Skessuhorn - 03.11.2021, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021 21
Kennsluaðferðir FSN eru verkefnamiðaðar og námsmatið leiðsagnarmat og því eru
ekki lokapróf í annarlok.
Fjarnemendum stendur til boða að mæta í tíma með dagskólanemendum í Grundarfirði
eða á Patreksfirði. Kennarar aðstoða nemendur m.a. í MOODLE, TEAMS og í tölvupósti.
Allar frekari upplýsingar fást hjá námsráðgjafa agnes@fsn.is og aðstoðarskólameistara
solrun@fsn.is og í síma 4308400.
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga
hrafnhildur@fsn.is
Dagskóli
Innritun fyrir nám í dagskóla á vorönn
2022 fer fram rafrænt á menntagatt.is
dagana 1. - 30. nóvember.
Fjarnám
Opið er fyrir umsóknir í fjarnám.
Umsækjendur um fjarnám geta skráð sig
í nám á heimasíðu skólans undir flipanum
„Fjarnám“
Stúdentsbrautir:
• Félags- og hugvísindabraut
• Náttúru- og raunvísindabraut
• Nýsköpunar- og frumkvöðlabraut
• Opin braut til stúdentsprófs
• íþróttabraut
Framhaldsskólabrautir
• Framhaldsskólabraut 1
• Framhaldsskólabraut 2
Starfsbraut
Innritun á vorönn 2022
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Bændahöfðingi er orðið sem í huga
kemur þegar minnst er Bjarna í
Nesi, í bestu merkingu þess orðs.
Héraðið hefur misst einn af sínum
bestu forustumönnum. Lífsstarf
hans er á við að margir menn hafi
þar verið að verki. Hann var bóndi
sem skildi eftir sig djúp spor og
verðugt er að heiðra þennan sóma
mann með nokkrum orðum.
Samleið og kynni höfum við
Bjarni í Nesi átt í um 35 ár. Ég sat
minn fyrsta aðalfund Búnaðarsam-
bands Borgarfjarðar um tvítugt,
sá þar fyrst og kynntist forustu-
manni okkar bænda í Borgarfirði.
Framganga hans og framtíðarsýn
var hrífandi ungum manni. Hægt
og örugglega flutti hann mál sitt.
Markmiðin skýr, framlag hans og
vinna fyrir Búnaðarsambandið
langt umfram það sem í raun var
hægt að ætlast til.
Þannig var Bjarni, hann taldi
ekki sporin, hann taldi ekki vinnu-
stundir í þágu samfélagsins. Þess
vegna hefur honum auðnast að
koma mörgu í verk og skila stærra
ævistarfi en flestir menn.
Þakkaskuldin við Bjarna verður
aldrei jöfnuð.
Á vettvangi búnaðarsambandsins
var útgáfa af ritinu Byggðir Borg-
arfjarðar, stórvirki í fjórum bind-
um, ekki síst borin uppi af honum.
Bjarni vann og samdi talsvert af efni
bókanna. Á formanns árum Bjarna
var húsnæði sambandsins stækkað,
starfsemin aukin og lagður grunnur
að sameiningu búnaðarsambanda á
Vesturlandi undir merkjum Búnað-
arsamtaka Vesturlands.
Búnaðarsambandið var í for-
ustu fyrir baráttu um bættar sam-
göngur um héraðið. Að sótt væri
til nýrra atvinnuhátta í sveitum. Að
nýta tækifærin, byggja á auðlindum
sveitanna.
Bjarni sat sem fulltrúi Búnaðar-
sambands Borgarfjarðar mörg kjör-
tímabil á Búnaðarþingi og gegndi
trúnaðarstörfum fyrir Bændasam-
tök Íslands.
Bjarni var leiðtogi. Hann sá fyr-
ir mörgu, hann skynjaði betur en
flestir menn, sem ég hef átt sam-
leið með, breytingar. Hann var líka
óhræddur við breytingar, við að
umbylta.
Fyrir endurreisn Reykholts-
staðar, verður hans vafalaust
lengst minnst. Enda stórbrotið af-
rek. Samheldni og samstarf þeirra
sr. Geirs Waage, til að skapa þar
glæsilegt kirkju-, menningar- og
fræðamiðstöð munu fáir leika eftir.
Segja má að þar hafi hann lagt allt
sitt undir í bókstaflegri merkingu.
Hann vílaði ekki fyrir sér að vinna
að því með eigin höndum og tíma.
Veðsetja jörð sína og bú til að koma
framkvæmdum áfram.
Mér er minnisstætt að eitt sinn
er ég leitaði til hans um aðstoð í
félagsmálum bænda, mætti hann
heim til okkar með sex metra stál-
bita hengdan á bíl sinn. Af því
að hann átti leið um og gat nýtt
ferðina, vegna aðdrátta við kirkju-
bygginguna. Hann gekk í að útvega
orgel sem verið var að taka nið-
ur í annarri kirkju og þar sem ekki
var komið að því að setja það upp í
hinni nýju Reykholtskirkju byggði
hann geymslu yfir það í Nesi og
hýsti árum saman. Svona starfa að-
eins hugsjónamenn.
Á vettvangi búskapar bar bú hans
framsýni hans merki. Hann byggði
með fyrstu bændum á Íslandi,
fjós með legubásum og mjaltabás.
Hönnuður að því fjósi var rétt ný-
kominn frá skóla, er Bjarni bað um
teikningu að slíku fjósi og í áratugi
eftir það, byggðu bændur eftir eldri
hönnun.
Annað merkisframtak hans var
að láta flytja inn til landsins rúllu-
bindivél. Bjarni hafði lesið í norsku
landbúnaðarriti um slíka tækni og
mætti til vélaumboðsins með blað-
ið og bað um að flutt yrði inn fyr-
ir búið í Nesi Claas rúllubindivél.
Sú fyrsta hér á landi. Búið í Nesi
í Reykholtsdal var líklega fyrsta
búið á Íslandi að verka allt sitt hey
í rúlluböggum. Tækni sem hvað
mest breytti heyskaparháttum
bænda í seinni tíma, og má segja að
hafi verið forsenda þess nútíma bú-
skapar sem er í landinu í dag.
Ég varð með ákveðnum hætti
sporgöngumaður Bjarna, á vett-
vangi félagsmála. Það voru Bjarni í
Nesi og Kristján Axelsson í Bakka-
koti sem höfðu afgerandi áhrif á að
tveir ungir bændur völdust til að
sitja búnaðarþing. Við áttum seinna
báðir eftir að gegna formennsku í
Bændasamtökum Íslands. Bæði þá
og síðar var Bjarni ráðhollur og
traustur bakhjarl.
Það er ungum mönnum hollt að
vera treyst til slíkra verka og geta
átt vinskap og stuðning þeirra sem
reynslu hafa. Má segja að Bjarni
Guðráðsson hafi öðrum fremur
haft afgerandi áhrif á þá leið sem ég
hef sjálfur fetað frá þeim tíma að ég
sat minn fyrsta aðalfund Búnaðar-
sambands Borgarfjarðar. Fyrir leið-
sögn hans og vináttu þakka ég.
Bjarni varð aldrei gamall, þó
aldurinn væri orðinn hár. Þrek hans
var aðdáunarvert. Vinnusemi og
áhugi á framkvæmdum og framför-
um. Eftir að búskap með kýr lauk í
Nesi, breytti hann hluta túna sinna
í golfvöll. Byggði upp myndar-
lega aðstöðu og opnaði hús sín fyr-
ir margskonar starfsemi. Allt fram
á síðasta dag. Ekki fyrir löngu hitti
ég Bjarna heima í Nesi. Hann þá að
slá golfvöllinn. Þar var Bjarna best
lýst – alltaf leitandi og óhræddur að
feta nýjar leiðir.
Guð blessi minningu bænda-
höfðingjans, Bjarna Guðráðssonar
í Nesi.
Haraldur Benediktsson, bóndi
Vestra-Reyni
Krónan hefur úthlutað 25 verk-
efnum og aðilum um sjö milljónir
króna í formi samfélagsstyrkja fyrir
verkefni sem hvetja til hollustu og
hreyfingar barna eða verkefna sem
hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu í
nærsamfélagi Krónunnar. Af þeim
25 verkefnum sem fengu styrk eru
17 á landsbyggðinni, þar af tvö á
Akranesi. Muninn kvikmyndagerð
hlaut styrk fyrir verkefni Jólagleði
í Garðalundi og Fjölbrautaskóli
Vesturlands á Akranesi fékk styrk
vegna Heilsuviku.
argÍ minningu
Bjarna í Nesi
Krónan veitti tveimur verkefnum á Akranesi styrk
Frá Jólagleði í Garðalundi 2019. Ljósm. úr safni