Fréttablaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 6
Til dæmis getur fjöldi
tiltekinna blóma sagt
okkur mikið um
hversu hátt hitastigið
var á sumrin.
Wesley Farns-
worth, nýdoktor
Vísindamenn á vegum hinnar
íslensk-dönsku stofnunar
ROCS eru að klára setlaga-
söfnun úr rúmlega 50 íslensk-
um stöðuvötnum. Hægt
verður að greina tegundirnar
sem lifðu hér fyrir allt að 14
þúsund árum.
kristinnhaukur@frettabladid.is
VÍSINDI Gagnasöfnun í einni stærstu
vatnarannsókn heims er nú að
ljúka hér á Íslandi. Tekin hafa verið
sýni úr 52 stöðuvötnum sem verða
greind til að finna erfðaefni dýra og
plantna allt að 14 þúsund ár aftur í
tímann.
„Setlög úr stöðuvötnum geta sagt
okkur hvernig lífríkið og loftslagið
var í fortíðinni,“ segir hinn banda-
ríski Wesley Farnsworth, nýdoktor
við Háskóla Íslands og Kaupmanna-
hafnarháskóla, sem leiðir rann-
sóknina. Hún er unnin á vegum
Rannsóknarseturs Margrétar II
Danadrottningar og Vigdísar Finn-
bogadóttur um haf, loftslag og sam-
félag, ROCS, og er samstarfsverkefni
Háskóla Íslands og Kaupmanna-
hafnarháskóla en auk þess koma að
henni fjölmargar stofnanir á Íslandi
og í Danmörku.
Setlögunum er safnað í stór rör,
frá 2 til 10 metra löngum. Wesley
segir aðferðina hafa verið notaða í
um 100 ár. Hún hefur þó verið þróuð
mikið á undanförnum árum og not-
aðir eru stimplar til að framkalla sog
inni í rörinu.
Fyrst eru vötnin dýptarmæld
og svo er sýnunum safnað á bestu
stöðunum. Flest íslensku sýnin voru
tekin í vetur og ísbor notaður til að
komast að. Vötnin eru ekki endi-
lega þau stærstu á landinu, heldur
f lest í smærra lagi. Er þá horft til
þess að vatnasviðið sé ekki of stórt
til að hægt sé að hafa betri yfirsýn.
Wesley segir að hugsanlega verði
tveimur vötnum bætt í hópinn áður
en sýnin verða send til Danmerkur
á rannsóknarstofu.
Samkvæmt Wesley eru tveir fók-
uspunktar á rannsókninni. Annars
vegar rannsókn á síðustu 2 þúsund
árum og hins vegar síðustu 14 þús-
und. „Við viljum sjá hvernig hin
ósnortna náttúra Íslands breyttist
í kjölfar landnáms,“ segir hann. Það
er að sjá hvernig náttúran var fyrir
níundu öld þegar land var numið og
eftir hana.
Hinn punkturinn lýtur að því
skeiði þegar gervallt Ísland var að
koma undan 2 kílómetra þykkum
ís sem náði allt að 100 kílómetra
út fyrir landsteinana. Hann gaf sig
fyrir rúmlega 14 þúsund árum og
strandlengjan kom í ljós.
Wesley segir að áður fyrr hafi
vísindamenn þurft að eyða gríðar-
lega miklum tíma í að skima efni í
smásjám til að finna frjókorn eða
steingervinga af lauf blöðum eða
greinum. Í dag er notað svokallað
umhverfiserfðaefni, eDNA, þar
sem hægt er að draga fram erfðaefni
eða búta úr því með hátæknilegum
aðferðum til að greina tegundirnar.
Hvort sem það eru skeljar, bein,
plöntuleifar eða annað.
„Tilvist fólks, ákveðinna dýra-
tegunda og plantna, gefur okkur
vísbendingar um hvernig loftslagið
var,“ segir Wesley. „Til dæmis getur
fjöldi tiltekinna blóma sagt okkur
mikið um hversu hátt hitastigið var
á sumrin.“
Brátt hefst starf við að vinna úr
gögnunum og Wesley segir að það
muni taka nokkurn tíma. Niður-
stöðurnar verða sennilega ekki
birtar allar í einu en þær munu
liggja fyrir á næstu árum. n
Lesa íslenska náttúrusögu
af sýnum úr stöðuvötnum
SAMAN Í SÓL
05. - 12. JÚLÍ
HG CRISTIAN SUR 3*
ÍBÚÐ MEÐ 1 SVEFNHERBERGI
VERÐ FRÁ 79.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 110.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
06. - 13. JÚLÍ
SUN BEACH APT. 4*
ÍBÚÐ MEÐ SVÖLUM
VERÐ FRÁ 89.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 129.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS
HAGKVÆ
MT
VINSÆ
LT
TILBOÐ
TAKMARKAÐ
FRAMBOÐ
TENERIFE MALLORCA
Þegar hefur verið safnað sýnum úr 52 stöðuvötnum. MYND/AÐSEND
bth@frettabladid.is
VELFERÐ Útgjöld til velferðarríkis-
ins á Íslandi eru minni að vöxtum
en á hinum Norðurlöndunum á nær
öllum sviðum velferðarmála sam-
kvæmt nýrri rannsóknarskýrslu Efl-
ingar. Félagið véfengir réttmæti þess
að Ísland standi undir þeirri nafn-
bót að teljast norrænt velferðarríki.
„Það komu fram sláandi upplýs-
ingar í þessari skýrslu Stefáns Ólafs-
sonar félagsfræðiprófessors. Hana
þarf að rýna vel,“ segir Vilhjálmur
Birgisson hjá Verkalýðsfélagi Akra-
ness.
Vilhjálmur nefnir að þróun
barnabóta sé ömurleg hér á landi.
Skerðingarmörk séu allt of lág. Í
skýrslunni er staðfest að barna-
bætur séu óvenjulágar núorðið á
Íslandi. „Áður stóð Ísland betur
að vígi í samanburði á útgjöldum
til velferðarþjónustu, en þar hefur
hallað á.“
Þá segir í skýrslunni að opin-
ber útgjöld í lífeyrisgreiðslum séu
óvenju lág á Íslandi í samanburði
við öll OECD-ríkin. Sláandi sé að
skoða samanlögð opinber útgjöld
vegna örorku- og ellilífeyris. Ísland
sé þar með fimmtu lægstu útgjöld-
in í alþjóðasamanburði í félags-
skap með þróunarlöndum eins og
Mexíkó og Kosta Ríka.
„Þetta er það sem við þurfum að
ræða við stjórnvöld,“ segir Vil-
hjálmur. „Að við sem ein ríkasta
þjóð í heimi séum í f lokki með
þessum löndum sýnir að tilfærslu-
kerfin virka ekki nógu vel gagnvart
hópum sem standa höllustum fæti.“
Undir þetta tekur Drífa Snædal,
forseti ASÍ. Hún segir skýrsluna
knýja á breytingar. Kallað hafi
verið eftir að skattkerfi og tilfærslu-
kerfi séu nýtt til tekjujöfnunar með
markvissari hætti.
„Það er einkenni velferðarríkja og
býr til betri samfélög fyrir okkur öll
þegar upp er staðið,“ segir Drífa. n
Nærri botni í tilteknum
þáttum velferðarmála
Vilhjálmur
Birgisson,
formaður
Verkalýðsfélags
Akraness
Drífa Snædal,
forseti ASÍ
benediktboas@frettabladid.is
FERÐALÖG Það var f jölmenni í
Dimmuborgum í gær þegar Frétta-
blaðið bar að garði í blíðskapar-
veðri. Mikil röð myndaðist við helli
jólasveinanna en gestum borganna
þótti ákaflega spennandi að sjá hvar
þeir eiga heima.
Fjölmargar rútur voru við inn-
ganginn og nóg að gera á veitinga-
staðnum þar sem þeir sem voru
búnir að labba hringinn fengu sér
kaffi og meðlæti. n
Kíkt á jólasveina í júlí
Veðrið í Mývatnssveit í gær var með besta móti þó að flugan hafi gert að-
komufólki lífið leitt. FRÉTTABLAÐIÐ/BENEDIKT BÓAS
thorgrimur@frettabladid.is
RÚSSLAND Framk væmdastjórn
Evrópusambandsins undirbý r
nú útgáfu yfirlýsingar til þess að
heimila Rússum að flytja vörur til
Kalíníngrad í gegnum Litáen.
Kalíníngrad er vestasta hérað
Rússlands en er aðskilið öðru rúss-
nesku landsvæði. Til þess að flytja
vörur þangað landleiðina frá Rúss-
landi verður að fara í gegnum Litáen
eða Pólland. Litáar lokuðu fyrir
vöruflutninga í gegnum landsvæði
sitt frá Rússlandi til Kalíníngrad frá
17. júní í samræmi við viðskipta-
þvinganirnar sem Evrópusam-
bandið hefur lagt á Rússa vegna
innrásarinnar í Úkraínu. Hafa því
f lutningar á stáli, áli og byggingar-
efnum til Kalíníngrad verið stöðv-
aðir.
Nú áætlar framkvæmdastjórn
ESB að heimila vöruf lutning til
Kalíníngrad að því gefnu að hann
fari ekki yfir það magn sem við-
gekkst fyrir innrásina í Úkraínu.
Ríkisstjórn Þýskalands er hlynnt
þessari stefnubreytingu en Litáar
hafa lýst yfir óánægju með hana. n
Heimila vöruflutninga til Kalíníngrad
Litáar lokuðu fyrir vöruflutninga til
Kalíníngrad frá 17. júní. MYND/EPA
6 Fréttir 2. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ