Skessuhorn - 11.08.2021, Side 12
mIðVIkudAguR 11. ÁgúST 202112
Á fundi sínum síðastliðinn föstudag
ræddi ríkisstjórnin áhersluatriði er
lúta að aðgerðum vegna nýjustu
bylgju Covid-19 hér á landi. „Brýn-
ast er að herða aðgerðir á landa-
mærum, styrkja innviði heilbrigðis-
kerfisins og bæta við örvunarbólu-
setningum vegna Covid-19,“ segir í
tilkynningu frá stjórnarráðinu. Nú-
verandi sóttvarnarreglur gilda til
föstudagsins 13. ágúst og var kynnt
á fundi ríkisstjórnar i gær að þær
verði framlengdar um tvær vikur til
viðbótar. Eftirtaldar aðgerðir voru
ákveðnar á fundi ríkisstjórnarinnar
síðastliðinn föstudag:
Aðgerðir á landamærum
Ákveðið var að bólusettir farþeg-
ar og þeir sem hafa vottorð um
fyrri sýkingu með tengsl við Ís-
land þurfi frá og með 16. ágúst að
fara í sýnatöku innan 48 klukku-
stunda frá komu til landsins. Áfram
eru börn fædd 2005 og síðar und-
anskilin þeirri reglu. Einstakling-
ar með tengsl við Ísland teljast; ís-
lenskir ríkisborgarar, einstakling-
ar búsettir á Íslandi, einstaklingar
með atvinnuleyfi á Íslandi og um-
sækjendur um atvinnuleyfi eða al-
þjóðlega vernd á Íslandi. umrædd-
ir farþegar munu ekki þurfa að sæta
sóttkví þar til niðurstaða úr sýna-
töku liggur fyrir. gert er ráð fyr-
ir að fólk fari annaðhvort í hrað-
apróf (antigen) eða PCR-próf, en
nánara fyrirkomulag verður unn-
ið í samráði við sóttvarnalækni. Þá
verður hægt að fara í sýnatöku ann-
aðhvort á landamærum eða á sýna-
tökustöð innan tímamarkanna og
verður sýnatakan gjaldfrjáls. Heim-
ilt verður að sekta þá einstaklinga
sem ekki fara í sýnatöku innan til-
tekins tíma.
Styrking innviða heil-
brigðiskerfisins
Nauðsynlegt er að styrkja heil-
brigðiskerfið til þess að takast á við
faraldurinn og aðra slíka faraldra til
lengri tíma. Vinna við slíka áætlun
er nú hafin í heilbrigðisráðuneyt-
inu. Nú þegar hefur verið gripið til
ýmissa aðgerða svo sem á Landspít-
ala. Þær aðgerðir sem þegar hefur
verið ráðist í eða eru í burðarliðun-
um eru eftirfarandi:
Mönnun
Forstöðumenn stofnana hafa kallað
heilbrigðisstarfsfólk úr sumarleyf-
um til þess að bregðast við auknum
fjölda innlaga í kjölfar smita. Jafn-
framt var bakvarðasveit heilbrigð-
isþjónustunnar endurvakin til þess
að bregðast við auknu álagi inn-
an heilbrigðiskerfisins og ákveðið
hefur verið að kalla til heilbrigðis-
starfsfólk sem nýlega hefur hafið
töku lífeyris. mikið álag hefur verið
á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis-
ins við sýnatökur þar sem þúsundir
sýna eru tekin hvern dag. Ákveðið
var að stofna sérstaka sýnatökusveit
þar sem fólk getur boðið sig fram
til aðstoðar við sýnatökur og geng-
ur mönnun vel.
Landspítali
Til stendur að opna fleiri gjör-
gæslurými á Landspítala auk þess
að breyta á nýtingu á Landakoti
og fjölga þar með hjúkrunarrým-
um, þ.m.t. endurhæfingarrýmum
og líknarrýmum. Tillögur eru jafn-
framt væntanlegar frá Landspítala
um styrkingu veiru- og sýklafræði-
deildar til framtíðar auk þess um
styrkingu á tækjabúnaði spítalans
til rannsókna. Þá er til skoðunar að
koma á fót sérstakri Covid-einingu
á Landspítala sem myndi starfa til
lengri tíma.
Hjúkrunarrými og
þjónusta við aldraða
gripið hefur verið til margvíslegra
aðgerða til þess að létta á Landspít-
ala og með því að bæta þjónustu
við aldraða. Búið er að tryggja 30
rými utan spítalans fyrir aldraða,
en frá og með þessari viku munu
Heilbrigðisstofnun Suðurlands og
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja taka
við sjúklingum frá Landspítala. Þá
mun Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands aðstoða Landspítala varðandi
mönnun fagfólks. Sjúkratrygging-
ar Íslands hafa hafið vinnu við gerð
samninga um endurhæfingarrými
fyrir aldraða, líknarrými, hjúkrun-
arrými og skammtímarými. Jafn-
framt er unnið að opnun tíu Covid-
rýma á höfuðborgarsvæðinu. Einn-
ig stendur til að gera breytingu á
reglugerð um færni- og heilsumat
til þess að liðka fyrir útskriftum af
Landspítala. Loks er til skoðun-
ar að lengja opnunartíma Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins á ein-
hverjum starfsstöðvum og auk þess
stendur til að ráða fleira fólk til
stofnunarinnar sem og í netspjall
Heilsuveru.
Bólusetningarátak
Hér á landi hefur náðst mjög góður
árangur í bólusetningu en til að efla
varnir gegn delta afbrigðinu eru
nú hafnar örvunarbólusetningar, í
samræmi við tillögu sóttvarnalækn-
is. Þeir hópar sem brýnast er að fái
örvunarbólusetningu eru:
Einstaklingar án sögu um Co-
vid-19/mótefni sem bólusettir voru
með Janssen bóluefni, en það eru
um 53.000 manns og er þegar hafin
bólusetning á þessum hópi.
Skjólstæðingar hjúkrunarheimila
og aðrir mjög viðkvæmir þjónustu-
þegar velferðarþjónustu (áður hóp-
ur 3) og verður þá farið inn á hjúkr-
unarheimilin og þeim boðin örvun-
arbólusetning sem vilja þiggja. um
14.000 manns er að ræða á landinu
öllu.
80 ára og eldri utan hjúkrunar-
heimila sem eru um 12.000 manns á
landsvísu og yrðu boðaðir miðlægt
út frá tímasetningu grunnbólusetn-
ingar eða á opna daga.
mjög ónæmisbældir einstakling-
ar með áframhaldandi ónæmisbæl-
ingu og yrðu boðaðir miðlægt út frá
tímasetningu grunnbólusetningar
og greiningarskráningu í gögnum
landlæknis. Sérfræðilæknar geta
óskað eftir því að sjúklingahópi/
greiningum sé bætt við með sam-
skiptum við sóttvarnalækni eða ein-
staklingum sé bætt við með lækna-
bréfi til heilsugæslu viðkomandi. Sá
hópur er um 1.000 manns.
60 ára og eldri utan hjúkrunar-
heimila sem eru um 60.000 á land-
inu öllu.
um aðra hópa, svo sem yngri
einstaklinga með áhættuþætti fyrir
alvarlegri Covid-19 sýkingu, þarf að
fjalla þegar ofangreint er komið vel
á veg. Áætlað er að örvunarbólu-
setningar þessara hópa fari fram á
næstu vikum og ljúki í september.
Loks er hafinn undirbúningur
að því að bjóða bólusetningu fyrir
12–15 ára börn. mm
um 6.500 plöntum af alaskaösp og
stafafuru var plantað í landi Reyk-
holts í Borgarfirði í liðinni viku af
körfuknattleiksdeild Skallagríms.
markar þetta verkefni hluta af fyrsta
áfanga í annars fimm ára áætlun um
að gróðursetja 60.000 plöntur í
Reykholtslandi á árinu. Stefnan er
sett á að gróðursetja svipaðan fjölda
af plöntum næstu fimm árin á 165
hektara landi í Reykholti. Skóg-
ræktarfélag Borgarfjarðar er með
samning við kolvið sem vinnur eft-
ir leiðbeiningum Skógræktarfélags
Íslands um skógrækt í sátt við um-
hverfið og rammasamning Samein-
uðu þjóðanna um loftslagsbreyt-
ingar. Þessi fimm ára áætlun Skóg-
ræktarfélags Borgarfjarðar í landi
Reykholts er tileinkuð stefnu og
markmiðum kolviðs. Er tilefni sem
þetta gjarnan nýtt til fjáröflunar og
því hefur Skógræktarfélagið far-
ið í samstarf við körfuknattleiks-
deild Skallagríms sem mun koma
að gróðursetningu trjánna.
glh/ Ljósm. Pavle Estrajher
Guðveig Lind Eyglóardóttir, formaður kkd. Skallagríms ásamt Jónínu Ernu
Arnardóttur í sjálfboðastarfi við gróðursetningu plantna um liðna helgi. Búið er
að stofna til Facebook hópsins: Hjálparhendur Skallagríms Körfubolta, í þeirri
von að auðvelda fjáröflunarstarf félagsins og dreifa sjálfboðavinnu á stærri hóp
einstaklinga, en oft reynist erfitt að fá fólk til að leggja hönd á plóg fyrir félagið
sem byggir í raun eingöngu á sjálfboðastarfi.
Samstarfsverkefni skógræktarfélags og Skallagríms
Fullur bíll af stafafuru.
Herða aðgerðir á landamærum, styrkja innviði
heilbrigðiskerfis og hefja örvunarbólusetningar
Ríkisstjórnin leggur línurnar vegna fjölgunar kóvidsmita