Fréttablaðið - 06.08.2022, Page 30
Umsjón með starfinu hafa Garðar Ó.
Ágústsson (gardar@vinnvinn.is) og
Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is).
Lögmannsstofan Fortis sinnir margs
konar lögmannsþjónustu fyrir einstaklinga,
fyrirtæki, félagasamtök og opinbera aðila.
Lögmannsstofan hefur m.a. sérhæft sig í
að sinna slysa- og skaðabótamálum auk
þess að sinna fjölda annarra fjölbreyttra
og krefjandi verkefna.
Lögmannsstofan Fortis óskar eftir að ráða löglærðan fulltrúa til starfa.
Starfið felur í sér hefðbundin lögmannsstörf sem felast m.a. í samskiptum og ráðgjöf
við viðskiptavini stofunnar, skjalagerð, eftirfylgd mála fyrir dómstólum, málflutningi o.fl.
Um er að ræða fullt starf í dagvinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistara- eða fullnaðarpróf í lögfræði skilyrði.
• Málflutningsréttindi æskileg.
• Þekking á slysa- og skaðabótamálum æskileg.
• Þekking á sviði vinnuréttar, sifja- og erfðaréttar, stjórnsýsluréttar, kröfuréttar,
samningaréttar og/eða félagaréttar er kostur.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Frumkvæði við úrlausn verkefna og geta til að takast á við ábyrgð í starfi.
• Góð færni til að setja fram mál í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku.
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Löglærður fulltrúi
FORSTJÓRI ORF LÍFTÆKNI
Nánari upplýsingar um félagið: orfgenetics.com I ORF Líftækni, Víkurhvarf 7 Kópavogi.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Hæfniskröfur:
Öflugur leiðtogi með getu til að hrífa fólk með sér í átt að settum markmiðum
Mótun og innleiðing stefnu og tryggja skýra forgangsröðun
Ábyrgð á daglegum rekstri, áætlanagerð og fjármögnun
Ábyrgð á samningagerð við lykilbirgja- og viðskiptavini
Tryggja þekkingu í fyrirtækinu sem styður við nýsköpun og árangur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Stjórnunarreynsla
Reynsla af stjórnun í nýsköpunarfyrirtæki kostur
Reynsla af alþjóðlegu viðskiptaumhverfi kostur
Reynsla af samningagerð
Frumkvæði, metnaður til að ná árangri og framúrskarandi samskiptahæfni
Mjög gott vald á ensku í ræðu og riti
Við leitum að kraftmiklum forstjóra til að leiða
áframhaldandi uppbyggingu félagsins inn á nýja
markaði
Umsóknarfrestur er til og með 22. ágúst næstkomandi
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Sótt er um starfið á vinnvinn.is
Umsjón með starfinu hafa hilmar@vinnvinn.is og gardar@vinnvinn.is
Í byrjun árs var ORF Líftækni skipt upp í tvö félög: BIOEFFECT með áherslu á
húðvörur og ORF Líftækni með áherslu á þróun, framleiðslu og sölu vaxtaþátta.
ORF Líftækni er leiðandi fyrirtæki í plöntulíftækni. Hugvit og nýsköpun félagsins
byggir á þróun þess á tækni til að framleiða sérvirk prótein, svokallaða vaxtaþætti,
með erfðatækni í byggfræjum.
Síðastliðin ár hefur ORF Líftækni lagt áherslu á framleiðslu á vaxtaþáttum fyrir
húðvörur BIOEFFECT og stofnfrumurannsóknir.
Nýjasta vörulína félagsins er MESOkine, dýravaxtaþættir sem eru sérstaklega þróaðir
fyrir framleiðslu á stofnfrumuræktuðu kjöti, vistkjöti, sem talið er að muni gjörbylta
matvælaframleiðslu framtíðarinnar. Þannig mun ORF Líftækni taka þátt í að leysa
einn helsta vanda heimsins sem felst í afleiðingum hefðbundinnar kjötframleiðslu á
umhverfi og samfélag.
Árið 2020 hlaut ORF Líftækni 2,5 milljóna evra styrk frá EU Horizon sem nýttur hefur
verið í þróun MESOkine vörulínunnar. Næstu skref í framþróun félagsins eru að
stækka og efla teymið, hefja uppskölun á framleiðslukerfi félagins og setja aukinn
kraft í markaðssetningu og sölu á MESOkine á erlendum mörkuðum.
Við leitum að kraftmiklum forstjóra til að leiða þessa spennandi nýju vegferð með
okkur.
Höfuðstöðvar félagsins eru í Kópavogi en öll ræktun á byggi fer fram í vistvænu
gróðurhúsi ORF Líftækni í Grindavík.
4 ATVINNUBLAÐIÐ 6. ágúst 2022 LAUGARDAGUR