Fréttablaðið - 06.08.2022, Síða 41
Forstjóri
Menntamála-
stofnunar
Mennta- og barnamálaráðuneyti
auglýsir laust til umsóknar embætti
forstjóra Menntamálastofnunar.
Stofnunin starfar samkvæmt lögum
um Menntamálastofnun nr. 91/2015,
þar sem kveðið er á um hlutverk og
verkefni hennar.
Mennta- og barnamálaráðherra er með áform
um tilfærslu verkefna milli ráðuneytis og
Menntamálastofnunar með það að markmiði
að skýra betur verkaskiptingu milli ráðu-
neytisins og stofnunarinnar þar sem stefnt
verði að því að Menntamálastofnun verði öflug
þjónustustofnun við menntastofnanir á leik-,
grunn- og framhaldsskólastigi. Það verður
verkefni nýs forstjóra, í góðu samstarfi við
mennta- og barnamálaráðuneytið og starfsfólk
Menntamálastofnunar, að setja fram og útfæra
tillögur um leiðir að því marki.
Framundan er spennandi og viðamikið
verkefni við að móta breytt hlutverk Mennta-
málastofnunar og nýtt skipurit og því leitum
við að stjórnendum með brennandi áhuga og
framúrskarandi hæfni í að leiða árangursríkar
breytingar.
Leitað er að öflugum einstaklingi til krefjandi
stjórnunar- og leiðtogastarfa þar sem reynir á
samskiptahæfni, frumkvæði, forystuhæfileika og
skipulögð vinnubrögð. Farsæl reynsla af
breytingarstjórnun og afburða færni í að móta og
innleiða framtíðarsýn er nauðsynleg ásamt
framúrskarandi hæfni í mannlegum samskipum.
Forstjóri þarf að hafa þekkingu og getu til að leiða
öflugan hóp starfsmanna til árangurs hvað varðar
gæði þjónustu og þekkingu á sviði menntamála.
Helstu verkefni
• Ábyrgð á að Menntamálastofnun starfi í takti
við stefnu mennta- og barnamálaráðuneytis
í menntamálum.
• Gott samstarf og samvinna við mennta-
og barnamálaráðuneyti, m.a. við forgangsröðun
verkefna.
• Ábyrgð á faglegu starfi stofnunarinnar
og farsælli stjórnun.
• Leiða og styðja öflugt starfsfólk til árangurs.
• Ábyrgð á rekstri stofnunarinnar og því að hún
uppfylli stjórnsýslulegar skyldur sínar.
• Góð og jákvæð samskipti og samstarf við hagaðila
og aðra innlenda og erlenda aðila sem koma að
verkefnum stofnunarinnar.
Allar nánari upplýsingar um starfið má finna á starfatorg.is
Umsjón með starfinu hefur Erna Kristín Blöndal,
ráðuneytisstjóri í mennta- og barnamálaráðuneyti.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 08.08.2022.