Skessuhorn - 11.08.2021, Side 1
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 31-32. tbl. 24. árg. 11. ágúst 2021 - kr. 950 í lausasölu
ALLA LEIÐ
Vegabréf
sími 437-1600
Landnámssetrið
Borgarnesi
Skemmtilegur og
lifandi vinnustaður
Óskum eftir starfsfólki í
hlutastörf, aðallega um
kvöld og helgar
Hægt er að senda umsóknir á
landnam@landnam.is
Upplýsingar í síma 437-1600
Áslaug eða Sirry
Stallbræðurnir Ragnar Þór Ing-
ólfsson formaður VR og Vilhjálm-
ur Birgisson formaður VLFA hafa
á síðustu dögum hvor um sig ritað
harðorðar greinar um þann mikla
hagnað sem viðskiptabankarnir
þrír hafa skilað. Á færslu á Facebo-
ok síðu sinni skrifaði Vilhjálmur 4.
ágúst síðastliðinn að frá fjármála-
hruninu, eða frá 2009, hafi Lands-
bankinn skilað 334,1 milljarða
króna hreinum hagnaði en Arion
banki og Íslandsbanki 268 millj-
örðum hvor banki. „Ég verð að lýsa
undrun minni á þeim grímulausa
hagnaði sem viðskiptabankarnir
þrír hafa skilað frá hruni en sam-
tals nemur hagnaðurinn hjá þeim
870 milljörðum og ef tekið er til-
lit til hagnaðarins fyrstu sex mán-
uðina á þessu ári nemur hann yfir
900 milljörðum. Hvernig má vera
að bankar sem hafa það hlutverk
að lána og geyma fjármuni lands-
manna skuli skila slíkum ofsahagn-
aði,“ spyr Vilhjálmur og bætir við:
„Það hlýtur að blasa við enn og aft-
ur að bankakerfið er að níðast á sín-
um viðskiptamönnum með of háum
vöxtum, verðtryggingu og himin-
háum þjónustugjöldum því það er
og getur ekki verið eðlilegt að með-
altalshagnaður viðskiptabankanna
sé 24 milljarðar króna á ári.“
Ragnar Þór Ingólfsson formað-
ur VR tekur í sama streng í grein
sem hann ritar á Vísi 6. ágúst ásamt
Ásthildi Lóu Þórsdóttur formanni
Hagsmunasamtaka heimilanna.
„Þrátt fyrir að bankarnir hafi stöð-
ugt aukið álagningu og hirt ávinn-
ing af lækkun bankaskatts og stýri-
vaxta er fólkinu á gólfinu fækkað,
útibúum lokað, og þjónusta stór-
lega skert. Til að bæta gráu ofan á
svart er banki allra landsmanna að
reisa höfuðstöðvar, í mikilli óþökk
þjóðarinnar, á dýrasta byggingar-
reit landsins, sannkallaðan minnis-
varða um samfélagsmein. Áætlað er
að herlegheitin kosti litlar 12.000
milljónir hið minnsta. Á meðan
verkamenn blágrýtishjúpa höfuð-
stöðvarnar standa hundruð þús-
unda fermetra af hagkvæmu skrif-
stofurými tómt. Á sama tíma ríkir
kreppa á húsnæðismarkaði,“ segir
Ragnar.
Ragnar Þór og Ásthildur Lóa
minna jafnframt á í grein sinni að
fjármunir bankanna koma í raun frá
heimilunum, frá fólkinu í landinu,
með beinum og óbeinum hætti.
„Heimilin eru undirstaða þjóð-
félagsins því án þeirra væri ekki
þörf fyrir nein fyrirtæki, hvað þá
einhverja fjárfesta. Vaxtarstig bank-
anna er augljóslega óþarflega hátt
og það getur ekki talist eðlilegt að
ef svo fer sem horfir jafngildi hagn-
aður bankanna því að hver ein-
asti einstaklingur í 360.000 manna
þjóðfélagi leggi 200.000 krónur í
púkkið; á einu ári. Það er ansi margt
sem fjögurra manna fjölskylda gæti
gert fyrir 800.000 krónur,“ skrifuðu
Ragnar Þór og Ásthildur Lóa.
mm
Verkalýðsforingjum blöskrar
ofurhagnaður bankanna
Heyjað undir
hlíðum Stapans
Í hægviðrinu síðastliðinn sunnudag unnu
frístundabændur á Bjargi á Arnarstapa
við heyskap. Rökuðu saman og rúlluðu
heyinu af heimatúninu. Ferðamenn sem
voru margir staddir á útsýnispallinum við
höfnina fylgdust með og mynduðu milli
þess sem þeir dáðust af útsýninu yfir Arn-
arstapahöfn. Ljósm. mm
Aukinn sveigjanleiki
og betri kjör á bílalánum
arionbanki.is
Nú býður Arion banki allt að sjö ára bílalán. Aldur bíls og lánstími getur verið
fimmtán ár samanlagt. Við bjóðum líka lægstu vexti á bílalánum skv. aurbjorg.is.
Kynntu þér bílalán Arion banka