Fréttablaðið - 25.06.2022, Side 72

Fréttablaðið - 25.06.2022, Side 72
frettabladid.is 550 5000 RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is PRentun Torg ehf. dReifing Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Tobbu Marinós n Bakþankar Það er vont hvað fólk hræðist sorg. Það er engu líkara en sá sem syrgir sé sýktur og því beri að forðast náið samneyti. Því jú vissulega er vont að sjá fólk þjást og það veldur því að áhorfandanum líður illa. Skilaboðin virðast því vera að best sé að forða sér í matvöru- verslun þegar sorgin svífur fram hjá í næsta rekka. Þetta er að vissu leyti skiljanlegt en um leið óþolandi roluháttur sem við höfum allt of mörg gerst sek um. Að taka á sig rögg, hversu óþægilegt sem það er, staldra við, ákveða að vera vel gerð manneskja og ganga yfir götuna eða í næsta rekka, horfa í augu vinar eða vin- konu, sem er að upplifa helvíti á jörð, og segja ég samhryggist þér, er líklega eitt það manneskju- legasta sem við getum boðið upp á í samskiptum. Þessi orðaskipti taka sekúndur, eða mínútur og þú munt aldrei sjá eftir því, öfugt við það að stinga höfðinu ofan í símann í röðinni í búðinni til að forðast augnsam- band. Og já, kannski fer viðkomandi að gráta og það er óþægilegt fyrir þig – en þetta snýst ekki um þig. Þetta snýst um að vera mann- eskja með hjarta. Vera manneskja sem börnin manns geta lært af. Ekki hlaupast undan. Því það er vont að vera einn og sorgmæddur. Já, og vinsamlegast ekki spyrja aðstandendur hvort að sá sem hefur nýlega misst einhvern nákominn, maka eða barn, sé að „hressast“. Sorg er ekki flensa. Hún er helvíti sem enginn hress- ist af heldur lærir að lifa með. Og lífið er síðra. n Sorg Öll losun stränglega bönnuð. Öll losun stränglega bönnuð. VEITINGASTAÐURINN Nú á matseðli ̵ gríptu tækifærið Verslun opin 11-20 – IKEA.is – Veitingasvið opið 10:30-20 TILBOÐ 1.195,- 1.195,- Kóresk nautaloka með hvítkálssalati, chili-majó og frönskum Kalkúnaleggur með maís, kartöflum og sveppasósu TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ Nellika Blómapottur er seldur sér 1.290,- Opið allan sólar- hringinn alla daga í Mjódd og á Granda

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.