Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 38
GG Verk er rótgróið og framsækið byggingafyrirtæki sem byggir á áratuga reynslu.
Hjá okkur starfar öflugur hópur fólks við að byggja upp vönduð mannvirki innan
tilskilins tíma, af framúrskarandi metnaði og umhyggju fyrir fólki og umhverfi.
Við erum hreykin af fólkinu okkar, hárri starfsánægju og fjölskylduvænum áherslum.
Við hvetjum umsækjendur af öllum kynjum til að senda
okkur ferilskrá og kynningabréf á atvinna@ggverk.is.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst en umsóknir verða þó
skoðaðar jafnóðum og þær berast.
ggverk.is
Vegna aukinna umsvifa og traustrar verkefnastöðu óskar
GG Verk eftir að ráða fleiri metnaðarfulla og drífandi
VERKEFNASTJÓRA | VERKSTJÓRA | SMIÐI
Leitað er að áreiðanlegum einstaklingum
sem setja fólk í fyrsta sæti og sýna auk
þess fyrirhyggju og ábyrgð í verki.
Við hjá Landsvirkjun leggjum okkur fram um að hámarka verðmæti
þeirra endurnýjanlegu orkulinda sem fyrirtækinu er trúað fyrir. Við leitum
nú að úrræðagóðum og drífandi einstaklingi til að ganga til liðs við
innkaupateymið okkar sem starfar með hagkvæmni og vistvæn innkaup að
leiðarljósi. Teymið vinnur þétt saman, en starfar líka með starfsfólki vítt og
breitt um landið og er því hægt að sinna starfinu frá ýmsum starfsstöðvum.
Sérfræðingur í innkaupum sinnir fjölbreyttum og krefjandi verkefnum.
Í starfinu felst meðal annars að veita samstarfsfólki ráðgjöf og leiða
framkvæmd innkaupa.
Í teyminu tekur þú þátt í:
– að leiða verðkannanir, útboð og markaðskannanir
– að aðstoða við gerð samninga og framkvæmd innkaupa
– að bæta skilvirkni og hagkvæmni við innkaup
– áframhaldandi þróun á stafrænum ferlum innkaupa
Hæfni og reynsla:
– háskólamenntun sem nýtist í starfi
– framúrskarandi samskiptahæfni og vilji til að vinna í teymi
– lausnamiðuð og gagnrýnin hugsun
– frumkvæði, metnaður og drifkraftur
– skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
– reynsla af innkaupum, gerð útboðsgagna, rekstri samninga og
samningagerð er kostur
– þekking á samningsskilmálum eins og IST-30 og FIDIC er kostur
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst
Sótt er um starfið á landsvirkjun.is/laus-storf
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Rut Þráinsdóttir
anna.rut.thrainsdottir@landsvirkjun.is
Starf
Ert þú samningaséní?
Þarftu að ráða starfsmann?
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.