Skessuhorn


Skessuhorn - 11.08.2021, Page 15

Skessuhorn - 11.08.2021, Page 15
mIðVIkudAguR 11. ÁgúST 2021 15 - Opnum Leigubílastöð á Akranesi – Akrataxi Leyfishafar geta sótt um pláss með því að senda á akrataxi@simnet.is Umsóknarfrestur er til 25. ágúst Akrataxi Við sögðum frá því á vef Skessu- horns síðdegis á miðvikudaginn að börn sem voru að leik í fjörunni við tjaldsvæðið við kalmansvík á Akra- nesi fundu skjaldböku í flæðarmál- inu. Tóku þau skjaldbökuna, sem er af gerð rauðeyrna, til handargagns og hugðust koma henni í Húsdýra- garðinn daginn eftir. Af því varð þó ekki. um hálftíma eftir að fréttin fór í loftið á vefnum fóru að ber- ast ábendingar um skjaldböku sem saknað hafði verið úr heimahúsi við Esjubraut frá því fyrir um þremur vikum síðan. Finnendur skjaldbök- unnar fóru því og afhentu eigand- anum dýrið strax um kvöldið. gunnar Elís Tómasson er eig- andi skjaldbökunnar marteins, sem kallaður er matti. Hann segir matta vera 27 ára og þar af hafi hann átt dýrið síðastliðin 14 ár. matta hafi því verið sárt saknað af heimilinu undanfarnar vikur og ekki fund- ist í nágrenninu þrátt fyrir mikla leit. gunnar segir að hann hafi far- ið með matta í heita pottinn fyrir nokkrum vikum og hafi hann náð að stinga af. Líkt og eigendurnir virðist matti hafa verið feginn því að komast aft- ur heim í öryggið og hlýjuna. Hann kom sér fyrir í bælinu hjá læðunni á heimilinu sem er með nokkra kett- linga á spena. Þar hjúfraði hann sig að þeim í hlýjunni, örygginu feg- inn. mm Skjaldbakan Marteinn komin heim eftir þriggja vikna strok Gunnar Elís með börnin sín og Matta. Hópur frændsystkina sem fann Matta í fjörunni við Kalmansvík. Matti kominn í hlýjuna hjá heimilis- læðunni og kettlingum hennar. Matti skjaldbaka er 27 ára og af ætt amerískra ferskvatnsskjaldbaka sem kallast rauðeyru.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.