Skessuhorn - 03.11.2021, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 20218
Ólöglegur
innflutningur
á dýrum
LANDIÐ: Matvælastofn-
un hefur óskað eftir opinberri
rannsókn lögreglu á einstak-
lingi sem grunaður er um að
hafa flutt til landsins slöngur,
snáka, eðlur og tarantúlur. Slíkt
er eins og flestir þekkja með öllu
óheimilt, hvort sem um villt eða
tamin dýr er að ræða. Refsingar
liggja við brotum á lögunum.
Hægt er að sækja um undan-
þágu til slíks innflutnings. Tvö
leyfi þarf til þess, annars vegar
frá Matvælastofnun og hins
vegar frá Umhverfisstofnun.
Eini innflutningurinn á snák-
um og tarantúlum sem leyfður
hefur verið til Íslands er heimild
sem húsdýragarðurinn fékk fyr-
ir 10-15 árum. „Matvælastofn-
un varar eindregið við ólögleg-
um innflutningi á dýrum. Með
þeim hætti geta borist hættuleg
smitefni til landsins sem ógna
heilsu fólks og dýra,“ segir í til-
kynningu. -mm
Bílvelta á
Ólafsbraut
SNÆFELLSBÆR: Umferð-
aróhapp varð á Ólafsbraut, rétt
austan við bæinn Geirakot í
Snæfellsbæ á ellefta tímanum á
laugardagsmorguninn. Höfðu
þá myndast skilyrði sem leiddu
til ísingar í stuttan tíma. Komu
þau ökumanni á óvart og missti
hann stjórn á bílnum sem valt
og fór þrjár veltur og hafnaði
á hjólunum. Ökumaður og far-
þegi kenndu eymsla en farþegar
og ökumenn voru allir í bílbelt-
um. Sjúkrabíll flutti hina slös-
uðu til skoðunar á heilsugæslu-
stöðina í Ólafsvík. Bíllinn var
óökufær eftir óhappið og var
fjarlægður með kranabíl.
-frg/ Ljósm. þa
Vildi ekki valda
óþarfa ónæði
VESTURLAND: Á laugar-
dagsmorgun barst lögreglu til-
kynning um útafakstur við
Langá á Mýrum. Þar hafði öku-
maður misst stjórn á bíl þegar
sprakk á vinstra framhjóli og
hafnaði utan vegar. Óhappið
átti sér stað um nóttina en öku-
maður tilkynnti um óhappið um
hálf níu þar sem hann vildi ekki
valda óþarfa ónæði um nóttina.
Ekki urðu slys á fólki. -frg
Styttu sóttkví og
einangrun
LANDIÐ: Almenn krafa um
sóttkví fyrir þá sem hafa orðið
útsettir fyrir kórónuveirusmiti
hefur verið stytt úr sjö dögum
í fimm, samkvæmt breyting-
um heilbrigðisráðherra á
reglugerð, að fengnum til-
lögum sóttvarnalæknis. Enn-
þá þarf að fá neikvæða niður-
stöðu úr PCR prófi til þess að
losna úr sóttkví, annars þarf að
sæta sóttkví í 14 daga. Þá getur
einangrun þeirra sem smitast
hafa af kórónuveirunni farið
niður í sjö daga sé um að ræða
einkennalausan fullbólusettan
einstakling eða einkennalaust
barn fætt 2009 eða síðar. Þá
getur einangrun farið niður
í tíu daga hjá fullbólusettum
einstaklingi eða barni fætt árið
2009 eða síðar, ef einkenni eru
í rénum og viðkomandi hef-
ur verið hitalaus í tvo sólar-
hringa fyrir afléttingu, og hjá
óbólusettum og einkennalaus-
um einstaklingi. Tóku þess-
ar breytingar gildi síðastliðinn
föstudag. -arg
Loðnan skilar
auknum verð-
mætum
LANDIÐ: Á fyrstu níu
mánuðum ársins er útflutn-
ingsverðmæti sjávarafurða
komið í rúma 213 milljarða
króna. Það er rúmlega 8%
aukning í krónum talið mið-
að við sama tímabil í fyrra.
Gengi krónunnar hefur að
jafnaði verið um 2% sterkara
fyrstu níu mánuði ársins mið-
að við sama tímabil í fyrra
og er aukningin þar með að-
eins meiri í erlendri mynt, eða
10%. Aukningu í útflutnings-
verðmætum sjávarafurða má
að langstærstum hluta rekja til
loðnu. Á fyrstu níu mánuðum
ársins er útflutningsverðmæti
loðnuafurða komið í tæplega
21 milljarð króna. Á sama
tímabili í fyrra var verðmæti
þeirra rétt um tveir millj-
arðar króna, en þar var um
birgðasölu að ræða enda hafði
loðnubrestur verið undan-
gengin tvö ár. Ef verðmæti
loðnuafurða er undanskilið í
tölum um útflutning, stend-
ur útflutningsverðmæti sjávar-
afurða nánast í stað á milli ára.
-mm
Ekið á barn á
hjóli
AKRANES: Ekið var á barn
á hjóli á gangbraut á Garða-
grund á Akranesi á mánudag.
Barnið var flutt á sjúkrahúsið
á Akranesi. Ekki er ljóst hvort
barnið er alvarlega slasað.
-frg
Búið er að ganga frá samningi um
rekstur veitingastaðarins Food
Station við Digranesgötu 4 í Borg-
arnesi. Það er Hendrik Hermanns-
son eigandi H veitinga sem hefur
tekið reksturinn á leigu af Kaup-
félagi Borgfirðinga en eigandi
hússins er Borgarland, dótturfélag
KB. Margrét Katrín Guðnadóttir
kaupfélagsstjóri fagnar samningn-
um og segir í samtali við Skessu-
horn að aldrei hafi staðið til að
kaupfélagið sjálft annaðist rekstur í
húsinu, þrátt fyrir að sú hafi orðið
raunin þegar ákveðið var að opna
2019. Það sé hins vegar styrkleiki
Hendriks hjá H veitingum að reka
veitingaþjónustu og því hafi ver-
ið ákveðið að semja við hann. Fyr-
ir reka H veitingar veitingasölu á
Hvanneyri og Bifröst ásamt veislu-
þjónustu og útkeyrslu á mat í Borg-
arnesi.
Hendrik Björn kveðst í samtali
við Skessuhorn vera bjartsýnn á
reksturinn á Food station, en hann
mun breyta ýmsu, bæði matseðli,
þjónustu og öðru. Nú verður m.a.
farið í að stækka veitingasalinn og
bæta við veislusal í áður ónotuðu
rými í húsinu. Þá verður einnig
lifandi tónlist af og til og sitthvað
fleira sem koma mun betur í ljós
innan tíðar.
mm
Setning Vökudaga fór fram á
fimmtudaginn á Byggðasafninu
að Görðum. Þar var jafnframt til-
kynnt um hverjir hlytu Menningar-
verðlaun Akraness fyrir árið 2021,
en þau voru afhent nú í 15. sinn.
Guðríður Sigurjónsdóttir, varafor-
maður menningar- og safnanefnd-
ar, sagði í erindi sínu að það væri
nefndinni sönn ánægja að veita
viðurkenninguna til þremenning-
anna Flosa Einarssonar, Gunnars
Sturlu Hervarssonar og Einars
Viðarssonar fyrir þeirra framlag til
listgreina innan skólasamfélagsins.
Í máli Guðríðar kom fram að
þeir hafa frumsýnt og leikstýrt
fjölda söngleikja við fádæma undir-
tektir. Samstarf þeirra hófst árið
2002 með söngleiknum Frelsi en
höfundar þess voru Flosi og Gunn-
ar Sturla. Einar Viðarsson bætt-
ist í hópinn þegar Hunangsflug-
ur og villikettir komust á fjalirnar
árið 2005. Draumaleit var svo sam-
starfsverkefni við skóla á Ítalíu, Sví-
þjóð og Tyrklandi. Sá söngleikur
var sýndur í hverju landi fyrir sig
og loks var sameiginleg sýning í
Stokkhólmi í desember árið 2007.
Enn fremur hafa litið dagsins ljós
söngleikirnir Vítahringur (2009),
Nornaveiðar (2012), Úlfur, úlfur
(2015) og Smellur (2018).
Guðríður sagði að lokum að
nefndin telji að þessi viðurkenn-
ing sé tímabær og í takt við áhersl-
ur menningarstefnu Akraneskaup-
staðar. „Um leið og ég óska þrem-
enningunum innilega til hamingju
með þessa viðurkenningu óska ég
þess að þetta verði þeim hvatning
til frekari dáða og þeir séu engan
veginn hættir á vegferð sinni í að
gefa nemendum tækifæri á að taka
þátt í leiklistarsýningum. Því þátt-
taka í skapandi listgreinum er svo
dýrmætt veganesti út í lífið.“
vaks
Umhverfisráðherra ákvað í síðustu
viku fyrirkomulag rjúpnaveiða í ár
en tímabilið hófst á mánudaginn, 1.
nóvember og stendur út mánuðinn.
Eins og áður verður aðeins heim-
ilt að veiða frá föstudegi til þriðju-
dags, en veiði má ekki hefjast fyrr
en á hádegi og er heimil á meðan
bjart er.
Rjúpnastofninn hefur dregist
verulega saman síðustu ár og er einn
sá minnsti síðan mælingar hófust
árið 1995. Aðeins einu sinni áður
hefur stofninn verið metinn svona
lítill, en það var árið 2002. Sam-
kvæmt mati Náttúrufræðistofnunar
Íslands er veiðiþol rjúpnastofnsins
20 þúsund fuglar í ár en reynslan
sýnir að raunveiði hefur ver-
ið nokkuð umfram ráðgjöf þegar
stofninn er í lágmarki. Guðmund-
ur Ingi Guðbrandsson umhverfis-
ráðherra segir að tryggja þurfi sjálf-
bærni í veiðum og gæta þess að fara
ekki yfir mat á veiðiþoli. Þá hvet-
ur hann veiðimenn til að veiða ekki
fleiri en þrjár til fjórar rjúpur í ár,
eða sleppa því alfarið að veiða og
leyfa þannig rjúpunni að njóta vaf-
ans. Þá er ítrekað að sölubann er á
rjúpu. arg
Hendrik Björn Hermannsson veitingamaður og Margrét Katrín Guðnadóttir
kaupfélagsstjóri.
H veitingar teknar við rekstri
Food Station
Þau voru við afgreiðslu í Food Station síðastliðinn fimmtudag þegar H veitingar
voru nýteknar við. F.v. Sandra Björk, Hendrik Björn og Ólafur Páll Einarsson
Rjúpnaveiði hafin en veiðitími styttur
Gunnar Sturla, Flosi og Einar.
Menningarverðlaun Akraness
afhent við setningu Vökudaga