Skessuhorn - 03.11.2021, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021 23
Kynningarfundurinn verður haldinn 11. nóvember næstkomandi milli
klukkan 20:00-22:00 í Hjálmakletti, Borgarbraut 54, Borgarnesi.
Á fundinum verður boðið upp á kaffi og léttar veitingar.
Umhverfismat vegna
vindorkuverkefnisins Múla
Qair Iceland ehf. áformar að reisa
vindorkugarðinn Múla. Þróunarverkefnið
er matsskylt skv. lögum um umhverfismat
framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, tl. nr. 3.02 í
1. viðauka laganna.
Nú hugar þróunaraðili að því að halda
opinn kynningarfund og eru íbúar og
hagsmunaaðilar hvattir til að mæta
og kynna sér verkefnið. Einnig verður
fyrirhugað umhverfismat til umfjöllunar þar
sem starfsmenn EFLU verkfræðistofu kynna
helstu áherslur matsins auk þess að leita
upplýsinga frá fundarmeðlimum.
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Haustið er uppskerutími íþrótta-
félaga og þar á meðal hestamanna.
Landssamband hestamanna veitti
um liðna helgi viðurkenningar fyr-
ir knapa ársins og keppnishesta-
bú ársins 2021 á sérstakri verð-
launahátíð. Einnig veitti Meist-
aradeildin í hestaíþróttum efnileg-
asta knapa ársins viðurkenningu.
Árni Björn Pálsson er knapi ársins
2021, Jakob Svavar Sigurðsson er
íþróttaknapi ársins, Konráð Valur
Sveinsson skeiðknapi ársins, Dan-
íel Jónsson gæðingaknapi ársins,
Guðmar Freyr Magnússon efnileg-
asti knapi ársins 2021 og Árni Björn
Pálsson er kynbótaknapi ársins. Þá
voru Þúfur í Skagafirði, bú þeirra
Gísla Gíslasonar og Mette Mann-
seth, valið keppnishestabú ársins. Á
verðlaunahátíð LH 2021 voru tve-
ir félagsmenn sæmdir heiðursverð-
launum LH. Það eru þeir Halldór
Halldórsson fyrrverandi formaður
reiðveganefndar LH og Helgi Sig-
urðsson dýralæknir.
Við þetta má bæta að á for-
mannafundi í Landssambandi
hestamannafélaga nýverið var Lár-
us Ástmar Hannesson í Stykkis-
hólmi sæmdur gullmerki LH fyr-
ir aðkomu hans að félagsmálum
hestamanna. Hann var eins og
kunnugt er formaður LH í sex ár.
Það var Guðni Halldórsson nú-
verandi formaður LH sem nældi í
hann merkinu.
mm
Tæknimessa verður haldin í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi
í fjórða sinn á morgun, fimmtudag.
Þá er nemendum í 8.-10. bekk af
öllu Vesturlandi boðið í heimsókn
á Akranes þar sem þau fá kynningu
á iðnnámi og afreksdeild FVA auk
þess sem nokkur fyrirtæki kynna
sína starfsemi fyrir ungmennun-
um. Þá fara þau að Grundartanga
þar sem Ólafur Adolfsson, formað-
ur stjórnar Þróunarfélags Grundar-
tanga, tekur á móti hópnum og sýn-
ir og segir frá starfsemi á svæðinu,
en vegna Covid verður ekki hægt
að fara inn á vinnustaðina. Þá verð-
ur farið með krakkana í Nýsköp-
unarsetrið á Breið þar sem þeim
verður skipt í hópa og fá kynningu
á starfsemi nokkurra fyrirtækja sem
hafa þar aðstöðu. Í hádeginu mun
Hugrún og hennar teymi í mötu-
neytinu í FVA elda lasagna fyrir
þessa 800 nemendur sem væntan-
legir eru í heimsókn.
arg
Tæknimessa í FVA
á morgun
Frá Tæknimessu árið 2019. Ljósm. úr safni/ arg
Bestu knapar ársins,
ræktunarbú og gullmerki
Lárus Ástmar hlaut gullmerki LH. Til hægri er Stefán Logi Haraldsson og vinstri Ól
afur Þórisson. Ljósm. mv.
Jakob Svavar Sigurðsson er íþróttaknapi ársins 2021. Ljósm. LH.