Fréttablaðið - 06.08.2022, Side 18
Ég kom
fyrst út
sem tví-
kyn-
hneigður
en ég held
að það hafi
bara verið
til að lina
aðeins
höggið
fyrir mig
og fjöl-
skylduna
mína.
Patti
Patti, Binni, Bassi, Gunnar og
Sæmundur hafa slegið í gegn
í raunveruleikaþáttunum
Æði. Þeir verða með vagn í
Pride-göngunni sem fer fram
í dag og eru sérlega spenntir.
Allir eru þeir sammála um að
Ísland sé ákjósanlegur staður
fyrir hinsegin fólk en að alltaf
megi gera betur.
Pat rek u r Ja ime, Bassi
Maraj, Binni Glee, Gunn-
ar Skírnir og Sæmundur
eru á aldrinum 21-24 ára
og eru skærustu raunveru-
leikasjónvarpsstjörnur landsins.
Strákarnir hafa slegið í gegn í sjón-
varpsþáttunum Æði og hafa þætt-
irnir breytt lífi þeirra.
Patti og Binni hafa verið vinir
síðan þeir voru tíu ára en báðir
eru þeir frá Akureyri. Fyrir norðan
kynntust þeir Gunnari og Sæmundi
en Bassi er alinn upp í Reykjavík.
Æðistrákarnir verða með vagn í
Gleðigöngunni sem fram fer í dag
og eru þeir mjög spenntir.
„Ég hef aldrei áður farið á Pride
og er ógeðslega spenntur. Það er
fullkomið að það er bara fólk sem
sér um vagninn fyrir okkur svo
við þurfum ekki að hafa mikið
fyrir þessu – ég ætla bara að standa
þarna, vera fabjúlus og veifa,“ segir
Patti.
„Ég hef aldrei farið á Pride og ég
hlakka mjög mikið til, mér finnst
æði að Ísland tileinki hinsegin fólki
heila viku. Við erum komin langt
með baráttu hinsegin fólks að mínu
mati en það er alltaf hægt að gera
betur og auðvitað á samfélagið að
taka þátt í þeim breytingum,“ segir
Sæmundur og Gunnar, tvíbura-
bróðir hans, tekur í sama streng.
„Ég fór á mitt fyrsta Pride árið
2019 og það var eitt af því skemmti-
legasta sem ég hef upplifað. Það er
svo gaman að halda upp á eitthvað
sem maður var einu sinni með mjög
mikla skömm yfir. Maður er svo
frjáls á Pride og finnur svo mikla
ást og umhyggju, það er æði,“ segir
Binni.
Bassi hefur aldrei farið á Pride
í fullum skrúða en hann átti lag
hátíðarinnar á síðasta ári þegar
hún var haldin með afar smáu sniði
vegna Covid. Í ár hafa strákarnir
gert sitt eigið Pride-lag og mun það
hljóma á vagninum þeirra. „Þetta er
náttúrlega ekki official Pride lagið
en þetta er Bitch-Pride lagið og
það er geggjað,“ segir Bassi og hlær
sínum smitandi hlátri.
Komu ungir út úr skápnum
Æðistrákarnir eru allir samkyn-
hneigðir og segjast þeir allir hafa
upplifað einhverja fordóma vegna
kynhneigðar sinnar í gegnum
tíðina. En hvenær komuð þið út úr
skápnum og hvernig var sú upp-
lifun?
Binni: „Ég var 16 ára, þetta var
árið 2015. Ég kom fyrst út fyrir vin-
konu minni í gegnum Skype en
hún spurði mig hvort ég væri sam-
kynhneigður og ég hugsaði bara; „á
ég að segja henni?“ Ég hafði aldrei
fengið þessa spurningu áður en
hafði í rauninni alltaf vitað að ég
væri samkynhneigður, alveg frá
því að ég var bara í fyrsta bekk og
ég ákvað að segja henni það. Mér
fannst það mjög erfitt en leið svo
vel eftir á.“
Gunnar: „Ég fattaði að ég væri
samkynhneigður þegar ég var í
áttunda bekk í grunnskóla og var í
mikilli afneitun lengi. Síðustu tvö
árin í grunnskóla klæddist ég bara
í hettupeysum og gráum buxum
til að passa inn í hópinn, en það
gekk ekkert svaka vel. Ég kom út úr
skápnum þegar ég var 15 ára á fyrsta
ári í framhaldsskóla og Sæmundur á
sama tíma, og kom það fáum á óvart
að við værum samkynhneigðir.“
Gunnar: „Ég fékk mjög góð við-
brögð frá fjölskyldunni minni og
það kom þeim ekki á óvart. Þau biðu
bara eftir að við værum tilbúnir og
gæti ég ekki beðið um betri fjöl-
skyldu. Þau styðja okkur í öllu sem
við gerum.“
Sæmundur: „Við höfum alltaf
gert allt saman og það er bara æðis-
legt því ég þurfti ekki að ganga í
gegnum þetta einn.“
Sæmundur: „Á þeim tíma sem
við komum út vorum við nýbúnir
að kynnast tveimur vinkonum
sem hjálpuðu okkur mjög mikið að
vera við sjálfir og klæðast eins og
við viljum en ekki bara í jogging og
hettupeysum.“
Patti: „Ég var líka fimmtán ára,
ég kom fyrst út sem tvíkynhneigður
en ég held að það hafi bara verið til
að lina aðeins höggið fyrir mig og
fjölskylduna mína. Ég man þetta
svo vel, ég var að baka rice crispies-
kökur með mömmu og sagðist vera
bi og vera skotinn í strák. Hún tók
þessu mjög vel en vissi alveg að ég
Strákarnir
í Æði eru að upplifa
drauminn
Sæmundur, Gunnar, Binni, Bassi og Patti hafa verið góðir vinir í mörg ár og elska að vinna saman. Þeir voru allir ungir þegar þeir komu út úr skápnum og allir hafa upplifað fordóma einhvern tímann á
lífsleiðinni vegna kynhneigðar sinnar. Þeir verða með vagn á Pride í dag og segja að alltaf sé hægt að gera betur þegar kemur að réttindabaráttu hinsegin fólks. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
væri hommi áður en ég sagði henni
það.“
Bassi: „Það var aðeins meiri
æsingur hjá mér. Ég skipti á þessum
upplýsingum við mömmu fyrir
tóbak. Hún bankaði á hurðina hjá
mér og sagði mér að koma bara út úr
skápnum, þá myndi mér líða miklu
betur. Ég samþykkti það og hún
keypti fyrir mig tóbak í nokkrar
vikur.“
Bassi: „En það að koma út úr
skápnum er auðvitað fyrir þann
sem er að koma út en ekki þann sem
fær að heyra af því. Þetta snýst um
að þora loksins að segja fólki hver
þú ert.“
Fordómar
„Ég fann mikið fyrir fordómum
þegar ég byrjaði með opið Snap-
chat árið 2016. Þá fékk ég leiðinleg
skilaboð og það var verið að nota
orðið „hommi“ á niðrandi hátt um
mig. Ég tók því mjög illa fyrst því ég
hafði aldrei upplifað svona leiðindi í
lífinu fyrr en ég byrjaði á samfélags-
miðlum,“ segir Binni. „Ég fann samt
og vissi að það væri mjög mikilvægt
að ég hefði byrjað á Snapchat og
opnað mig um samkynhneigð og
að það væri í lagi að mála sig og allt
það,“ bætir hann við.
„Ég hef upplifað svolitla fordóma
í gegnum árin. Aðallega þegar við
vorum yngri, þá voru krakkar alltaf
að kalla okkur homma, stelpur,
fagga og ýmislegt f leira og það
hafði mikil áhrif á mig þegar ég var
að finna sjálfan mig,“ segir Gunnar.
Sæmundur segist einnig hafa upp-
lifað fordóma, mestir hafi þeir verið
þegar hann var lítill en að í raun og
veru hafi þeir ekki haft mikil áhrif
á hann. „Þegar ég var yngri var oft
verið að kalla okkur nöfnum af því
við vorum svo kvenlegir og það
var pínu leiðinlegt. En í dag hef ég
ekki fundið fyrir fordómum í mjög
langan tíma og fólk er yfirleitt bara
mjög næs.“
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
18 Helgin 6. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ