Fréttablaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 20
enda nýbúin að byggja hús í Vestmannaeyjum en afi hvatti okkur til að flytja. Faðir hans hafði drukknað og langamma var þá ein eftir með sex börn og þurfti að setja afa minn í fóstur sex ára gamlan þar sem hann upplifði þrældóm. Hann vildi ekki að við værum í slíkri hættu og hvatti því foreldra mína til að selja húsið og f lytja í bæinn. Mamma hágrét og vildi vera áfram í Vestmannaeyjum og ég man eftir að hafa sagt við hana huggandi: „Þegar við verðum stærri geturðu farið aftur til Vestmannaeyja. Svo þegar kom að því vildi hún þó bara vera áfram.“ Þekktu varla fjölskyldur sínar Júlía og bróðir hennar fóru því heim til fjölskyldunnar eftir skóla en hún minnist þess að börn utan af landi hafi heimsótt frændfólk um helgar. „Ég hef spurt fólk hvernig því leið á heimavistinni og því fannst gott að geta tjáð sig þar með tákn­ máli en auðvitað var þetta líka mjög sorglegt. Þau jafnvel þekktu varla fjölskyldu sína. Fjölskyldu­ meðlimir kunnu ekki táknmál og því var erfitt að eiga samskipti og börnin þekktu ekki hina og þessa ættingja. Ég var því mjög heppin að geta alltaf farið heim en það var þó ýmis þekking sem maður fær frá fjölskyldunni sem ég missti ég af, ég vissi hvað amma og afi hétu en ekki margir aðrir í stórfjölskyldunni.“ Júlía segir samskiptin við foreldra sína hafa verið einföld. „Þetta voru engar djúpar samræður heldur ein­ faldar skipanir eins og: Komdu að borða, farðu að sofa og þar fram eftir götunum.“ Táknmál varð opinbert mál Júlía hefur verið ötul baráttukona fyrir viðurkenningu íslenska tákn­ málsins sem sjálfstæðs tungumáls. Árið 2011 var það fært í lög að opin­ ber tungumál á Íslandi skyldu vera íslenska og íslenskt táknmál. „Það þurfti mikla baráttu til að fá þetta í gegn og var mikil viðurkenning, en við erum í raun svolítið vonsvikin yfir hversu lítið gerðist. Ekkert fjármagn fylgdi lögunum og enn er aðgengi okkar að samfélaginu hindrað.“ Nýverið skilaði Júlía meistararit­ gerð við Háskóla Íslands og ber rit­ gerðin titilinn: Baráttusaga íslenska táknmálsins: Ástæður og áhrif laga­ legrar viðurkenningar. Ritgerðinni skilaði Júlía á myndbandsformi á táknmáli og er það í annað sinn í sögu skólans sem ritgerð er skilað á þann hátt. Í ritgerðinni fer Júlía ofan í sög­ una og áhrif hennar eins og titillinn ber með sér, og segist hún hafa séð fyrir sér ákveðinn þríhyrning. „Menningin, tungumálið og sjálfsmyndin, þetta er eins og þrí­ hyrningur. Ef maður hefur ekki málið, getur sjálfsmyndin ekki verið góð. Þetta er samofið. Málið er svo stór hluti af stolti manns og sjálfs­ mynd – það að geta sagt brandara og tjáð sig óheft. Allt þetta mótar menningu manns.“ Júlía segist mjög þakklát háskól­ anum þar sem hún fékk góða þjón­ ustu. „Ég óskaði eftir táknmálstúlki en líka að fá glósur. Það er erfitt að fylgjast með túlknum og glósa, ég þarf að horfa á túlkinn og ef ég lít niður missi ég af einhverju. Svo háskólinn borgaði laun fyrir mann­ eskju sem glósaði fyrir mig og sendi mér undir lok dags.“ Mikilvægt að fá táknmál strax Júlía segir mikilvægt að gefa heyrn­ arlausu barni strax mál á meðan málstöðvarnar eru móttækilegar. „Við sjáum það bara að þessi radd­ málsstefna virkar ekki en tvítyngi er frábært,“ segir Júlía sem sjálf er tvítyngd, hún talar táknmál og skrifar og les íslensku auk þess að geta myndað raddhljóð. „Það er mjög mikilvægt að heyrn­ arlaust barn fái táknmál strax, hvort sem það notar heyrnartæki eða er með kuðungsígræðslu, enda heyra engir tveir heyrnarskertir nákvæm­ lega eins. Það er mikilvægt að nota allar leiðir til tjáningar. Slíkur tví­ tyngdur einstaklingur getur orðið mjög sterkur námslega enda styðja málin hvert annað. Ef barn fær ekki mál á fyrstu þremur árunum hefur það mjög mikil áhrif á hæfni þess til að læra. Við erum mörg heyrnar­ laus sem erum ekkert mjög góð að lesa eða mjög góð í íslensku, enda fengum við ekki þennan grunn þegar við vorum yngri.“ Málstöðvar á sama stað Viðhorfin gagnvart táknmáli eru þó misjöfn og segist Júlía skilja það að einhverju marki. „Það er auð­ vitað áfall að eignast heyrnarlaust barn og að barnið læri jafnframt tungumál sem þú ekki skilur. Ég skil mjög vel að heyrandi foreldrar vilji bara bara að barn þeirra læri að tala íslensku. En við vitum að vits­ munaþroskann þarf að örva strax og að málstöðvarnar fyrir táknmál og raddmál eru á sama stað í heil­ anum.“ Júlía segir að fyrir árið 1880 hafi heyrnarlausir almennt verið vel menntaðir og skrifandi enda tví­ tyngi þeirra samþykkt. Eftir að raddmálsstefnan með tilheyrandi táknmálsbanni hafi dreifst um heiminn upp úr árinu 1880 hafi heyrnarlausir einangrast og mennt­ un þeirra farið niður á við. „Það var svo William Stokoe, prófessor í málvísindum, við Gall­ audet­háskólann í Bandaríkjunum, háskóla fyrir heyrnarlausa, sem var fenginn árið 1960 til að gera táknmálsorðabók. Hann fann þá sannanir fyrir því að táknmál væri fullgilt mál. Hann fór að flytja fyrirlestra og smám saman dreifð­ ist fræðslan um heiminn og kom um 1980 til Norðurlandanna. Árið 1985 var farið að tala um þetta hér á landi. Ég hef því upplifað tvenna tíma, þessa raddmálsstefnu og svo tvítyngið, en sem betur fer þróaðist þetta í þá réttu átt.“ Klóraði sig í gegnum menntaskóla Júlía var þrátt fyrir mótlætið ákveð­ in í að mennta sig og eftir grunn­ skóla fór hún í Fjölbrautaskólann við Ármúla. „Við byrjuðum þar fimm heyrnar­ laus en þrjú okkar gáfust upp enda fengum við ekki túlk og skildum ekki neitt. Við vorum þó tvær sem fórum þetta áfram á þrjóskunni og kláruðum námið. Við vissum ekk­ ert hvað var að gerast í kringum okkur en reyndum að klóra okkur í gegnum bækurnar og ég man hversu svakalegan tíma heimaverkefnin tóku.“ Árið 1986 fór Júlía í Þroskaþjálfa­ skólann og fékk þá í fyrsta skipti táknmálstúlk og segir muninn hafa verið ólýsanlegan. „Ég skildi allt, gat fylgst með umræðum og sjálf borið fram spurningar, svo allt í einu var ekkert mál að læra heima og ég gat tengt textann við það sem kennarinn hafði verið að tala um.“ Í dag er döff börnum kennt á táknmálssviði Hlíðaskóla og bendir Júlía á að þar sé ekki kennd mál­ fræði táknmáls. „Heyrandi börnin læra málfræði íslenskunnar en þau heyrnarlausu fá ekki slíkt tækifæri. Það er víst ekki pláss í stundatöfl­ unni en við viljum að hliðrað sé til því það er mikilvægt að læra mál­ fræðina til að bera saman við önnur mál sem þau læra. Sjálf lærði ég bara táknmál í gegnum aðra nemendur og þurfti svo að læra málfræði íslenskunnar sem ég tengdi ekki við. Ef ég hefði lært málfræði tákn­ málsins hefði ég skilið þetta betur og málin stutt hvort annað.“ Er ég svona dýr? Júlía segir fræðslu um heim heyrn­ arlausra ábótavant. „Til dæmis er táknmál ekki alþjóðlegt en margir halda að það sé eins alls staðar í heiminum. Það er það alls ekki og mjög mismunandi eftir löndum. Ég hitti oft heyrnarlausa sem ég skil ekkert hvað eru að segja. Margir spyrja hvort heyrnarlausir geti nokkuð keyrt. Svo maður sér að það vantar meiri fræðslu.“ Júlía segir döff einstaklinga á Íslandi vera í kringum 300. „Okkur var farið að fækka niður í um 250 en fór að fjölga aftur með nýbúum og hingað hefur líka komið döff f lóttafólk og börn svo okkur fer aftur fjölgandi.“ Félag heyrnarlausra hefur barist fyrir táknmálstúlki í atvinnulífinu enda heyrnarlausir víða og f leiri og f leiri ganga menntaveginn. En þá kemur alltaf að stóru spurningunni – hver á að borga? „Ég hef til dæmis áhuga á félagslífi en ef mig lang­ aði til að mynda að prófa hesta­ mennsku þá þyrfti ég túlk. Maður upplifir svolítið eins og maður hafi einhvern verðmiða á sér. Er ég svona dýr?“ Samkvæmt lögum er boðið upp á táknmálstúlkun þegar kemur að skólagöngu á öllum stigum, í heil­ brigðiskerfinu og við kirkjulegar athafnir. En Júlía segir tilfinnan­ lega vanta slíka þjónustu þegar kemur að félagslífinu. „Brúðkaupið er túlkað en ekki veislan sjálf.“ Heyrnarlaus börn týnast oft Júlía segist setja ákveðið spurning­ armerki við stefnuna um skóla án aðgreiningar þegar kemur að döff börnum. „Heyrnarlaus börn týnast oft enda eiga þau oft erfiðara með að verða hluti af hópnum en önnur fötluð börn. Í Heyrnleysingjaskól­ anum lærði ég samskiptareglur og rökræður sem byggðu mig og mína sjálfmynd upp. Ég hef áhyggjur af döff börnum sem eru ein í heyrandi bekk og svo má ekki gleyma því að táknmálskennsla er aðeins í boði á höfuðborgarsvæðinu.“ Kuðungsígræðslur ungra barna eru orðnar mjög almennar og gefa oft góða raun. Evrópuráð heyrnar­ lausra hefur þó lýst yfir áhyggjum sínum af því að foreldrar þessara barna fái ekki hlutlægar og vel rannsakaðar upplýsingar varðandi táknmál og döffmenningu og tekur Júlía undir þær áhyggjur. „Oft er kuðungsígræðsla gerð og gengur vel en barn fær ekki tákn­ málskennslu, svo kemur í ljós síðar að aðgerðin virkar ekki svona vel og þá er búið að tapa svo mikil­ vægum tíma í máltökuskeiði.“ Júlía segir það í raun ákveðna áhættu að ýta ekki undir þennan vitsmunaþroska og þannig skapist aukin hætta á að börnin nái ekki neinu máli. „Það er ekki hægt að fara til baka á þetta mikilvæga næmisskeið en það er ljóst að tví­ tyngi mun aldrei hafa slæm áhrif heldur bara styðja barnið og íslensku þess. Svo hefur barnið val hvort það notar annað eða bæði málin seinna meir.“ Júlía varð sjálf seint læs eða í kringum 11, 12 ára aldurinn. „Enda kunnu kennararnir ekki táknmál og gátu ekki útskýrt fyrir okkur hvernig ætti að lesa. Við fjöl­ skylduna reyndi ég að tala og lesa af vörum. Daði yngri bróðir okkar er alveg táknmálstalandi þó við höfum aldrei kennt honum, hann bara fylgdist með okkur systkin­ unum og það kom náttúrlega.“ Eiga tvær fjölskyldur Júlía segir oft talað um að samfélag heyrnarlausra sé lítið og einangrað en bendir á móti á að sé það ein­ angrað megi kenna lélegu aðgengi heyrnarlausra að heimi heyranda um. „Margir heyrnarlausir segjast eiga tvær fjölskyldur, það er þeirra fjölskylda og döff fjölskyldan. Mér finnst gott að eiga þessa tvo heima, ef maður er orðinn þreyttir í heyr­ andi heiminum er gott að fara í döff heiminn þar sem maður getur talað sitt mál.“ Aðspurð um ástina segir Júlía blaðamanni að hún sé í fjarbúð. „Ég er í fjarbúð, hann heitir Óskar og býr í Sandgerði. Hann er heyrnar­ skertur og ólst ekki upp í táknmáls­ samfélagi, hann getur þó skilið mig en er sjálfur að æfa sig að tala. Við kynntumst þegar við vorum lítil í sömu sveit og hittumst svo 42 árum seinna, eftir að hann hafði samband við mig á Facebook, svo við getum þakkað tækninni fyrir okkar samband,“ segir Júlía og hlær. Talandi um tæknina, samskipta­ miðlar hljóta að vera hjálplegir döff þar sem ungt heyrandi fólk er jafn­ vel hætt að tala í síma og sendir bara skilaboð sín á milli. „Jú, tæknin hjálpar mikið. Ég man sem dæmi þegar ég var ungl­ ingur og maður var skotinn í ein­ hverjum heyrandi, sem þurfti þá að hringja í mömmu til að ná sam­ bandi við mig. Ég þoldi það ekki, ég vildi bara að hann hefði sam­ band við mig en ég var náttúrlega heyrnarlaus.“ Júlía starfar sem fagstjóri tákn­ málskennslu hjá samskiptamið­ stöð heyrnarlausra og heyrnar­ skertra. „Í tengslum við það starf vinn ég mikið í háskólanum, sé um túlkanámið og táknmálsfræði. Eins hef ég kennt á fjölskyldunámskeið­ um og á sambýlum. Þetta hefur alltaf verið líf mitt og ástríða. Ég er mjög stolt af málinu mínu og vil berjast fyrir því að það sé jafnrétt­ hátt íslensku. Menningin og málið byggði mig upp. Ég veit hver ég er, ég er döff, og ég er stolt af því og stolt af málinu mínu. Ég get hoppað á milli tveggja heima og kannski af því ég er stolt í eigin skinni þá hefur mér vegnað vel.“ n Faraldur 1964 til 1965 Um það bil sex þúsund tilfelli rauðra hunda voru skráð hér á landi árin 1964 til 1965. Þó að rauðir hundar séu vægur veiru- og útbrotssjúkdómur getur hann valdið skaða hjá fóstrum barnshafandi kvenna sem smitast fyrstu þrjá mánuði meðgöngunnar. Algengustu skaðarnir eru heyrnarleysi og hjartagalli og samkvæmt at- hugun sem gerð var hér á landi fæddust 40 til 50 börn heyrnar- laus á þessu tímabili. Í dag er öllum börnum boðin bólu- setning, sem meðal annars er gegn rauðum hundum, við 18 mánaða og 9 ára aldur. Hvað er döff? Á Íslandi er orðið döff notað um heyrnarlaust fólk sem talar táknmál. Að vera döff er að tilheyra samfélagi heyrnar- lausra og líta á táknmál sem sitt fyrsta mál. Samsömun og sjálfsmynd eru mikilvægir þættir í þessu samhengi. Að vera döff er því menningarleg skilgreining á heyrnarleysi. Júlía segist lifa í tveimur heimum og sér finnist gott að geta flakkað á milli þeirra eftir hentisemi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI  Mamma hágrét og vildi vera áfram í Vestmannaeyjum og ég man eftir að hafa sagt við hana hugg- andi: „Þegar við verð- um stærri geturðu farið aftur til Vestmanna- eyja.“ 20 Helgin 2. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.