Fréttablaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 65

Fréttablaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 65
Tákn Byggðamerkis Húnabyggðar skal hafa tilvísun í áberandi einkenni í náttúru svæðisins, sögu og ímynd. Skilyrði er að merkið hafi skjaldarlögun og sé í samræmi við meginreglur skjaldarmerkjafræðinnar, sbr. 4. og 5. grein reglugerðar um byggðar- merki nr. R 112/1999. Tillögum skal skilað í tveimur útfærslum, í lit og í svart/hvítu, sett upp á A4. Jafnframt skal fylgja lýsing á merkingu og meginhugmyndum. Tillögurnar skal senda í umslagi, merktar með fimm stafa tölu. Nafn höfundar skal fylgja með í lokuðu umslagi, merktu með sama auðkenni. Matsnefnd skipuð af sveitarstjórn velur merki úr aðsendum tillögum, henni er jafnframt heimilt að hafna öllum eða vinna að útfærslu tillögu með höfundi. Veitt er vegleg verðlaunaupphæð fyrir efstu þrjár til- lögurnar, sem matsnefnd velur og leiðir til endanlegs merkis. Húnabyggð er nýtt sveitarfélag sem varð til við sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps árið 2022. Húnabyggð óskar eftir tillögum um byggðamerki Frestur til að skila tilögum er til 1. september 2022. Nánari upplýsingar: Einar K. Jónsson einar@hunavatnshreppur.is og í síma 842 5800. Sendist til: Matsnefnd byggðamerkis, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduós. Skáldið og kvikmynda- gerðarmaðurinn Guðmundur Magnússon hlaut Nýræktar- styrk fyrir ljóðabókina Talandi steinar. Hann segir skáldagyðjuna ætíð hafa reynst sér vel. kolbrunb@frettabladid.is Guðmundur Magnússon hlaut á dögunum Nýræktarstyrk fyrir ljóðabálkinn Talandi steinar sem kemur út hjá Bjarti í september. Nýræktarstyrkur er veittur fyrir skáldverk höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum. „Það er augljóslega mjög mikils virði að hljóta þessa viðurkenn- ingu. Mér skilst að hátt í hundrað rithöfundar hafi sótt um í fyrra og rúmir sextíu núna. Þannig að þetta er mikilvæg hvatning,“ segir hann. Guðmundur er menntaður kvik- myndagerðarmaður, hefur unnið ötult að gerð heimildarmynda og vinnur nú þróunarvinnu fyrir fyrstu leiknu kvikmynd sína í fullri lengd. Hann hefur birt ljóð og smásögur í tímaritum og er rit- stjóri sögurits á Suðurnesjum þar sem birtar eru gamlar myndir, fróðleikur og viðtöl við eldra fólk sem býr og á ættir sínar að rekja til Suðurnesja. „Blaðið er mitt framlag til samfélagsins sem ól mig upp,“ segir hann. Spurður um ljóðabálkinn Tal- andi steina segir hann: „Þetta er ljóðabálkur sem segir sögu ein- staklings sem leitar sér hjálpar á bráðamóttöku geðdeildar. Mann- eskjan glímir við erfitt þunglyndi og lendir í aðstæðum sem hann ræður ekki við og óskar eftir inn- lögn.“ Lágstemmt en sterkt myndmál Í umsögn bókmenntaráðgjafa um verkið segir meðal annars: „Höf- undur yrkir af næmni og skilningi á viðfangsefninu og dregur upp sannfærandi mynd af ljóðmælanda og samferðafólki hans á deildinni. Myndmál bókarinnar er lágstemmt en sterkt og býr yfir breytilegum endurtekningum sem ljá verkinu ljóðræna dýpt.“ Spurður hvenær hann hafi byrjað að yrkja segir Guðmundur: „Ég hef skrifað frá unga aldri en fór mjög leynt með það. Amma átti ljóða- safn Tómasar Guðmundssonar sem ég las við hvert tækifæri. Ég er eiginlega viss um að sú bók hafi kveikt enn frekar á áhuga minn á kveðskap sem líklega kraumaði undir. Þegar amma lést eignaðist ég bókina sem er eins konar biblía hér heima. Vinir mínir ranghvolfa aug- unum yfir hrifningu minni á gömlu skáldunum. Það er engin tilgerð að það eru þau sem gefa mér mestan innblástur allra ljóðskálda og ruddu brautina fyrir okkur hin.“ Skáldgyðjan verið honum góð Guðmundur segist hafa verið kom- inn yfir þrítugsaldur þegar hann reyndi fyrst að fá skrif sín birt og hafi það verið fyrir hvatningu vina hans í rithöfundaheiminum. „Skáldgyðjan hefur verið mér ákaf lega góð og mig skortir aldr- ei hugmyndir. Ég er með meira hugmyndaflug en ég ræð við. Mig dreymdi einu sinni skáldagyðjuna og ég vona að sá draumur hafi ekki bara verið tilbúningur hugans. Fyrir mér eru skrifin lífsnauðsynlegt tján- ingarform til að halda lífi. Eins og súrefni en ég skrifa fyrst og fremst fyrir mig sjálfan.“ Hann kveðst hafa mikinn áhuga á sögu rithöfunda og skálda. „Stund- um velti ég fyrir mér hvort ég hafi meiri áhuga á lífshlaupi þeirra en kveðskapnum sjálfum. En líklega er það ekki rétt. Mér finnst áhuga- vert að læra hvernig þeir komust á þann stað sem að við flest þekkjum. Ég á mér margar aðrar fyrirmynd- ir úr fortíðinni. Sagan af Jóhönnu af Örk er alltaf á bak við eyrað. Sagn- fræði og áhugi minn á liðnum tímum hefur veitt mér mestan inn- blástur. Það er svo mikið langhlaup að fjármagna kvikmyndir að það er gott að geta sest niður og skrifað og án efa það sem gefur mér hvað mest í lífinu,“ segir Guðmundur. n Mig skortir aldrei hugmyndir Guðmundur Magnússon segir það hafa verið mikla hvatningu að fá Nýræktarstyrk. Fréttablaðið/Ernir tsh@frettabladid.is Alþjóðleg ráðstefna um leiklist í menntun verður haldin á Íslandi dagana 4. til 8. júlí. Um er að ræða níundu heimsráðstefnu IDEA sam- takanna og sjá FLÍSS, félag um leik- list í skólastarfi, og Háskóli Íslands um skipulagningu. Samk væmt tilk y nning u f rá skipuleggjendum er ráðstefnan liður í því að efla listgreinar í skóla- starfi. Ísland er í fararbroddi þegar kemur að listgreinum í grunnskóla en ekkert annað Evrópuland hefur leiklist sem listgrein í aðalnámskrá grunnskóla og horfa aðrar þjóðir til Íslands hvað það varðar. Um 160 manns munu sækja ráð- stefnuna víðs vegar að úr heimin- um og koma fjölmargir sérfræðing- ar á sviði leiklistar og menntunar fram. Aðalfyrirlesarar eru Faisal Kiwewa, stofnandi og listrænn stjórnandi Bayimba Foundation í Úganda, Kristian Nødtvedt Knud- sen, dósent í leiklist við sjón- og leiklistardeild Háskólans í Agder í Noregi, Rannveig Björk Þorkels- dóttir, dósent í leiklist við Mennta- vísindasvið Háskóla Íslands, og Terry Gunnell, prófessor í þjóð- fræði við Háskóla Íslands. Ráðstefnan verður haldin í hús- næði menntavísindasviðs HÍ í Stakkahlíð og í Tjarnarbíói. n Níunda ráðstefna IDEA um leiklist LAUGARDAGUR 2. júlí 2022 Menning 37FréttAblAðIð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.