Skessuhorn - 03.11.2021, Síða 32
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 202132
Pennagrein
Bókaútgáfan Hólar sendir frá sér
þó nokkrar bækur á þessu ári. Þar
ber fyrst að nefna Fuglar á Íslandi
og árstíðirnar fjórar, með undir-
titlinum Fugladagbókin 2022, sem
er nýjung á íslenskum bókamark-
aði og einkum hugsuð fyrir þau
fjölmörgu, ung og eldri, sem hafa
áhuga á fuglum, ekki síst í nærum-
hverfinu, þótt einnig megi nota
bókina sem venjulega dagbók. Í
henni er t.d. hægt að skrá hjá sér
í hverri viku ársins þær tegundir,
og fjölda innan hverrar og einnar,
sem sjást þennan eða hinn daginn,
auk þess sem ítarlegur fróðleikur er
um 52 af þeim rúmlega 400 fugla-
tegundum sem hingað hafa kom-
ið til lengri eða skemmri dvalar frá
því farið var að halda tölur um slíkt.
Bókin er prýdd glæsilegum fugla-
myndum og er höfundur hennar
Sigurður Ægisson.
Spæjarahundurinn heitir ævin-
týrabók eftir Guðjón Inga Eiríks-
son og fjallar hún um bráðskarpan
hund sem leysir hin erfiðustu saka-
mál, sem lögreglan hefur í rauninni
gefist upp á og hér verður hann
að taka á öllu sínu ef ekki á illa að
fara, fyrir honum og heiminum öll-
um. Halldór Baldursson teiknaði
myndirnar í bókinni og setja þær
mikinn svip á hana eins og vænta
mátti.
Ógn – ævintýrið um Dísar-Svan,
eftir Hrund Hlöðversdóttur, fjall-
ar um Svandísi, 14
ára gamla, sem flytur
úr borginni norður
í land. Amma henn-
ar heldur því fram að
álfar séu til og seg-
ir barnabörnunum
sögur úr álfheimum.
Svandís trúir ekki á
álfa en þegar dular-
full skilaboð berast
henni er hún ekki
lengur viss í sinni
sök. Í kringum hana
er margt einkenni-
legt á kreiki. Köttur
með rauð augu,
dularfullir hestar og
fólk sem ef til vill er
annað en það sýn-
ist vera. Hún flæk-
ist inn í baráttu góðs
og ills, kynn-
ist ástinni og
þarf ásamt
vinum sín-
um að glíma
við ógurlegar
kynjaskepnur.
Sagan byggir
á þjóðsagna-
arfi okkar Ís-
lendinga og
tengir saman
tvo heima,
r a u n h e i m a
sem við
þekkjum öll
og huldu-
heima sem
færri þekkja.
Á vor-
dögum kom
út ljóðaúr-
val Hjálmars heitins Frey-
steinssonar, lengi heim-
ilislæknis á Akureyri, en
það heitir Ekki var það illa
meint og geymir mörg gullkornin.
Eins og þetta, sem ber heitið Skag-
firsk fræði:
Margrét frá Mannskaðahóli
er mögnuð á torfæruhjóli.
Af ótuktarskap
sinn eiginmann drap
á toppnum á Tindastóli.
Hjálmar var okkar fremsta
„skemmtiskáld.“ Hann sá atburði
líðandi stundar í öðru ljósi en all-
ir aðrir og deildi þeirri kímni sem
hann bjó yfir óspart með okkur
hinum.
Svo má nefna léttmetisbækurn-
ar: Brandarar, þrautir og gátur,
Spurningabókin 2021 og Fótbolta-
spurningingabókin 2021. Í þeirri
síðastnefndu er m.a. annars spurt
um íslenska boltann, enska bolt-
ann, Evrópumótið síðasta sumar,
Evrópudeildina, Meistaradeildina
og íslenska atvinnuknattspyrnu-
menn, fyrr og síðar. Þá kem-
ur út þriðja heftið af hinum vin-
sælu Fimmaurabröndurum, en
efnið þar er sótt í hina vinsælu síðu
Fimmaurabrandarafjelagsins.
-fréttatilkynning
Út var að koma hjá Bókaútgáfunni
Hólum bókin Fimmaurabrandarar
3 sem unnin er upp úr smiðju hins
vinsæla Fimmaurabrandarafjelags.
Hér er gripið niður í bókina:
Í gær ætlaði ég að segja góðan
brandara um IKEA en ég er enn að
setja hann saman.
Hvernig bragð er að stafasúpu?
Nú, auðvitað orðbragð.
Hatið þið það ekki þegar fólk spyr
spurninga og svarar þeim sjálft? Ég
geri það!
Ætli gæinn, sem fann upp orðatil-
tækið „One hit wonder“, hafi kom-
ið fram með annað vinsælt orða-
tiltæki?
Hvar lærði Jesús að ganga á vatni?
Í Krossá.
Nú eru allir að tala um hr-
ingrásarhagkerfið; endurnota,
endurnýta, endurvinna. En vilja
endurnar þetta endilega?
Ef skilvindan bilar, verður mjólkin
þá misskilin?
Ég hellti óvart G-mjólk í sófann
og það kom g-blettur. Nær maður
þessu úr með því að nudda hann?
Ef maður gengur þá hleypur mað-
ur ekki í spik.
Ég er að spá í að smíða mitt eig-
ið sjónvarpstæki. Hvar ætli maður
geti keypt sjónvarpsefni?
Góður svefn er ekki aðeins heilsu-
samlegur… Hann styttir vinnu-
daginn líka heilmikið!
Þegar Aðalbjörg svarar ekki í sím-
ann hringi ég í Varabjörgu.
Jólin nálgast. Nú sitja margir með
hendur í skrauti.
Af hverju varð Gosi gjaldþrota? Jú,
hann var rukkaður um svo mikinn
nefskatt.
Sá alvöru fátækling í dag. Hann át
myglaðan ost, drakk gamalt vín og
keyrði svo um á topp-lausum bíl.
mm
Góðir lesendur. Hamast þú nú
Borgarbyggð, að atvinnu þinni og
sjálfboðaliðum. Það er samlíking
milli atburða vel þekktra úr Eg-
ils sögu er æði rann á Skallagrím
Kveldúlfsson og stefnu Borgar-
byggðar í Brákarey. Veittist hann að
syni sínum Agli en ambáttin Brák
sem var þó Skallagrími mikilvæg,
bjargaði Agli en galt fyrir með lífi
sinu í Brákarsundi er Skallagrímur
setti stein milli herða henni og kom
hvorki upp síðan. Nú hefur sveitar-
stjórn sett þungan stein milli herða
sjálfboðaliða sem og atvinnulífs í
Brákarey og tvísýnt að hvort komi
úr kafinu aftur.
Þetta hefur áhrif eins og neyðar-
köll sjálfboðaliða hafa sýnt undan-
farna mánuði. Sú gríðarlega vinna
sjálfboðaliða sem unnin er í þágu
samfélagsins er brothætt, svo mjög
brothætt að æ erfiðara er að manna
stjórnir og nefndir. Með því að
bregða fæti fyrir gott sjálfboðstarf
og jafnvel neita öllu samtali er illa
komið fyrir litlu samfélagi. Nú
virðist komið að ögurstundu í
mörgu sjálfboðaliða starfi.
Skýrt hefur komið fram á síðum
þessa blaðs að ekki njóta sjálfboða-
liðar meðalhófs varðandi lokanir í
Brákarey. Hvað atvinnuna varðar
er ekki ein báran stök í viðleitni við
að kasta frá sér atvinnunni. Þó ekki
sé það tengt eyjunni þá er skemmst
að minnast þess er nýjasta og full-
komnasta mjólkurbúi landsins var
fórnað til að „bjarga“ gjaldþrota
kaupfélagi og drífa atvinnuna til
Reykjavíkur og Selfoss. Hallar nú
undan búi í landnámi Skallagríms,
en mjólkurbú og kvóti sogast til
Skagafjarðar sem og þingmenn
Norðvesturkjördæmis. En það er
efni í aðra grein. Virðist fram und-
an að fæla alla atvinnu úr Brákar-
ey og fórna
henni á altari
arkitekta og
byggingar-
verktaka. Verkfræðistofur líta svæð-
ið girndaraugum og er mikilvægt
að fá annað álit þegar kemur að því
að dæma hús ónýt eður ei.
Eftir skipulagsklúðrið með Slát-
urhús Vesturlands þar sem opnun
þess tafðist um a.m.k. eitt ár, mætti
halda að Borgarbyggð sæi að sér í
skipulagsmálum og væri stolt af
þeirri atvinnustarfsemi sem rekin
er í eyjunni. Í eyjunni er eitt besta
renniverkstæði landsins, sláturhús
sem er ört vaxandi í landbúnað-
arhéraði, öflugt verktakafyrirtæki,
plastskipasmiðir, nýsköpunarfyrir-
tæki sem flytur út vöru í milljóna-
vís svo fátt eitt sé nefnt. Síðast en
ekki síst er gríðarmikil sjálfboða-
vinna fornbílafélagsins, skotfélags-
ins, golfklúbbsins og fleiri. Sú sjálf-
boðaliða vinna hefur laðað að ið-
andi mannlíf og heimsóknir gesta
í eyjuna.
Það er hart að sá steinn er
sveitarfélagið setti milli herða
þeirra er stunda sjálfboðaliðastörf
valdi samtalsleysi, því sjálfboðaliðar
hafa ætíð verið boðnir og búnir að
bæta húsnæðið með sjálfboðaliða-
vinnu. Það er dauðans alvara að rífa
vel uppsteypt hús. Þar er kolefnis-
sporið mikið. Sú örskotsstund er
tók að finna nýtt húsnæði fyrir bæj-
arskrifstofur sýnir að afkomendur
Skallagríms geta sýnt kjark og þor.
Það ætti ekki að taka örskotsstund
að rífa það sem ónýtt er, laga einn
þakræfil og gera þann húsakost til
sóma er í eyjunni stendur. Vilji er
allt sem þarf og korter í sveitar-
stjórnarkosningar.
Stefán Skafti Steinólfsson
Höfundur er sjálfboðaliði.
Nýútkomnar bækur frá Hólum Ómótstæðilegir
fimmaurabrandarar
Hamast þú nú
Borgarbyggð