liðverki. Eftir tvö skipti hjá OsteoStrong þá fann ég hvað þeir minnkuðu mikið. Allar hreyfingar líkamans urðu betri, mér leið vel og hlakkaði alltaf til að mæta í tíma. Ég átti ekki von á þeim árangri sem ég náði, OsteoStrong er alveg magnað.“ Þórdís Guðmundsdóttir Ganga úti í náttúrunni „Þegar ég hóf ástundun hjá OsteoStrong var ég mjög slæm í hnjá­ liðum og baki. Fljótlega fann ég að verkirnir minnkuðu mikið. Það var mikil og mikilvæg breyting fyrir mig. Ég fór að geta hreyft mig mikið meira og ganga úti í náttúrunni. Heilsan varð öll önnur og miklu betri. OsteoStrong er frábær staður og starfsfólkið mjög gott.“ Valgerður Skúladóttir Betri í hnjánum „Ég var með verki í hnjánum og jafnvægið var mjög lélegt. Ég stundaði OsteoStrong í þrjá mánuði. Á þeim tíma minnkuðu verkirnir hægt og rólega og jafnvægið varð miklu betra. Ég fann fyrir meiri styrk og auknu úthaldi. OsteoStrong er frábær leið til að bæta heilsuna.“ Helga Stefanía Magnúsdóttir Algert frelsi „Þegar ég hóf ástundun hjá OsteoStrong var ég með verk sem leiddi frá baki niður í hné. Ég var viss um að það væri einhver taugaklemma. Ég hafði farið til heimilislæknis og sjúkraþjálfara en það breytti engu. Mér til mikillar undrunar hvarf verkurinn eftir nokkur skipti. Ég var sterkari og með meira jafnvægi. Frábært að losna loksins við þennan verk. OsteoStrong fyrir mér er algert frelsi og svarið sem ég þurfti.“ Inga Hersteinsdóttir Komst loksins á hestbak „Það háði mér að vera með mikinn svima og lítið jafnvægi. Eftir þrjá tíma hjá OsteoStrong var jafnvægið orðið margfalt betra og sviminn nánast horfinn. Ég varð stöðugri og öruggari með mig. Loksins gat ég farið út að hjóla og á hestbak sem ég gat ekki áður. OsteoStrong er ótrúleg lausn fyrir mig.“ Íris Hall 2 kynningarblað A L LT 25. júní 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.