Fréttablaðið - 07.07.2022, Page 2
Mótmæla banni á trans konur
Blásið var til kröfufundar fyrir utan höfuðstöðvar ÍSÍ vegna ákvörðunar Sundsambands Íslands um að styðja tillögu sem bannar trans konum að keppa í kvenna-
flokki á heimsmeistaramótinu í sundi. Skipuleggjendur segja bannið ýta jaðarsettum hópi enn lenga út á jaðarinn og jafnvel aftur inn í skápinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tempóhlaup hjá konu á Suð-
austurlandi breyttist snarlega
í hröðustu heimferð sögunnar
þegar ugla gerði árás. Fuglinn
hefur væntanlega verið að
vernda unga sína.
bth@frettabladid.is
HORNAFJÖRÐUR Þórgunnur Torfa-
dóttir, sviðsstjóri á Hornafirði, lenti
í þeirri lífsreynslu í fyrradag að
brandugla réðst ítrekað að henni
þegar Þórgunnur var úti að skokka.
Fuglafræðingur segir svona tilvik
ekki algeng.
„Ég var úti að hlaupa og akkúrat
að taka smá tempóhlaup, var að
reyna á mig. Þá f lýgur fugl á móti
mér og ég hugsa: Ansi er þetta lág-
fleygur mávur,“ segir Þórgunnur.
Nær og nær færðist fuglinn.
„Svo fer hann að hvæsa og hvæsa,
lætur mjög illa. Þá sé ég að þetta
er ekki mávur heldur ugla. Og svo
kemur hún niður að mér aftur og
aftur og hvæsir með þvílíku óhljóð-
unum.“
Þórgunnur sá að ekki varð unað
við svo búið og svaraði uglunni í
sömu mynt. Hún öskraði og hvæsti
og sveif laði höndunum líkt og óð
væri. Uglan hörfaði þá með semingi
en þegar rimman stóð sem hæst
var aðeins rúmur metri frá andliti
Þórgunnar og uglunnar, sem hefur
beittar klær.
Þórgunnur sneri þá við og hljóp
til baka, hélt hún væri sloppin.
„En þá sé ég skugga koma aftan
að mér og hugsa: Nei, ekki þú aftur!
Hljóp eins hratt og ég gat og loks gat
ég losnað við hana.“
Þótt atlaga uglunnar minni ögn á
Hitchcock-hrylling, var Þórgunni þó
ekki meira brugðið en svo að henni
tókst að taka mynd í öllum lát-
unum. Hún segir þekkt að skúmar,
kríur, kjóar, mávar og jafnvel skóg-
arþrestir goggi í fólk, en þetta hafi
sannarlega komið henni á óvart.
„Ég var með hárið í tagli og það
eru uppi vangaveltur um hvort
uglan hélt að taglið væri mús, skott
á ref eða eitthvað,“ segir Þórgunnur
létt í bragði. Hún telur þó líklegra að
varptíminn sé skýringin.
Björn Arnarson hjá Fuglaathug-
unarstöð Suðausturlands staðfestir
það. Hann segir svona hegðun hjá
uglum hér á landi ekki algenga en
komi þó fyrir einmitt á þessum árs-
tíma. Uglan hafi verið að vernda
unga sína í grennd.
„Hún passar mjög vel upp upp
á ungana sína en þessi hefur verið
óvenjuárásargjörn,“ segir Björn.
Þórgunnur mun ekki setja þessa
lífsreynslu á topp tíu yfir ógnir
mannsævinnar þótt hjartað hafi
tekið nokkur aukaslög.
„Skúmarnir eru verstir. Þeir
steypa sér niður að manni eins og
orrustuflugvélar en þeir eru ekki
með svona hávaða eins og uglan.
Svona ævintýri breyta því ekki að
ég hef mjög gaman af fuglum,“ segir
Þórgunnur, enda héraðið fugla-
paradís. n
Brandugla réðst á skokkara
Þórgunnur tók þessa mynd af fjand-
vini sínum áður en rimmunni lauk.
Íslenska branduglan er fagur og dularfullur fugl. MYND/BJÖRN ARNARSSON
En þá sé ég skugga
koma aftan að mér og
hugsa: Nei, ekki þú
aftur!
Þórgunnur
Torfadóttir,
íbúi á Hornafirði
J A R Ð B Ö Ð I N
VIÐ MÝVATN
jardbodin.is
thorgrimur@frettabladid.is
AFGANISTAN Árni Þór Arnþórsson,
aðstoðarrektor American Univer-
sity of Afghanistan, AUAF, í Kabúl,
vonast til þess að hetja frá Afgan-
istan komist undan ofsóknum
Talibana og til öruggs lands.
Í grein í Fréttablaðinu í dag segir
Árni sögu „Abduls“ en líf hans var
í hættu á laugardaginn þegar eftir-
litsmenn Talibana bönkuðu upp á
heima hjá honum. Höfðu þá nýlega
verið gerðar tvær skot- og sprengju-
árásir í grenndinni.
Árni lýsir Abdul sem tölvunörd.
Frá því Kabúl féll í hendur Talibana
hafi hann margoft lagt á sig hættu-
ferðir til vegabréfaskrifstofunnar í
Kabúl. Þar hjálpi hann nemendum
AUAF að fá eða endurnýja vegabréf.
„Þetta skapar alltaf hættu þar
sem Talibanar handtaka alla sem
reyna þetta.“
Til allrar hamingju þyrmdu Talib-
anarnir lífi Abduls, í þetta sinn. Þeir
fundu ekkert sem tengdi Abdul
við árásirnar eða við bandaríska
háskólann og höfðu sig því á brott
um miðnætti en skildu eftir verði.
„Ef [Abdul] kemst til Pakistan
með fjölskylduna þá þarf ég að
finna út hvernig við getum komið
honum eitthvert annað, til lands
sem hefur not fyrir mann eins og
hann. Hann er hetja.“ n SJÁ SÍÐU 14
Afgönsk hetja komist til öruggs lands
Árni segir að lífi Abduls stafi hætta
af stjórn Talibana. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
erlamaria@frettabladid.is
BRETLAND Boris Johnson, forsætis-
ráðherra Bretlands, var til svara í
breska þinginu rétt fyrir hádegi í
gær, þar sem þingmenn þjörmuðu
að ráðherranum vegna afsagna
fjölda ráðherra og upplausnar innan
ríkisstjórnarinnar.
Á einum degi sögðu sautján ráð-
herrar af sér. Þetta er í fyrsta skipti
í sögu breskra stjórn mála sem jafn
margir ráð herrar segja af sér á svo
stuttum tíma. Fyrri metfjöldi af-
sagna eru ellefu frá árinu 1932.
Alls hafa fjörutíu og einn ráð herra
og að stoðar ráð herra sagt af sér.
Þegar Frétta blaðið fór í prentun
var John son enn á fundi í Down-
ingstræti 10 með tveimur hópum
ráð herra bresku ríkis stjórnarinnar.
Að sögn breskra fjöl miðla mættu
ráð herrarnir til fundar við John son,
án þess að boðað hefði verið til slíks
fundar, til þess að setja þrýsting á
hann til að segja af sér. n
Hart var sótt í gær
að Boris Johnson
2 Fréttir 7. júlí 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ