Fréttablaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 72
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is
PRentun Torg ehf.
dReifing Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Tobbu
Marinós
n Bakþankar
Það er vont hvað fólk hræðist sorg.
Það er engu líkara en sá sem syrgir
sé sýktur og því beri að forðast
náið samneyti. Því jú vissulega er
vont að sjá fólk þjást og það veldur
því að áhorfandanum líður illa.
Skilaboðin virðast því vera að
best sé að forða sér í matvöru-
verslun þegar sorgin svífur fram
hjá í næsta rekka.
Þetta er að vissu leyti skiljanlegt
en um leið óþolandi roluháttur
sem við höfum allt of mörg gerst
sek um.
Að taka á sig rögg, hversu
óþægilegt sem það er, staldra við,
ákveða að vera vel gerð manneskja
og ganga yfir götuna eða í næsta
rekka, horfa í augu vinar eða vin-
konu, sem er að upplifa helvíti á
jörð, og segja ég samhryggist þér,
er líklega eitt það manneskju-
legasta sem við getum boðið upp á
í samskiptum.
Þessi orðaskipti taka sekúndur,
eða mínútur og þú munt aldrei sjá
eftir því, öfugt við það að stinga
höfðinu ofan í símann í röðinni í
búðinni til að forðast augnsam-
band.
Og já, kannski fer viðkomandi
að gráta og það er óþægilegt fyrir
þig – en þetta snýst ekki um þig.
Þetta snýst um að vera mann-
eskja með hjarta.
Vera manneskja sem börnin
manns geta lært af.
Ekki hlaupast undan.
Því það er vont að vera einn og
sorgmæddur.
Já, og vinsamlegast ekki spyrja
aðstandendur hvort að sá sem
hefur nýlega misst einhvern
nákominn, maka eða barn, sé að
„hressast“.
Sorg er ekki flensa.
Hún er helvíti sem enginn hress-
ist af heldur lærir að lifa með.
Og lífið er síðra. n
Sorg
Öll losun
stränglega
bönnuð.
Öll losun
stränglega
bönnuð.
VEITINGASTAÐURINN
Nú á matseðli ̵
gríptu tækifærið
Verslun opin 11-20 – IKEA.is – Veitingasvið opið 10:30-20
TILBOÐ
1.195,- 1.195,-
Kóresk nautaloka
með hvítkálssalati,
chili-majó og frönskum
Kalkúnaleggur
með maís, kartöflum
og sveppasósu
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
Nellika
Blómapottur
er seldur sér
1.290,-
Opið allan
sólar-
hringinn
alla daga
í Mjódd og
á Granda