Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.07.2022, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 22.07.2022, Qupperneq 1
Samsetningin í átt að efnameiri ferðamönn- um er augljós. Birgir Ómar Haraldsson, framkvæmdastjóri þyrlu­ þjónustunnar Norðurflugs 1 4 7 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 2 2 . J Ú L Í 2 0 2 2 Netflix í öldudal Ultraflex sinnir heimilisverkum Lífið ➤ 20  Lífið ➤ 22 Ríkir ferðamenn eru fleiri hér á landi þetta sumarið en áður. Flestir frá Ameríku. Verðlagið á landinu er enda tæpast fyrir millistéttarfólk. Dýrtíðin er áhyggjuefni fyrir ferðaþjónustuna. ser@frettabladid.is FERÐAÞJÓNUSTA Fleiri sterkefn- aðir ferðamenn sækja Ísland heim á þessu sumri en áður hefur þekkst. Þetta er samdóma álit fjölda stjórn- enda í ferðaþjónustunni, svo og fararstjóra og viðburðastjóra sem Fréttablaðið hefur rætt við síðustu daga. „Glöggt dæmi um þetta er að kortavelta erlendra ferðamanna er nú meiri en þegar þeir voru f lestir fyrir faraldurinn,“ segir einn úr þessum hópi – og annar bætir því við að „það er ekki bara uppsöfnuð ferðaþörf hjá þessum hópi heldur og uppsöfnuð eyðsluþörf.“ Ferðaskipuleggjendur hér innan- lands segja efnaða Ameríkana áberandi í þessum hópi. „Fjöldi þeirra hefur verið að ferðast um Evrópu í mánuð eða svo í sumar, en bætir svo einni viku við á Íslandi á heimleiðinni,“ segir einn reyndasti skipuleggjandinn í ferðum og upp- lifun ríkra útlendinga hér á landi, en hann skipuleggur allan tíma þeirra hér á landi, „frá því einka- þotudyrnar opnast og þar til þær lokast.“ Hann segir norðvestanverða Evr- ópu einkar vinsæla meðal þessara ferðalanga, ekki síst Norðurlöndin, þar sem þeir sæki í fámenni, öryggi og sterka innviði, „umfram áhættu- meiri svæði.“ Annar viðmælandi bætir því við að afar algengt sé að þessi hópur ferðafólks sé nú tveimur til þremur dögum lengur á landinu en áður hafi þekkst – og eyði eftir því. „Það lætur meira eftir sér, langþreytt eftir pestartímann,“ útskýrir hann. Birgir Ómar Haraldsson, fram- kvæmdastjóri þyrluþjónustunnar Norðurflugs, segir ágætt dæmi um þetta að hann hafi verið að bæta við sig fjórðu þyrlunni, svo mikið sé að gera. „Samsetningin í átt að efnameiri ferðamönnum er aug- ljós,“ segir hann. En það sé líka orðin áskorun fyrir íslenska ferðaþjónustu að halda í hefðbundið millitekjufólk sem þrái að ferðast. Verðlagning á Íslandi sé aðeins að verða á færi efnafólks. „Hér borgar fólk 400 dali fyrir næturgistingu á venju- legu meðalhóteli. Það jafngildir lúxusgistingu í Bandaríkjunum,“ segir Birgir Ómar og óttast áhrifin af dýrtíðinni á ferðaþjónustu til frambúðar. n Áberandi fjölgun sterkefnaðra ferðamanna lyaver.is Netapótek Lyavers Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is Eclipse Cross PHEV 4x4 Förum saman út í bláinn! Eclipse Cross PHEV getur dregið 1.5 tonn, er með lyklalausu aðgengi, hraðastilli, hita í stýri, bakkmyndavél, þreytuviðvörun, akreinavara o.fl. Verð frá 6.390.000 kr. Bæði dýr og menn nýta tækifærið um leið og ský dregur frá sólu til að njóta útivistar. Landsmenn hafa hins vegar fáa blíðviðrisdaga fengið í sumar. Að sögn veðurfræðings eru þó breytingar í kort­ unum í ágúst með stöðugra sumarveðri á Íslandi en verið hefur í júlí. SJÁ SÍÐU 2 FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.