Fréttablaðið - 06.08.2022, Qupperneq 48
GÆÐA- OG UPPLÝSINGAÖRYGGISSTJÓRI
VERITAS leitar að öflugum starfsmanni til að sinna starfi gæða- og upplýsingaöryggisstjóra
fyrirtækisins. Næsti yfirmaður gæða- og upplýsingaöryggisstjóra er fjármálastjóri Veritas.
Gæða- og upplýsingaöryggisstjóri starfar í mikilli samvinnu við upplýsingatæknideild Veritas.
Hæfni
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð
vinnubrögð
• Lausnamiðuð hugsun, jákvæðni og lipurð í
mannlegum samskiptum
• Yfirsýn og geta til að vinna undir álagi
• Áhugi á gæða- og upplýsingaöryggismálum
Þekking og reynsla
• Þekking og reynsla af rekstri gæðakerfa og
vottana æskileg
• Þekking á ISO 27001 er æskileg
• Reynsla á sviði verkefnastýringar er kostur
• Góð tækniþekking og geta til að setja sig inn í
ný kerfi og umhverfi
• Þekking á SharePoint er kostur
Starfssvið
• Ábyrgð og umsjón með rekstri og viðhaldi á
gæðamálum og upplýsingaöryggi Veritas sem
er vottað með ISO 27001
• Aðkoma að innri og ytri úttektum
• Breytingastjórnun
• Umsjón með gæðahandbók í SharePoint
• Þjálfun starfsmanna í upplýsingaöryggi
• Vinna að áhættumati innan Veritas
• Gildingar á tölvukerfum
• Önnur tilfallandi verkefni á sviði gæðamála og
upplýsingaöryggis
Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningarvef Veritas, www.veritas.is. Umsóknum skal fylgja
starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur
fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Veigar Pétursson, starfsmannastjóri, petur@veritas.is.
Veritas sérhæfir sig í rekstri fyrirtækja á sviði heilbrigðisþjónustu. Veritas er móðurfélag fyrirtækjanna Artasan,
Distica, MEDOR, Stoð og Vistor. Fyrirtækið er kjölfesta samstæðunnar og veitir þjónustu til dótturfyrirtækjanna svo
þau geti einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni. Nánar á www.veritas.is
UMSÓKNARFRESTUR ER
TIL OG MEÐ 14. ÁGÚST
VILT ÞÚ GANGA TIL LIÐS VIÐ
ÖFLUGAN HÓP LÖGFRÆÐINGA
PERSÓNUVERNDAR?
Persónuvernd leitar að drífandi og kraftmiklum lögfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og
krefjandi verkefni í samhentu teymi stofnunarinnar. Fjölbreytni þeirra mála sem eru til meðferðar hjá
Persónuvernd er mikil – allt frá rafrænni vöktun á vinnustöðum til álitamála sem tengjast vísindarannsóknum
á heilbrigðissviði – og varða þau oft grundvallaratriði í íslensku samfélagi. Mikið er lagt upp úr frumkvæði,
ábyrgð og getu starfsmanna til að sinna krefjandi verkefnum í öflugu teymi lögfræðinga stofnunarinnar.
Persónuvernd er fjölskylduvænn vinnustaður.
Um 100% starf er að ræða. Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Persónuvernd er sjálfstætt stjórnvald sem annast eftirlit með framkvæmd laga nr. 90/2018 um persónuvernd
og vinnslu persónuupplýsinga, laga nr. 75/2019 um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi og reglna
settra samkvæmt þeim.
FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ
Umsóknarfrestur er til 9. ágúst 2022. Umsóknir skulu sendar á postur@personuvernd.is. Með umsókn skal
fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig
viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi ríkisins við viðkomandi
stéttarfélag. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Vigdís Eva Líndal, sviðsstjóri hjá Persónuvernd, í síma 510-9600.
Umsóknir munu gilda í sex mánuði frá móttöku þeirra, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
HELSTU VERKEFNI:
• Hefðbundin afgreiðsla og meðferð mála
sem heyra undir Persónuvernd, m.a. vinna
að úrskurðum í ágreiningsmálum, ákvörðunum
í tengslum við úttektir og frumkvæðismál,
umsögnum og álitum
• Verkefni tengd erlendu samstarfi, einkum
í tengslum við þátttöku Persónuverndar í
Evrópska persónuverndarráðinu (EDPB) og málum
er varða vinnslu persónuupplýsinga yfir landamæri
• Önnur lögfræðistörf samkvæmt ákvörðun
sviðsstjóra eða forstjóra
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
• Þekking á persónuverndarlöggjöfinni er kostur
• Reynsla og/eða þekking á sviði stjórnsýsluréttar
er kostur
• Mikil áhersla er lögð á gott vald á íslensku
og ensku, auk færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Þekking á einu norðurlandamáli er kostur
• Nákvæmni, frumkvæði og ögun í vinnubrögðum
• Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum
samskiptum er skilyrði
Við
leiðum
fólk
saman