Skessuhorn - 03.11.2021, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 202110
Í síðustu viku var steypt gangstétt
við Gilið, neðarlega í Kirkjutúninu
í Ólafvík. Er þetta áfangi í að lag-
færa árfarveginn en hann var far-
inn að grafa frá grjóthleðslu neðar-
lega Kirkjutúnsmegin í gilinu. Eftir
framkvæmdir 2010 varð göngustíg-
ur sem lagður var á brúninni fljót-
lega ótryggur til notkunar vegna
hruns úr kantinum. Nú er búið að
endurhlaða kant Gilsins og þar sem
mest hrundi úr hefur verið komið
fyrir í svokölluðum grjótkistum og
steypt gangstétt í fullri breidd. þa
Vinna við endurbyggingu Norð-
urtanga í Ólafsvík hefur gengið
vel. Byrjað var á því að grafa 128
metra langan þilskurð áður en hægt
var að byrja að reka niður tvöfald-
ar stálþilsplötur en þær eru 94 tals-
ins. Brjóta þurfti og fjarlægja kant,
polla og þekju af gömlu bryggjunni
en nýja stálþilið var fjórum metrum
utan við það gamla. Ekið var með
6000 rúmmetra af möl sem fengin
var úr Ólafsvíkurenni í fyllinguna
en mölin var svo þjöppuð niður.
Nú er búið að steypa tæplega helm-
inginn af þeim 130 metra langa
kantbita með pollum, kanttré, stig-
um og fríholtum sem eftir á að setja
á stálþilið. Einnig er búið að sjóða
helminginn af þeim 47 sinkkubb-
um sem koma eiga í veg fyrir tær-
ingu en þeir eru soðnir á neðansjáv-
ar. Þegar þessari framkvæmd lýkur
nú síðar í nóvember mun aðstað-
an á þessum hluta hafnarsvæðisins
batna enda um mikla endurnýjun
að ræða.
Masturshús rís
Nýtt masturshús er nú tekið að
rísa á Norðurgarðinum. Verkefnið
er liður í að bæta aðstöðu í höfn-
um sveitarfélagsins. Ásamt því að
skipt verður um alla rafmagnskapla
voru settar nýjar rafmagnstöflur.
Nýtt mastur var sett við hliðina og
voru allar vatnslagnir endurnýjaðar.
Þegar verkinu verður lokið verður
því komið nægt rafmagn fyrir alla
báta og skip sem liggja við hafnir
Snæfellsbæjar. Mastrið og masturs-
húsið, sem er á miðri þekjunni á
Norðurgarðinum, verður einnig
fjarlægt.
þa
Nýting á þorski hér á landi er á
heimsmælikvarða en þó má gera
betur, að mati Íslenska sjávarklas-
ans. Íslenskur sjávarútvegur hefur
um árabil verið í forystu í nýtingu
hliðarafurða á hvítfiski í heiminum.
Verulega hallar á þau lönd sem við
berum okkur saman við þegar kem-
ur að nýtingu hliðarafurða. Þó má
merkja vaxandi áhuga margra er-
lendra fyrirtækja á vinnslu hliðar-
afurða og mörg þeirra sýna áhuga
á að læra af Íslendingum í þessum
efnum.
Sjávarklasinn hefur gert úttekt
á því hversu mikinn hluti þorsk-
afurða er nýttur hérlendis en nýjar
tölur hafa ekki legið fyrir um nokk-
ur skeið. Athugunin leiðir í ljós
að Íslendingar halda enn forystu í
þessum efnum og nýtingarhlutfall-
ið er rúmlega 90% sem er töluvert
umfram það sem fyrri tölur gáfu til
kynna. Enn eru þó veruleg tæki-
færi til að vinna meira úr hliðar-
afurðum og skapa verðmæti og ný
störf. Fullvinnsla hliðarafurða er
skilgreind hér sem nýting á öllum
pörtum fisksins, öðrum en fiskflak-
inu. Nýting hliðarafurða hefur
verið lítil í mörgum þeim löndum
sem við berum okkur saman eða
einungis 45-55% af hvítfiski. Þarna
er um veruleg verðmæti að ræða
sem fara í súginn hjá öðrum þjóð-
um. Hér liggja því tækifæri fyrir
aðrar sjávarútvegsþjóðir til að gera
betur og fyrir Íslendinga að koma
að þeim verkefnum með íslenska
tækni og þekkingu.
Samkvæmt athugunum sjávar-
klasans eru 35 fyrirtæki í landinu
sem sinna lang stærstum hluta
vinnslu hliðarafurða. Upplýs-
ingar fengust um veltu tæplega 30
þessara fyrirtækja. Á árunum 2012
til 2019 jókst velta þeirra um 35%.
mm
Daníel Haraldsson er nýr dýra-
læknir sem sinnir dýralæknaþjón-
ustu á Ströndum, Reykhólahreppi
og í Dalabyggð. Frá þessu segir á
vef Reykhólahrepps, en Daníel tók
við 1. október síðastliðinn og tek-
ur við af Gísla Sverri Halldórs-
syni sem sinnt hefur embættinu frá
2012. Dýralæknirinn í Búðardal
sinnir fimm sveitarfélögum á nokk-
uð stóru svæði en auk fyrrgreindra
sveitarfélaga fer hann í Árneshrepp
og Kaldrananeshrepp og að auki í
gamla Bæjarhrepp, þ.e. alveg inn
í botn Hrútafjarðar. Starfið fel-
ur í sér að gegna dýralæknisþjón-
ustu fyrir búfé og gæludýr á svæð-
inu og tryggja þar með dýraeigend-
um nauðsynlega almenna þjónustu
og bráðaþjónustu við dýr.
Daníel lærði dýralækningar í
Kaupmannahöfn og starfaði fyrstu
tvö árin í Svíþjóð en eftir að hann
kom heim leysti hann af dýralækn-
inn í Stykkishólmi 2016-2017. Þá
hefur hann rekið sína eigin dýra-
læknastofu á Egilsstöðum síðan.
Daníel flutti í hús fyrirrennara síns
og tók við allri aðstöðu svo dýra-
lækninn má finna á sama stað og
áður að Ægisbraut 19 í Búðardal.
Aðspurður segist Daníel á vef
Reykhólahrepps lítast vel á starfið
en hann er enn að koma sér fyrir í
Búðardal og hlakkar til að kynnast
fólkinu á svæðinu. Hann á ættir að
rekja til svæðisins en forfeður hans
voru frá Goddastöðum í Laxárdal
og Dagverðarnesseli á Ströndum.
Símatími dýralæknis er alla virka
daga frá klukkan 9-11 í síma 434-
1122 en þess utan er hægt að ná í
Daníel í síma 841-8422.
vaks
Dagana 4. til 7. nóvember munu
björgunarsveitir Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar selja Neyðarkall-
inn um land allt. Neyðarkallinn í
ár er sjóbjörgunarmaður, sem er
vel við hæfi þar sem nýverið var
skrifað undir samning um endur-
nýjun á björgunarskipum félags-
ins. Salan á Neyðarkallinum er
ein stærsta fjáröflun björgunar-
sveitanna á landinu og því gríðar-
lega mikilvæg. M.a. verður hægt
að nálgast Neyðarkallinn hjá sjálf-
boðaliðum í helstu verslanakjörn-
um um helgina.
arg
Nú er hafinn undirbúningur fyrir
heimsiglingu varðskipsins Freyju
frá Rotterdam, en það bætist nú í
flota Landhelgisgæslunnar. Skip-
ið, sem smíðað var árið 2010 hef-
ur undanfarin ár þjónustað olíu-
iðnaðinn, en mun eftir lagfæringar
og málun verða siglt til Íslands og
fá heimahöfn á Siglufirði. Áhöfn
skipsins er mætt ytra og undir-
býr heimsiglinguna. Áætlað er að
skipið verði komið til Siglufjarð-
ar 6. nóvember, ef allt gengur eft-
ir. Varðskipið Freyja er sambæri-
legt varðskipinu Þór hvað varð-
ar stærð og aðbúnað, en býr yfir
meiri dráttar- og björgunargetu en
Þór. Skipið er 86 metra langt og 20
metra breitt.
„Með tilkomu Freyju í flota
Landhelgisgæslunnar mun Land-
helgisgæslan hafa á að skipa tveim-
ur afar öflugum varðskipum, sér-
útbúnum til að sinna löggæslu, leit
og björgun á krefjandi hafsvæðum
umhverfis Ísland,“ segir í tilkynn-
ingu frá Landhelgisgæslunni.
mm
Bæta gönguleiðina
við Gilið
Sala á Neyðarkallinum verður á næstu dögum.
Sala á Neyðarkallinum
um næstu helgi
Siglufjörður verður
heimahöfn Freyju
Daníel Haraldsson er nýr dýralæknir í
Búðardal.
Ljósm. af vefsíðu Reykhólahrepps
Nýr dýralæknir tekinn
til starfa í Búðardal
Það voru þeir Gylfi Freyr Karlsson og Vigfús Kristinn Vigfússon starfsmenn
hjá Jónasi Kristóferssyni smiði sem voru að slá upp fyrir masturshúsinu þegar
fréttaritari staldraði við.
Miklar framkvæmdir í gangi
við Ólafsvíkurhöfn
Möl sturtað í rýmið milli þekjunnar og gömlu bryggjunnar.
Níutíu prósent þorsks eru nýtt