Skessuhorn - 03.11.2021, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 202112
Golfklúbburinn Leynir hefur aug-
lýst eftir nýjum veitingaaðila í frí-
stundamiðstöðinni Garðavöllum á
Akranesi. Hilmar Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Galito Bistro, sem
hefur verið með veitingareksturinn
frá vígslu hússins 2019, hefur sagt
upp samningnum. Í frétt klúbbsins
segir að um sé að ræða framúrskar-
andi aðstöðu fyrir veislur og við-
burði ásamt fullbúnu eldhúsi með
tækjum og leirtaui. Mikil sóknar-
færi fyrir réttan aðila. Nánari upp-
lýsingar fyrir áhugasama má finna á
heimasíðu Leynis.
mm
Nú er farið að styttast í jól og
Mæðrastyrksnefnd Akraness undir-
býr úthlutanir fram að hátíðum.
Nefndin var á hrakhólum með hús-
næði en nú er orðið ljóst að að-
staða hennar verður á sama stað
og í fyrra, í húsinu sem flestir Ak-
urnesingar þekkja sem HB-hús-
ið en í dag hefur Breið þróunarset-
ur aðstöðu í húsinu. Gengið er inn
um aðalinngang við Hafnarbraut.
Að sögn Maríu Ólafsdóttur hjá
Mæðrastyrksnefnd tafði óvissan um
húsnæði undirbúning en nefndin er
nú að afla framlaga frá hinum ýmsu
fyrirtækjum, bæði á Akranesi og
víðar. Þá styrkir Kaupfélag Skag-
firðinga góðgerðarfélög með mat-
argjöfum í nóvember og desember.
María segir að ljóst sé með út-
hlutun síðustu vikuna í nóvember
en að ekki sé ljóst hvort önnur út-
hlutun verði fram að jólaúthlutun
sem fer fram 16. desember. Hvet-
ur María fyrirtæki og einstaklinga
til að taka myndarlegan þátt í þessu
verkefni sem snýst um að styðja við
þá sem verst standa í samfélaginu.
Fyrir þá sem vilja styrkja Mæðra-
styrksnefnd með fjárframlögum
er bankareikningur nefndarinn-
ar: 0552-14-402048 og kennitalan
411276-0829.
frg/ Ljósm. jho.
Áhættumatsnefnd hefur að beiðni
Matvælastofnunar rannsakað hvort
neysla orkudrykkja, sem inni-
halda koffín, hafi neikvæð áhrif á
heilsu ungmenna í framhaldsskól-
um. Niðurstaða nefndarinnar er að
neysla íslenskra ungmenna sé tölu-
vert meiri en sést hefur í erlendum
rannsóknum. Framboð, aðgengi og
markaðssetning orkudrykkja hér-
lendis virðist skila sér í því að neysla
íslenskra framhaldsskólanema sé
meiri en æskilegt er. „Niðurstöð-
ur nefndarinnar gefa til kynna að
takmarka þurfi aðgengi ungmenna
að orkudrykkjum t.d. innan veggja
skólanna og á vegum íþróttahreyf-
inganna og minnka þannig neikvæð
áhrif koffíns á heilsu þeirra,“ segir
í tilkynningu frá Matvælastofnun.
Til að meta hvort neysla íslenskra
ungmenna geti verið skaðleg fyr-
ir heilsu er stuðst við viðmiðunar-
mörk, sem Matvælaöryggisstofn-
un Evrópu (EFSA) hefur sett, fyr-
ir annars vegar svefn og hins vegar
hjarta- og æðakerfið. Mörkin fyrir
hjarta-og æðakerfið eru mishá eft-
ir því hvort um ræðir einstaklinga
undir 18 ára aldri eða 18 ára og
eldri.
mm
Skagamaðurinn Smári Hrafn Jóns-
son hefur um árabil búið á Spáni.
Föstudaginn 5. nóvember næst-
komandi mun hann opna mynd-
listarsýningu í hinum aldagamla
listamannabæ Altea á Spáni. Seg-
ist hann þannig ætla að verða
með Skagamönnum í anda þegar
Vökudagar fara fram. Í samtali við
Skessuhorns segir Smári að upp-
haflega hafi staðið til hjá honum að
opna sýninguna í apríl 2020 en því
hafi verið slegið á frest vegna mjög
strangs útgöngubanns þar í landi á
þeim tíma. Nú segir hann að smit-
tölur séu með lægsta móti og lítið
um hömlur vegna kórónaveirunnar
og skapast hafi tækifærið til að setja
upp sýninguna. „Það er búinn að
vera draumur hjá mér í nokkur ár
að halda sýningu hér í Altea, þess-
um mikla listamannabæ. Þegar mér
var boðið að setja upp sýningu í Al-
tearte í Altea fannst mér það mikill
heiður og þáði boðið að sjálfsögðu.
Það má kannski segja í gamni að ég
haldi mína Vökudaga hér í Altea
þetta árið, en ég tók þátt í Vöku-
dögum heima á Akranesi áður en
við fluttum hingað út,“ segir Smári.
Smári, og eiginkona hans Guð-
björg Nielsdóttir Hansen, hafa
búið í Altea í tæp sex ár. „Altea
er mikill listamannabær á Costa
Blanca ströndinni og er bærinn sem
slíkur ein af ástæðunum fyrir því
að við fluttum hingað. Margir ís-
lenskir ferðamenn sem hafa komið
til Benidorm og Albir, næsta bæjar
við okkur, þekkja Altea enda mæla
ferðaskrifstofur með því að fólk
skreppi í gamla bæinn í Altea sem
er einstaklega fallegur og heillandi.
Eitt af áhugamálum mínum í gegn-
um tíðina hefur verið myndlist. Ég
er búinn að dunda mér við að mála
til fjölda ára. Það er frábært að búa
hér með þetta áhugamál,“ segir
Smári.
Þetta er hans fyrsta einkasýn-
ing utan landsteinanna. Áður hefur
Smári tekið þátt í samsýningu átta
listamanna, af fimm þjóðernum, í
Altearte í febrúar 2020.
mm
Mæðrastyrksnefnd Akraness
undirbýr úthlutanir
Leynir óskar eftir nýjum
rekstraraðila á Garðavöllum
Portrett á striga.
Verður með Skagamönnum
í anda á Vökudögum
Smári Jónsson opnar myndlistarsýningu í listamannaþorpinu Altea á Spáni
Smári Hrafn og Guðbjörg á góðri stund á Spáni. Ljósm. úr einkasafni.
Myndin Sólarupprás við Krókalón er forsíðumynd sýningarinnar.
Gullinn máni.
Telja að takmarka verði
aðgengi að orkudrykkjum