Skessuhorn


Skessuhorn - 03.11.2021, Page 20

Skessuhorn - 03.11.2021, Page 20
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 202120 Skagamenn og gestir þeirra geta farið að hlakka til næsta laugar- dags en þá fer fram tónlistarhátíðin Heima-Skagi á Akranesi. Hátíðin er haldin í tengslum við Vökudaga, menningarhátíð Skagamanna. Alls koma átta flytjendur fram og held- ur hver flytjendanna tvenna tón- leika. Flytjendurnir bjóða því upp á sextán tónleika í átta vel völdum húsum og geta gestir hátíðarinnar ákveðið sína dagskrá sjálfir. Flytjendurnir sem fram koma eru Eddi Lár og Andrea Gylfa, The Vintage Caravan, Bjartmar, Svav- ar Knútur, Unnur Birna og Bjössi Thor, Kristín Sesselja, Lay Low og Svala. Tónleikastaðirnir eru eft- irfarandi: Blikksmiðja Guðmund- ar við Akursbraut, Bíóhöllin, Bár- an Brugghús og Akraneskirkja auk heimahúsa. Þau eru Skólabraut 20 þar sem Lilja og Guðni búa, Vest- urgata 71b þar sem Einar Skúla- son býr, Grundartún 8 en þar búa Pálmi og Elfa og Vitateigur 2, þar sem Martha og Björn búa. Fyrstu tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og þeim síðustu lýkur um kl. 23:00. Að auki fer fram Heima- -Skagi barnanna í kirkjunni fyrr um daginn eða klukkan 15:30. Þar verða Svavar Knútur og sérstakur gestur hans, Valgerður Jónsdótt- ir, bæjarlistamaður Akraness 2021. Aðgangur er ókeypis. Þegar tónleikunum lýkur um kvöldið opnar Gamla kaupfélag- ið dyr sínar fyrir gestum. Þar gefst fólki kostur á að koma saman eft- ir Heima-Skaga tónleikana og deila upplifun og skemmtun í góðra vina hópi. Þangað mætir Mummi á pí- anóið og spilar sína bestu tóna. Á Útgerðinni verður boðið upp á geggjaða drykki á hlægilegu verði á milli kl. 17 og 20 auk þess sem þar verður hægt að halda áfram gleðinni með tónlistarmanninum Didda kl. 23. Kaupfélagið verður jafnframt opið frá kl. 17:30 þar sem gestum stendur til boða svokallað fiskipönnutilboð. Kokkarnir Arn- ar, Birkir og Gunni Hó matreiða þar allskonar ljúffenga fiskrétti sem bornir eru fram á hlaðborð ásamt meðlæti. Þá verður á boðstólum Sjávaréttasúpa og nýbakað brauð sem hægt er að gæða sér á fyrir og/ eða með matnum. Ólafur Páll Gunnarsson, ann- ar af aðstandendum hátíðarinnar segist í samtali við Skessuhorn vera mjög spenntur fyrir laugardegin- um. Hann segir að í sumum hús- unum verði fríar veitingar en sam- skotabaukar þar sem gestir geta lagt sitt að mörkum. Þá segir Ólafur að ekkert sé því til fyrirstöðu að taka með sér bakpoka með eigin veiting- um á tónleikana. Að sögn Ólafs, hefur miðasalan farið vel af stað en þegar hátíð- in var haldin síðast seldist upp á tónleikadag og komust færri að en vildu. Það eru þau Ólafur og Hlé- dís Sveinsdóttir sem standa að há- tíðinni. Segja þau að Heima-Skagi sé hátíð sem er komin til að vera. Eins og áður segir hefst hátíðin kl. 20 á laugardagskvöld. Miðar eru seldir á tix.is og aðgangsarmbönd verða afhent á Gamla kaupfélaginu frá kl. 17 sama dag. frg / Ljósm. aðsendar. Ingibjartur Þórjónsson fór á eftir- laun árið 2009 eftir að hafa starf- að sem leiðbeinandi og síðar verk- menntakennari í grunnskólum á Akranesi í samtals í 27 ár. Hann starfaði í Grundaskóla á Akranesi í fjögur ár, eitt ár í Heiðarskóla í Leirársveit og loks í 22 ár í Brekku- bæjarskóla. Á þeim tímamótum var hann aldeilis ekki á því að setjast í helgan stein heldur hefur hann not- ið eftirlaunaáranna með því að út- búa sér aðstöðu í bílskúrnum sín- um. Þar hefur hann verið að smíða leikföng úr timbri, aðallega vöru- bíla, dúkkurúm, fugla en einnig margt fleira. Eru þessi munir all- ir listasmíði hjá Ingibjarti. Að sögn Ingibjarts fór hann upphaflega að smíða leikföngin til jólagjafa fyrir barnabörnin og ættingja. Leikfangasmíðin er þó ekki að það eina sem Ingibjartur hefur tek- ið sér fyrir hendur á eftirlauna- árunum. Hann hefur verið mik- ið í gluggasmíði en vill nú fara að hætta því enda verður hann 80 ára á næsta ári og ber aldurinn vel. Ingi- bjartur rak einnig fyrirtæki sem hét Tölvusel en það annaðist mæl- inga- og reikniþjónustu og tók að sér að gera tilboð í verk fyrir iðnað- armenn eftir verklýsingum. „Ég fór og lærði þessi fræði á námskeiðum í Reykjavík. Þá vann ég einnig mikið fyrir Sjóvá í tjónamati,” segir Ingi- bjartur. „Eftir að að ég hóf leikfangasmíð- ina hef ég framleitt fjölda vörubíla frá því að ég byrjaði að smíða þá og liggur langstærsti hluti smíðarinnar í þeim. Ég hef reyndar verið heldur minna í smíðunum síðustu tvö árin en er samt að dunda mér í þessu af og til,“ sagði Ingibjartur þegar tíð- indamaður Skessuhorns leit við hjá honum í bílskúrnum nýlega. „Þessar smíðar hjá mér byrjuðu upphaflega á því að ég smíðaði fyr- ir barnabörnin og ættingja vörubíla og dúkkurúm til jóla- eða afmæl- isgjafa. Þetta vakti mikla lukku og spurðist út enda þykja þetta vand- aðir bílar, þannig jókst smíðin stig af stigi. Auk þessa alls þá langar mig að prófa mig áfram að gera skúlpt- úra og hver veit nema ég geri eitt- hvað slíkt í garðinum hjá mér ein- hvern tímann á næstunni.“ Þakkar Guði fyrir að hafa ekki lent í Reykja- vík Ingibjartur er fæddur og uppalinn í Ólafsvík og lærði þar trésmíði áður en hann flutti á Akranes. „Það er skemmtileg saga að segja frá því hvernig ég kom á Akranes,“ seg- ir Ingibjartur. „Þannig var að ég leit við á Akranesi hjá systur skólabróð- ur míns, Þorvaldar Jónassonar sem var Ingunn Jónasdóttir og manni hennar Jónasi Arnfinnssyni, en þá var Þorbergur Þórðarson smiður að setja hurðir í hjá þeim. Fór hann að spyrja mig við hvað ég starfaði og ég sagði honum það. Þá vildi svo til að trésmiðju hans vantaði smið og var ég ráðinn nánast á staðnum til Tré- smiðju Sigurjóns og Þorbergs. Þar vann ég í nokkra mánuði. Ég fór síð- an að vinna í slippnum hjá Þorgeiri & Ellert hf. Fór svo að vinna hjá Tré- smiðjunni Akri og var þar í fimm ár. Þá fór ég út í það að vinna sjálfstætt og var í því um tíu ár. Byggði ég m.a. mörg einbýlishús hér á Grundunum á Akranesi. Ég ákvað að hætta því síðan og réði mig til Íslenska járn- blendifélagsins í tvö ár áður en ég fór í kennsluna. Upphaflega var ég leið- beinandi og var það í fjögur ár. Ákvað síðan að fara í Kennaraháskólann til þess að ná mér í kennsluréttindi til þess að verða löglegur verkmennta- kennari og árin urðu 27 eins og áður sagði,“ segir Ingibjartur. Þá segist hann þakka Guði fyrir að hafa ekki lent í Reykjavík, eins og margir sem flutt hafa úr hans heimahögum, því hvaða staðir eru betri en Akranes - og Ólafsvík? se Vörubílar sem Ingibjartur Þórjónsson smíðar. Ingibjartur smíðar falleg leikföng úr tré Ingibjartur Þórjónsson á verkstæði sínu. Heima-Skagi 2021 fer fram næsta laugardag Björn og Martha búa á Vitateig 2. Þau ætla að opna heimili sitt fyrir gestum tónlistarhátíðarinnar Heima-Skagi. Einar Skúlason býr að Vesturgötu 71b. Hann mun taka á móti gestum. Pálmi og Elfa búa að Grundartúni 8. Ísólfur og félagar hans taka á móti gestum Heima-Skaga á Bárunni brugghúsi við Bárugötu. Guðni og Lilja taka á móti gestum Heima-Skaga á heimili sínu að Skóla- braut 40.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.