Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 22
Í dragi fær
fólk nefni-
lega tæki-
færi til að
tjá sig á
annan hátt
en það er
vant.
Skapa sinn
eigin
karakter og
haga sér
eins og það
vill.
Kvikmyndagerðarkonan
Monika Konarzewska fæddist
í litlu þorpi í Póllandi og ólst
upp í trúuðu samfélagi þar
sem ríktu miklir fordómar
í garð hinsegin fólks. Kvik-
mynd hennar, No Makeup,
verður sýnd á Gauknum
annað kvöld en um er að
ræða heimildarmynd þar sem
skyggnst er inn í dragsenuna
á Íslandi.
Öll þau sem fjallað er um
í myndinni byrjuðu í
dragi af ólíkum ástæð-
um,“ segir kvikmynda-
gerðarkonan Monika
Konarzewska. Heimildarmynd
hennar, No Makeup, sem fjallar um
dragsenuna á Íslandi, verður sýnd á
Gauknum annað kvöld.
„Fyrir þau öll er drag leið til að
tjá sig en fyrir sum er drag vinna,
fyrir önnur er það þerapía og fyrir
enn önnur er það hrein og bein
skemmtun,“ segir Monika.
Drag er það kallað þegar fólk
klæðist fötum og sýnir látbragð sem
talið er tengjast gagnstæðu kyni
þess á einhvers konar sýningu eða
gjörningi. Monika hefur sjálf einu
sinni farið í drag og segir það hafa
verið virkilega skemmtilegt.
„Ég varð að prófa,“ segir hún.
„Einn listamaðurinn í myndinni
hvatti mig til þess og það var geggj-
að. Ég varð svo ólík sjálfri mér og
það varð til þess að ég leyfði mér
einhvern veginn að gera allt aðra
hluti en ég er vön,“ bætir Monika
við.
„Í dragi fær fólk nefnilega tæki-
færi til að tjá sig á annan hátt en það
er vant. Skapa sinn eigin karakter og
haga sér eins og það vill. Fara á móti
normum og gildum samfélagsins,“
segir Monika.
„Fólk sem fer í drag er auðvitað
bara að lifa sínu lífi eins og öll önnur
en í draginu fær það tækifæri til að
vera hver sem það vill, skapa sér
þennan karakter sem er það sjálft
en samt ekki. Lifa fantasíulífinu sem
listamaðurinn skapar.“
Monika segir að í gegnum tíðina
hafi fordómar beinst að dragi og
fólki sem stundar það. Skýringuna
telur hún vera fáfræði og ástæðuna
fyrir því að hún kaus að fjalla um
drag í myndinni segir hún vera
þá að koma upplýsingum til sem
flestra.
„Ég er fædd og uppalin í Póllandi
sem er kaþólskt land og þar er trú
stór hluti af samfélaginu,“ segir
Monika. „Í trúnni er fólk sannfært
um það hvernig fólk á að vera og
hvernig það á ekki að vera, fjöl-
breytileikinn er ekki mikill. Öll eiga
að trúa á sama guðinn og hafa sömu
kynhneigð. Annaðhvort ertu góð/ur
eða vond/ur og það er að mínu mati
af því að fólk veit ekki betur og leitar
sér ekki upplýsinga,“ bætir hún við.
„Auðvitað þekki ég fullt af fólki
sem er trúað og fagnar fjölbreyti-
leikanum en hitt er algengara, að
ef þú ert öðruvísi þá sé reynt að
breyta því eða bjarga. Við vitum
hvernig þetta hefur verið í gegnum
tíðina, samkynhneigð hefur verið
litin hornauga og það sama má
segja um hinseginleikann almennt,
Drag er leið
til að tjá sig
Monika Konar-
zewska ólst upp
í Póllandi en bjó
á Íslandi í tvö ár.
Hún segir að hér
á landi sé greini-
legur munur
milli landanna
þegar kemur að
réttindum hin-
segin fólks.
MYND/KRYSTIAN
TRZPIL
Myndin verður sýnd á Gauknum annað kvöld en hér má sjá eina drottning-
una labba yfir Tryggvagötuna á leið sinni á Gaukinn. MYND/AÐSEND
Dragdrottningin Faye Knús er ein þeirra sem fjallað er um í heimildarmynd-
inni No Makeup. Hún hefur slegið í gegn í hér á landi. MYND/AÐSEND
það þarf að fræða fólk um það
hvernig raunveruleikinn er,“ segir
Monika.
Öll þau sem koma fram í mynd-
inni eru innflytjendur sem búa á
Íslandi og eru hluti af dragsenunni
hér. „Mig langaði að sýna það að til
Íslands kemur fólk frá öllum heims-
hornum til þess að fá að vera það
sjálft í friði,“ útskýrir Monika.
Hún segir að fyrir mörg þau sem
koma frá löndum þar sem réttindi
hinsegin fólks séu ekki í hávegum
höfð sé léttir að vera á Íslandi. „Auð-
vitað er það hér eins og alls staðar
annars staðar, hér er fordómafullt
fólk en munurinn hér og til dæmis
í Póllandi er að hér hefur hinsegin
fólk réttindi og stjórnvöld beita sér
fyrir réttindum þeirra.“
Monika bjó á Íslandi í tvö ár og
segist vel geta hugsað sér að f lytja
hingað aftur. „Mér var tekið ótrú-
lega vel hérna og upplifði sjálf það
sem ég sagði hér að framan, ég gat
verið frjáls,“ segir hún.
„Á Íslandi virðist vera pláss fyrir
nánast öll þó að alltaf sé hægt að
gera betur og ég gleymi því aldrei
þegar ég sá Pride á Íslandi í fyrsta
sinn. Ég grét þegar ég sá allt fólkið
sem var komið til að sýna hinsegin-
leikanum samstöðu. Það eru ótrú-
leg forréttindi að fá að búa á svona
stað,“ segir Monika.
Hún segist vona að þrátt fyrir það
bakslag sem hefur orðið víða þegar
kemur að réttindum hinsegin fólks
þá sé hatrið að dvína. „Ég held og
vona að með komandi kynslóðum
breytist sá hugsunarháttur að kyn
eða kynhneigð skipti einhverju
máli, hatrið þarf að deyja út af því
að það er ekki lausnin, fjölbreyti-
leiki er lausnin,“ segir Monika.
„Hlýnun jarðar er til að mynda
raunverulegt vandamál sem við
þurfum að laga öll saman, það
getum við ekki gert ef þar fá ekki
öll pláss. Heimurinn er að minnka
og við erum að færast nær og nær
hvert öðru og á endanum þurfum
við jafnvel að sameinast á minni
landsvæðum. Við getum ekki gert
það full af hatri og fordómum,“ segir
Monika.
No Makeup er sýnd á Gauknum
í Tryggvagötu klukkan 20 annað
kvöld. n
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
22 Helgin 6. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ