Skessuhorn - 03.11.2021, Page 34
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 202134
Krossgáta Skessuhorns
Heim-
ild
Japl
Gabb
Dyra-
sylla
Óhóf
Blöð
Fíl
Skaut
Glóð
Beljaka
Heila
Hvæsa
Spíra
Möndul
Eldi
Athuga
Afar
Duft
Haf
Spök
8
Flík
100
Grípa
6
Samdi
Tónn
Skima
Þegar
Afrek
Kenni-
leiti
Sam
teng.
Borin
Grennd
Kl.15
Frón
Snúin
Eysill
Skjól-
flíkur
Bútar
Óstand
Getur
Korn
Eldstó
Utan
Gleði
Spil
Hestur
Nikka
Öskjur
Tempr-
ar
3
Sök
Slæm
Mas
9 4
Þolin-
móður
Læti
Tvíhlj.
Skel
2 Reim
Keyrði
Ískur
Skessa
Ask
Fugl
Þám
Vein
Kveikur
Hreyf-
ing
Nudd
Hætta
Sund
Svik
Slá
Dunda
Kvað
Hreyfl-
ar
1
Geymsla
Örn
Rötular
Nemur
7
Röð
Átt
Fugl
Hvílir
Klafi
Hrekkir
Mjög
Stærð
Óttast
Virðir
Fálæti
Gelt
Þófi
Karl
5
2 Eins
Bor
Tónn
Leyfist
Stíl-
færa
Spara
Þreytir
Tölur
Mælir
Púki
1 2 3 4 5 6 7 8 9
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Krossgáta er
birt í blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni
lausnarorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukk-
an 15:00 á mánudögum, 12 dögum eftir að hún birtist. Athug-
ið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir
sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn
- krossgáta, Garðabraut 2A, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausn-
ir í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni eftir að hún birtist). Dreg-
ið er úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bók að
launum.
Í síðustu krossgátu var rétt lausn „Málvenjur“. Heppinn þátt-
takandi var Brynja Jóhannsdóttir, Áskinn 5, 340 Stykkishólmi.
F M
M A R G V Í S L Ö G U L E G
L A X R O S K I N Á N T Á
R Á F Ó Ð N Á N D S K A L
G L Æ S T A L A U S Ö L L
S T Y R K U R Á M Á L G A R
S N A T T A S T A U G A
E I L T A K A Á F R Ó Ð
R Á A U K A L D I L A
L A U G K U A R R A A R
Ö L Ö G U R R Ó Á M U R
Ð Ó A Æ S I T U R N
R Ó A R Ó S K T R Ó N A
U N I S I N N I U T A N Ð
N E K T N Á Ó R A E R
L J Ó R I G A L L I Á R A
Í A I Í F A G G N E S T A
K N Á A A R N Ó A N N A T
T A N R Ú K R Ú N A N
M Á L V E N J U R
Sheet3Sheet2Sheet1
Í bílskúrnum við Heiðargerði 3
á Akranesi hefur Þorbergur E.
Þórðarson, byggingameistari og
útfararstjóri, undanfarna mánuði
unnið að nýju híbýli, litlu húsi á
hjólum. Þorbergur fékk þessa hug-
mynd í maí síðastliðnum þar sem
Guðni Einarsson, sonur Einars
Ólafssonar í Einarsbúð, var að
selja gamlar Bauhaus kerrur. „Ég
og Einar, pabbi hans Guðna, erum
miklir vinir og við fáum okk-
ur oftast kaffi saman klukkan níu
flesta morgna, ef það er ekki eitt-
hvað annað á dagskrá. Í einni kaffi-
heimsókninni minni sá ég kerrurn-
ar og þá sló þessu niður í hausinn á
mér, að kaupa eina kerru og smíða
úr henni lítið hýsi fyrir mig,“ seg-
ir Þorbergur og brosir. Kerran
var lokuð kassakerra en Þorberg-
ur skar þakið af, hækkaði veggina,
setti sperrur og smíðaði A-þak yfir.
Þá einangraði hann kerruna í hólf
og gólf, setti glugga, lagði park-
et, smíðaði bekki og borð. Úr varð
þetta fína hús á hjólum.
Kerruna fór Þorbergur svo með
upp í Reykholtsdal í Borgarfirði þar
sem hún verður í geymslu yfir vet-
urinn í Nesi. Næsta vor ætlar hann
að koma kerrunni fyrir í Reykholti
þar sem Sveinn, mágur Þorbergs
býr. „Þar ætla ég að vera í logn-
inu og blíðunni yfir sumarið,“ seg-
ir hann og brosir um leið og hann
býður blaðamanni inn í nýja hús-
ið. Hann segir þau hjónin hafa ver-
ið með athvarf í Reykholti áður en
konan hans lést og þar hafi þau var-
ið miklum tíma í gegnum árin. Þá
segist hann fara að lágmarki hálfs-
mánaðarlega í Reykholt og nýtur
þess mjög að vera þar. „Þarna er
ég sko alveg á heimavelli, eða alla-
vega heimavelli tvö,“ segir hann og
hlær. Hann tekur hundana sína þrjá
með sér, Tásu, Tý og Tönju og þau
njóta þess að ganga um svæðið og
hlaða batteríin í skóginum í Reyk-
holti. „Það er svo mikil kyrrð þarna
og ég verð bara eins og nýr mað-
ur þegar ég kem heim aftur,“ segir
Þorbergur. arg
Þorbergur lagði á borð og bauð blaðamanni Skessuhorns að kíkja í heimsókn í
nýja húsið áður en það fer í vetrargeymslu.
Smíðaði sér lítið hús á hjólum
Þorbergur smíðaði sér þetta litla hús á hjólum til að dvelja í á sumrin í Reykholti.
Þorbergur með hundana sína þrjá, Tönju sem er 12 ára og hvolpana hennar tvo;
Tásu og Tý, sjö ára.
Séð inn í hýsið hans Þorbergs.