Skessuhorn - 03.11.2021, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 44. tbl. 24. árg. 3. nóvember 2021 - kr. 950 í lausasölu
sími 437-1600
Næstu viðburðir
á Söguloftinu
STORMFUGLAR
Einars Kárasonar
Fimmtudaginn 4. nóvember
kl. 20:00
Miðasala á tix.is
og borðapantanir:
landnam@landnam.is
og í síma 437-1600
Í BRAUÐRASPI
DEEP FRIED
BREADED SHRIMP
999 kr.
mÁLTÍÐ
CHEESEBURGER MEAL
1.699 kr.
Tilboð gildir út nóvember 2021
Gos úr vél frá CCEP fylgir meðBorgarnes:
Akranes: Gosflaska frá CCEP fylgir með
Ert þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Hrekkjavaka nýtur ört vaxandi vinsælda meðal barna og yngra fólks. Sem hluti af dagskrá Vökudaga á Akranesi í liðinni viku var í Hafbjargarhúsinu á Breið sett upp
hryllingsvölundarhús á sunnudagskvöldið. Uppvakningar og draugar tóku þar á móti gestum - sem þangað þorðu. Sjá myndasyrpu frá þessu og öðrum viðburðum
Vökudaga í blaðinu í dag. Ljósm. ki
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
mun taka yfir rekstur hjúkr-
unarheimilis í Stykkishólmi á næsta
ári. Nú standa yfir framkvæmdir
við nýtt hjúkrunarheimili við Aust-
urgötu 7 í Stykkishólmi, í húsnæði
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands.
Áætluð verklok eru 1. júní 2022
og flytja íbúar hjúkrunarheimilis-
ins þá frá Dvalarheimili aldraðra
í Stykkishólmi við Skólastíg 16 í
nýtt hjúkrunarheimili við Austur-
götu 7. Stjórnendur Dvalarheimil-
is aldraðra og stjórnendur HVE til-
kynntu sínu starfsfólki nú á dögun-
um þá ákvörðun að HVE myndi
taka við rekstri heimilisins við
flutninginn, en Stykkishólmsbær
rekur eins og kunnugt er hjúkr-
unarheimilið í dag. Samkvæmt
samantekt um kostnað við rekstur
heimilisins á árunum 2014-2020
greiddi Stykkishólmsbær 140 millj-
ónir með rekstrinum. „Þessar töl-
ur staðfesta að daggjöld frá ríkinu
hafa ekki dugað til að standa und-
ir kostnaði við reksturinn,“ segir
Jakob Björgvin Jakobsson, bæjar-
stjóri Stykkishólmsbæjar í samtali
við Skessuhorn.
Á Dvalarheimili aldraðra í Stykk-
ishólmi eru í dag 15 hjúkrunarrými
auk þess sem þrjú hjúkrunarrými
eru á sjúkrahúsi HVE í Stykkis-
hólmi. Eftir færslu heimilisins verða
hjúkrunarrými á hjúkrunarheim-
ilinu 18, eins og er í dag. Spurður
hvað verði gert við húsnæðið þar
sem hjúkrunarheimilið er í dag seg-
ir Jakob að það verði nýtt til að efla
enn frekar þjónustu við eldri borg-
ara í Stykkishólmi. „Við skipuð-
um starfshóp sem er að endurskil-
greina þörf fyrir aukið húsnæði og
þjónustu við eldri borgara í Stykk-
ishólmi. Eins og staðan er í dag er
dvalarheimilið í miðjunni á milli
búsetuíbúða fyrir aldraða. Þegar við
höfum fært hjúkrunarrýmin getum
við fjölgað búsetuíbúðum og von-
andi byggt nýjan þjónustukjarna og
jafnvel öflugri félagsaðstöðu fyr-
ir eldri borgara, þar sem við getum
sinnt þeirra þörfum betur,“ segir
Jakob en bætir við að þetta eigi þó
eftir að útfæra nánar. arg
Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni/ sá
Ríkið tekur yfir rekstur
hjúkrunarheimilis í Stykkishólmi
Arion appið
Fyrir hverju langar þig
að spara í ár?
Reglulegur sparnaður í Arion appinu
er alltaf góð hugmynd