Fréttablaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 35
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar óskar eftir öflugum og drífandi leiðtoga til að leiða skrifstofu öldrunarmála. Við leitum að einstaklingi sem hefur jákvætt og lausnamiðað hugarfar, þrífst á krefjandi verkefnum og hefur metnað til að veita framúrskarandi þjónustu. Málaflokkar sem skrifstofa öldrunarmála ber ábyrgð á eru m.a. heimahjúkrun, heimaþjónusta, hjúkrunarheimili, þjónustuíbúðir, heimsending matar og félagsstarf. Skrifstofustjóri situr í framkvæmdastjórn velferðarsviðs og heyrir starfið undir sviðsstjóra. Hann ber ábyrgð á að leiða faglegt starf og að þróun þjónustu sé í takt við þarfir notenda. Hann hefur yfirumsjón með verkefnum skrifstofunnar og stýrir forgangsröðun þeirra. Auk þessa leiðir hann samningagerð við Sjúkratryggingar vegna heimahjúkrunar og samstarf við hagaðila sem koma að öldrunarmálum. Umsækjendur verða metnir út frá grunnkröfum varðandi menntun, hæfni og reynslu. Umsækjendur eru beðnir um að sýna fram á í kynningarbréfi og ferilskrá hvernig þeir uppfylla hverja hæfniskröfu. Þeir umsækjendur sem uppfylla best allar hæfniskröfur og sýna fram á það með skýrum hætti í umsókn sinni verða boðaðir í viðtal. Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og nýsamþykkta velferðarstefnu er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veitir María Jonný Sæmundsdóttir mannauðsráðgjafi á mariajonny@reykjavik.is eða í síma 411-9000. Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí 2022. Sótt er um á vef Reykjavíkurborgar: https://reykjavik.is/storf Leiðtogi öldrunarmála í Reykjavík Hefur frumkvæði að þróun og nýbreytni í öldrunarmálum og tryggir að stefnumarkandi ákvörðunum sé hrint í framkvæmd. Stýrir faglegu starfi og daglegum rekstri skrifstofunnar ásamt samstarfi og samráði við aðrar þjónustueiningar sviðsins, stofnanir og samstarfsaðila innan og utan borgar. Leiðir samstarf við ríkisstofnanir, s.s. Sjúkratryggingar og heilbrigðisráðuneytið, meðal annars vegna samninga um heimahjúkrun. Hefur umsjón með og ber ábyrgð á samþættingu félagslegrar heimaþjónustu og heimahjúkrunar í samstarfi við framkvæmdastjóra hvers þjónustusvæðis. Ber ábyrgð á almennri upplýsingamiðlun, meðal annars til hagsmunaaðila og fjölmiðla, um þjónustu og starfsemi öldrunarmála á vegum velferðarsviðs. Tekur þátt í undirbúningi funda velferðarráðs og situr fundi velferðarráðs og öldungaráðs. Helstu verkefni og ábyrgð Háskólamenntun á sviði félags- eða heilbrigðisvísinda. Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi. Farsæl reynsla af stjórnun og uppbyggingu liðsheildar, stjórnun krefjandi verkefna og umbótavinnu. Yfirgripsmikil þekking á öldrunarmálum og / eða velferðarþjónustu. Reynsla og þekking af rekstri og opinberri stjórnsýslu. Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt og lausnamiðað viðhorf. Hæfni til að sýna forystu, staðfestu og sannfæringarkraft. Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar. Hæfniskröfur www.reykjavik.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.