Fréttablaðið - 07.07.2022, Síða 22
Þegar Kim Kardashian
mætti nýlega á Met Gala
í kjól af Marilyn Monroe
vakti það mikla athygli og
var nokkuð umdeilt, þar
sem margir litu á kjólinn
sem safngrip. En hver ætli
hafi verið örlög annarra
frægra kjóla úr sögu Holly-
wood?
oddurfreyr@frettabladid.is
Fyrr í vikunni birti The Guardian
ítarlega umfjöllun um hvað hefur
orðið um nokkra af frægustu kjól
unum úr sögu Hollywood. Lengi
vel voru það bara safnarar, en
ekki söfn, sem þóttu þeir sérlega
merkilegir, svo það er mjög mis
jafnt hve vel hefur verið passað
upp á fræga búninga úr kvik
myndasögunni.
Deilt um notkun á kjól Monroe
Kjólinn sem Kim Kardashian var
í á Met Gala var sá sem hin goð
sagnakennda Marilyn Monroe
klæddist þegar hún söng fyrir
John F. Kennedy, þáverandi
Bandaríkjaforseta, í tilefni af
afmæli hans árið 1962. Margir
voru hrifnir af klæðnaði Karda
shian en aðrir gagnrýndu þessa
meðferð á f lík sem þeir töldu að
ætti að vera safngripur.
Kjólinn er skreyttur með yfir
tvö þúsund kristöllum sem voru
handsaumaðir inn í „souffle“
silkið sem hann var gerður úr, en
þess má geta að þetta silki hefur
verið bannað með lögum því
það er svo eldfimt. Kardashian
fékk kjólinn lánaðan frá Ripley’s
Believe It Or Not! sem keypti
kjólinn fyrir 4,8 milljónir dala
árið 2016, en það gerir hann að
dýrasta kjól heims.
Að sögn var kjóllinn saumaður
utan á Monroe og hún var bara í
honum á meðan hún var á sviði,
en Kardashian segist aðeins
hafa verið í kjólnum í um fjórar
mínútur og að teymi sérfræðinga
með hanska hafi séð um að klæða
hana varlega í kjólinn. Hún fór svo
í eftirlíkingu sem hún klæddist
það sem eftir lifði kvölds.
En safnarinn Scott Fortner, sem
segist eiga stærsta safn af munum
sem tengjast Monroe í heimi, birti
myndir á Instagramreikningi
sínum, The Marilyn Monroe
Collection, sem hann sagði að
sýndu skemmdir á kjólnum eftir
að Kardashian fór í hann. Ripley’s
og Kardashian segja hins vegar
að kjóllinn hafi ekki orðið fyrir
neinum skemmdum. Fortner
kennir Ripley’s um þessar meintu
skemmdir og segir að þetta sé ekki
bara kjóll, heldur hluti af menn
ingu Bandaríkjanna og vonar að
þetta atvik verði til þess að svona
verðmætir gripir verði passaðir
betur í framtíðinni.
Kjóll Garland í gömlum skókassa
Annað dæmi um verðmætan
kjól er kjóllinn sem Judy Garland
klæddist í kvikmyndinni The
Wizard of Oz. Um tíu stykki voru
Örlög frægra kjóla frá Hollywood
Notkun Kim Kardashian á kjól af Marilyn Monroe vakti mikla athygli og var umdeild. Hún vakti um leið umræðu um
meðferð á gömlum fötum úr sögu Hollywood. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB
SKOÐIÐ
LAXDAL.IS
30-60%
afsláttur
SUMARútSAlA
búin til fyrir gerð kvikmyndar
innar og í maí síðastliðnum var
einn þeirra settur á uppboð
eftir að hafa uppgötvast í löngu
gleymdum skókassa. Hann fór
samt f ljótt úr sölu því gert var
tilkall til hans. Það er engin furða
að einhver hafi gert þetta tilkall,
þar sem gert var ráð fyrir að hann
myndi seljast fyrir á bilinu 800
þúsund til 1,2 milljónir dala.
John Fricke, sem er sérfræð
ingur þegar kemur að Garland og
kvikmyndinni um galdrakarlinn
í Oz, segir að þetta sé bara einn
af mununum sem eru eftirsóttir
úr myndinni. Gerð voru fimm
pör af rauðu töfraskónum hennar
Dorothy sem hafa lent í ýmsum
ævintýrum og til dæmis er alríkis
lögregla Bandaríkjanna með eitt
parið, en það fannst eftir að því
var stolið af sýningu árið 2005.
Best farna parið átti að fara á upp
boð árið 1970 en var geymt, ásamt
einum af kjólunum, og var svo
keypt af hópi þekktra listamanna
frá Hollywood sem enduðu á því
að gefa það til Academykvik
myndasafnsins í Los Angeles.
Kvenfyrirlitning mótaði verðmat
Kvikmyndastjarnan Debbie
Reynolds átti líka mikið safn af
frægum búningum, þar á meðal
svarthvítu fötin sem Audrey
Hepburn klæddist í My Fair Lady
og hvíta kjólinn sem fauk upp
um Monroe í The Seven Year Itch.
Hún bað bandarísku kvikmynda
akademíuna oft um að hjálpa sér
að geyma og sýna þessa muni, en
fékk alltaf neitun.
Hún endaði með því að selja
lykilmuni til safnara árið 2011.
Kjól Monroe fór á 4,6 milljónir
dala og föt Hepburn á 3,7 millj
ónir. Reynolds fékk svo ósk sína
uppfyllta nokkrum árum eftir
dauða sinn þegar akademían
opnaði áðurnefnt safn árið 2021
og þá fór restin af safni hennar á
sýningu.
Deborah Nadoolman Landis,
sem var búningahönnuður áður
en hún gerðist fræðimaður, segir
að það hafi verið horft fram hjá
gildi þessa klæðnaðar vegna þess
að það var litið svo á að hann
vekti aðallega áhuga kvenna og
væri því ekki sérlega mikilvægur.
Hún segir að það sé sorglegt en að
kvenfyrirlitning hafi verið skýr
ingin. Hún er heldur ekki ánægð
með meðferðina á kjól Monroe á
Met Gala og líkir því við að taka
mun af breska ríkissafninu til
afnota.
Flestir búningar í einkasöfnum
Fricke segir að kvikmyndafyrir
tæki hafi verið síðust til að átta
sig á vinsældum gamalla búninga.
„Hollywood vissi þetta ekki,
en heimurinn vissi þetta,“ segir
hann.
Nú eru gamlir búningar, sér
staklega þeir sem goðsagnir eins
og Monroe, Garland og Hepburn
notuðu, svo vinsælir að uppboðs
hús eru mér sérstakar deildir
tileinkaðar þeim.
Landis segir að 90 prósent
af gömlum búningum séu nú í
einkasöfnum, að hluta til vegna
þess hvað þeir eru verðmætir,
en líka vegna þess að það er dýrt
og tímafrekt fyrir söfn að passa
upp á þá. Það þýðir um leið að
meðferð þeirra er misjöfn. Það er
samt almennt farið vel með þá,
því þessir safnarar sjá verðmæti
gripanna og líta svo á að þeir séu
að passa þá fyrir komandi kyn
slóðir. Svo vilja þeir auðvitað ekki
að fjárfesting þeirra falli í verði.
Kjóllinn sem Ripley’s keypti árið
2016 var til að mynda keyptur
fyrir 1,2 milljónir 17 árum fyrr,
svo verðmætið fjórfaldaðist á
þessu tímabili. n
Kjóllinn sem fauk upp um Monroe í kvikmyndinni The Seven Year Itch seldist
á 4,6 milljónir dala. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Kjólarnir sem voru gerðir fyrir Judy
Garland fyrir gerð kvikmyndarinnar
um galdrakarlinn í Oz eru orðnir
verðmætir safngripir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Gerð voru fimm pör
af rauðu töfraskón-
um hennar Dorothy sem
hafa lent í ýmsum ævin-
týrum og til dæmis er
alríkislögregla Banda-
ríkjanna með eitt parið.
6 kynningarblað A L LT 7. júlí 2022 FIMMTUDAGUR