Fréttablaðið - 22.07.2022, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 22.07.2022, Blaðsíða 13
KYNN INGARBLAÐ ALLT FÖSTUDAGUR 22. júlí 2022 Afskorin blóm eru í miklu uppáhaldi hjá listakonunni Margréti. Hér hefur hún sett fallegan bleikan vönd í vasa. MYND/MÓHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR Það er alltaf gaman að koma í Viðey. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA jme@frettabladid.is Sögukonan og umhverfis- og þjóðfræðingurinn Björk Bjarna- dóttir mun leiða gesti um Viðey í skemmtilegri náttúrugöngu með þjóðsögum á morgun milli klukkan 12.15 og 15.30. Fjölbreytt saga eyjunnar fléttast einnig inn í gönguferðina. Á göngunni segir Björk frá plöntu- lífinu í eyjunni, nytjum þeirra, lækningamætti og tengingu þeirra við þjóðtrúna. Fuglalífið verður einnig til skoðunar. Með hafið allt um lykjandi er kjörið tækifæri að segja frá þjóðsagnaverum eins og marbendlum, margýgjum, haf- mönnum, hafströmbum og öðrum verum sem halda til í hafinu. Þá verður spáð í uppruna huldufólks og gestir heyra af samskiptum Magnúsar Stephensen konferenz- ráðs og huldukonu einnar. Ganga fyrir öll Gangan er jafnt fyrir börn og full- orðna. Siglt verður stundvíslega frá Skarfabakka klukkan 12.15. Þátttaka í göngunni er gestum að kostnaðarlausu. Gjald í ferjuna fram og til baka er 1.950 krónur fyrir fullorðna og 975 fyrir börn 7–17 ára í fylgd fullorðinna. Börn 6 ára og yngri sigla frítt. Hand- hafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og handhafar Gestakortsins (Citycard.is) sigla frítt. Nánari upp- lýsingar um aðgengi og fleira er að finna á Facebook-viðburðinum Þjóðsögur fyrir börn í Viðey. n Þjóðsögur í Viðey sjofn@frettabladid.is Margrét er fædd og uppalin á Akureyri umvafin yndislegri fjöl- skyldu, eins og hún segir sjálf frá. „Við erum sex systkinin og erum mjög samrýmd og náin. Maðurinn minn heitir Guðmundur Árnason og við eigum eina dóttur, Móheiði. Fyrir margt löngu lærði ég leirlist í Danmörku þar sem ég dvaldi í sex ár og það hafði vissulega mikil áhrif á mig. Ég kom heim til Akureyrar aftur 25 ára og hef starfað við leirlistina síðan á mínu verkstæði sem ég rek í Gránufélags- götu 48 þar sem ég er einnig með sölugallerí. Ég hef unnið mikið eftir pönt- unum og oft undir mikilli tíma- pressu en nú ætla ég að hætta að taka pantanir og gefa sjálfri mér aukið svigrúm til þess að skapa, vinna að sýningum og ferðast,“ segir Margrét dreymin á svip. Húsið hefur tilfinningalegt gildi Húsið í Kotárgerði sem Margrét og eiginmaður hennar eiga og búa í í dag er reisulegt og fallegt með stór- fenglegu útsýni sem lætur engan ósnortinn. Margrét segir það enga tilviljun að þau hjónin hafi fjárfest í þessu húsi og hún tengist því til- finningaböndum. „Ég ólst upp í húsi með miklu útsýni til norðurs og við fjöl- skyldan áttum svo margar góðar stundir á fallegum sumarkvöldum þegar við fylgdumst með mið- nætursólinni. Það var hefð á mínu bernskuheimili að hafa kvöldkaffi, mamma bakaði iðulega pönnu- kökur og gerði kakó og við elsk- uðum þessi löngu sumarkvöld. Eftir að ég flutti að heiman sakn- aði ég alltaf þessa útsýnis svo það var mér sérlega kært þegar okkur bauðst að kaupa okkar núverandi hús fyrir tíu árum, þar sem útsýnið er eins og það sem ég ólst upp við á mínum bernskudögum. Húsið er teiknað af föður mínum fyrir rúmum 50 árum svo það gefur því svo sannarlega mikið gildi í mínum huga.“ Margrét segir Listrænt heimili umvafið hlýju Leirlistakonan Margrét Jónsdóttir býr á einstak- lega fallegum stað á Akureyri í húsi sem er henni afar kært með útsýni eins og hún hafði á bernsku- árunum. Heimili hennar er listrænt og skapandi en um leið afslappandi, umvafið hlýju og ást. B Ä S T A I T E S T Bäst-i-Test 2022.s e BESTA SÓLARVÖRNIN 7 ár Í RÖÐ Fæst í Apótekum, Hagkaup, Fríhöfninni og víðar | nánar á evy.is og celsus.is VATNASVÆÐI UM ALLT LAND 36 FYLGIRIT VEIÐIKORTSINS 18. árgangur - Kr. 8.900 - frelsi til að veiða! 00000 Aðeins 8.900 Frelsi til að veiða

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.