Skessuhorn - 11.08.2021, Blaðsíða 19
mIðVIkudAguR 11. ÁgúST 2021 19
!"#$%&#'(("%)*%&+,&-)
!"#$%&'('$%)'*(+(,$-'.,,/#"0123',$
!
!
!"#$%&%'())*))%+,-.)/##0)%%
Laust starf í FVA
Starfsmaður óskast í ræstingar á húsnæði
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi
Um er að ræða hlutavinnu við þrif, 50% starf, seinni hluta dags.
Hæfnikröfur:
Rík þjónustulund, þægilegt viðmót, markviss vinnubrögð,
stundvísi og áreiðanleiki.
Æskilegt að umsækjandi hafi reynslu af hreingerningum og þrifum
og geti hafið störf strax.
Annað:
Umsækendur þurfa að vera orðnir 25 ára og skila sakavottorði.
Umsóknir berist aðstoðarskólameistara, Dröfn Viðarsdóttur,
drofn@fva.is, sem jafnframt veitir upplýsingar um starfið
í síma 433 2505.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Gróðrarstöðin Grenigerði
við Borgarnes
Við eigum mikið af fallegu birki
í limgerði og einnig stök tré.
Ríta og Páll
437-1664 849-4836
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
höndunum núna því þær eiga það til
að springa ef þær lenda í einhverju
hnjaski, þær eru svo viðkvæmar á
þessu stigi í ræktun. Það er mikil
spenna í kartöflunni á þessum tíma,
hún er að taka svo mikinn vaxtar-
kipp. Það þarf að fara varlega með
kartöflurnar, leggja þær í fötuna
við tínslu í staðinn fyrir að henda
þeim,“ útskýrir gunna mæja.
„Flusið, eða hýði eins og sagt er
hér á Vesturlandi,“ segir Jóhann
Páll og glottir til gunnu sinnar.
„Það flagnar auðveldlega af, það er
svo viðkvæmt. Þegar þetta verður
eldra, þá harðnar hýðið utan um og
þá skemmast kartöflurnar ekki eins
mikið á vélinni þegar við förum
með hana yfir garðana.“
Fer allt eftir tíðarfarinu
gunna mæja og Jóhann Páll eru að
uppskera um 15 til 20 tonn af kart-
öflum ef það gengur vel og sumar-
ið fer vel með þau, en það fer ein-
mitt eftir veðri hvort uppskeran
verður lítil eða mikil. „Vorið var
til dæmis mjög kalt í ár, það var
í raun ekkert vor. Það er fyrst að
hlýna núna í júlí,“ útskýrir gunna
mæja. „Ef það kemur næturfrost í
júlí og grösin falla þá er þetta bara
búið og ekkert kemur upp. maður
er stöðugt að fylgjast með veðrinu.
Það gerðist til dæmis í fyrra í lok
júlí að það kom næturfrost. grös-
in lifðu en efstu blöðin skemmdust
og það sést strax, þá verða blöðin
dökk og ljót,“ bætir hún við.
„Við búum frekar ofarlega í
landi og þetta land er ekkert endi-
lega hentugt kartöfluræktarland.
Sólin á helst ekki að skína á kart-
öflugarðana þegar hún kemur upp
ef það er frosið, þá fá plönturnar
lengri tíma til að þiðna.“
Vilja koma upp áskrift-
arleið að kartöflum
Þegar blaðamaður kom á staðinn
í liðinni viku var gunna mæja á
fullu að afgreiða pantanir á smælki
í skemmu á bænum sem átti svo
að afhenda síðar um kvöldið. „Það
sem við erum að selja núna fer
mikið á heimili. Við keyrum svo
út í kvöld, bæði í Borgarnes og á
Hvanneyri,“ segir gunna mæja.
„Ég set auglýsingu inn á Facebook
og það gengur vel. Við höfum líka
verið að fara svolítið í mötuneytin
eins og í grunnskólann á klepp-
járnsreykjum. Hugmyndin er að
setja upp einhverskonar áskriftar-
leið að kartöflum sem myndi þá
henta fyrir einstaklinga og fyrir-
tæki í héraði,“ bætir hún við. En
hvernig sjá þau framhaldið fyrir
sér í kartöfluræktun? „Við ætlum
allavega að sjá hvernig þetta geng-
ur hjá okkur núna loksins þegar við
eru að fá almennilega uppskeru og
höfum eitthvað til að selja. útspilið
er eiginlega núna og kannski næsta
ár, þá mögulega stækkar maður
ræktunina eða gerir eitthvað. Það
er svolítill peningur að koma þessu
í gang,“ svarar Jóhann Páll. Stefn-
an hjá þeim er svo sett á að koma
upp geymslu á bænum undir kart-
öflurnar, kaupa einangraðan gám
með kælivél sem þægilegt er að
stilla.
En hvernig kartafla er best? „Ég
er aðallega í því að éta ljótu kart-
öflurnar svo ég þurfi ekki að henda
þeim, ég tími því nefnilega ekki,“
svarar gunna mæja létt í lund. „Ég
er mest hrifinn af gullauganu,“
svarar Jóhann að endingu.
Hægt er að panta kartöflur hjá
Jóhanni og gunnu mæju í gegn-
um Facebook síðuna, Jarðepla Jói,
senda tölvupóst á gmbjorns@gmail.
com eða hringja í síma 846-5195.
glh
Nýupptekið smælki sem er sérstaklega eftirsóknarvert.
Land Róver og nýjar kartöflur.
Snartarstaðir í Lundarreykjardal. Í forgrunni má sjá einn af þremur kartöflugörðunum.