Fréttablaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 24
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
MariCell eru íslensk húðmeð-
höndlunarefni sem eru framleidd
á Ísafirði af Kerecis. Vörurnar eru
þróaðar til að meðhöndla ýmsa
húðkvilla, til dæmis exem, psori-
asis og sprungna húð.
Allar tegundirnar eru CE-merkt-
ar lækningavörur sem innihalda
hvorki stera né parabena og með
ávísun læknis greiða Sjúkratrygg-
ingar Íslands hluta kostnaðar.
Fann fljótt mikinn mun
Einn þeirra fjölmörgu sem notað
hafa Maricell Footguard með
góðum árangri er Vestfirðingurinn
Guðni Einarsson.
Guðni er fæddur og uppalinn á
Vestfjörðum og er framkvæmda-
stjóri fiskþurrkunarfyrirtækisins
Klofnings. Guðni hefur notað
MariCell Footguard í fjölda ára.
Hann segist finna mikinn mun á
fótunum á sér þegar hann notar
það.
„Ég var kominn með þurra og
sprungna hæla en það hefur ekki
verið síðan ég byrjaði að nota
Footguard. Núna er þetta ekkert
vandamál,“ segir Guðni.
„Ég nota það ekki daglega, bara
þegar fer að bera á vandamálinu
og það lagast strax. Allur sársauki
hverfur strax og svo grær þetta
á nokkrum dögum. Ég get eigin-
lega ekkert sagt nema gott um
Footguard.“
Guðni segir að hann hafi notað
MariCell í nokkur ár en það var
mælt með því við hann og hann
ákvað að prófa.
„Ég myndi hiklaust mæla með
þessu við aðra. Það er alveg stað-
reynd að þetta virkar,“ segir Guðni
og bætir við:
„Ég nota líka MariCell XMA
daglega við fótakláða og smá-
skeinum. Ég var búinn að prófa
allan skrattann áður en ég prófaði
það, ýmis feit krem sem mér var
ráðlagt að nota en þetta er það
eina sem virkaði. XMA virkar vel
á exembletti og þurrkubletti, ef ég
ber það á daglega þá hverfa blett-
irnir á tveimur til þremur dögum,“
segir Guðni.
Hvað er MariCell?
Húðsjúkdómalæknirinn Baldur
Tumi Baldursson stendur að baki
MariCell húðmeðhöndlunarefn-
unum sem eru seld í apótekum.
Fjórar mismunandi tegundir
eru fáanlegar: MariCell Foot-
guard, MariCell Psoria, MariCell
XMA og MariCell Smooth. Hver
tegund er sérþróuð til að með-
höndla mismunandi húðkvilla,
til dæmis exem, psoriasis, þurra
sprungna húð og inngróin hár.
Varan inniheldur meðal annars
mOmega3, ávaxtasýrur og karba-
míð sem vinna saman að því að
auka heilbrigði húðarinnar. n
n mOmega3 – Fitusýrur sem eru
unnar úr sjávarfangi. Hlutverk
þeirra er að viðhalda heilbrigði
hyrnislags húðarinnar.
n Ávaxtasýra (10%) – Mýkir efsta
lag húðarinnar og flýtir fyrir
húðflögnun.
n Karbamíð (7%) – Gefur raka og
eykur vatnsbindigetu húðar-
innar.
Footguard er
einstaklega virk
vara þróuð til
að meðhöndla
fætur, sprungna
húð og fyrir þá
sem þurfa að
standa mikið
eða eru við
slæma fóta-
heilsu.
Dagur 1.
Dagur 14.
Xma er sér-
þróað til með-
höndlunar á
aumri, rauðri,
bólginni húð
og einkennum
exems. Efnið
slakar á húðinni
og eykur fyll-
ingu. Það dregur
úr kláða og sefar
húðina.
Kerecis kynnir –
WOUND sáraúðann
sem inniheldur ómega-
fitusýrur úr jurtaríkinu
og flýtir fyrir náttúru-
legri sáragræðslu.
WOUND sáraúðinn inni-
heldur bæði jóhannesar-
jurtarolíu og dísartrjáa-
olíu (e. Neem oil), en báðar
þessar olíur eru þekktar
fyrir græðandi eiginleika
og innihalda fjölómett-
aðar fitusýrur. Úðinn er
hentugur til að meðhöndla
núningssár, hruflsár, væg
brunasár, sár eftir blöðrur,
bleyjusvæði, sár eftir inn-
gróna nögl, litla skurði og
skrámur.
Úðinn er 100% nátt-
úrulegur og án rot-
varnarefna. Hann hefur
örverueyðandi eiginleika
og samverkandi áhrif
olíanna flýtir fyrir sára-
græðslunni.
Sáraúðinn er CE-merkt
lækningavara og er nú
þegar fáanlegur í apó-
tekum.
Wound sáraúðinn er
einfaldur og þægilegur í
notkun:
Hreinsið sárið vel með
hreinu vatni og hristið
brúsann vel. Úðið úr fimm
til tíu sentimetra fjarlægð
á húð og umhverfis sárið.
Hyljið með sáraumbúðum
sem henta hverju sinni. n
WOUND – Náttúrulegur
sáraúði frá Kerecis
Ísafjörður er fallegur bær en þar eru MariCell-vörurnar framleiddar.
Sölustaðir:
Apótek
www.maricell.is
2 kynningarblað A L LT 2. júlí 2022 LAUGARDAGUR