Skessuhorn


Skessuhorn - 03.11.2021, Síða 36

Skessuhorn - 03.11.2021, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 202136 www.skessuhorn.is Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Dreifi bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is Pennagrein • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Pennagrein Nauðsynlegir innviðir á borð við nútímasamgöngur, öflugt fjar- skiptasamband, góða heilbrigðis- þjónustu og menntun, sem stenst samanburð við höfuðborgarsvæð- ið, er réttmæt krafa íbúa lands- byggðarinnar. Sundabraut er þjóðhagslega hag- kvæmasta vegaframkvæmdin sem völ er á í dag. Sundabraut styttir akstur til höfuðborgarinnar líklega um hálftíma. Ef 6.000 manns ækju Sundabraut á dag sparaði það 3000 vinnustundir á dag. Það munar um minna. Sundabraut skiptir miklu fyr- ir íbúa Norðvesturkjördæmis, ekki síst fyrir Akranes og Vesturland og myndi styrkja verulega stöðu Akra- ness sem hluta af atvinnusvæði höf- uðborgarinnar. Lagning Sunda- brautar er það mikilvæg vegafram- kvæmd og þjóðhagslega hagkvæm að setja ætti hana í forgang. Mikilvægt er að auka aðgengi ferðamanna að Vesturlandi og áfram til Vestfjarða og Norður- lands vestra með bættum samgöng- um. Þar er Sundabraut mikilvæg- ust, auk betri vegtenginga innan kjördæmisins og til Þingvalla og Suðurlands um Uxahryggi, sem og Breiðafjarðarferja sem stenst nú- tímakröfur. Nýja Breiðafjarðarferju þarf sem fyrst í stað þeirrar sem nú sigl- ir. Núverandi Baldur annar ekki eftirspurn og öryggi farþega er ekki tryggt. Fjórðungssamband Vestfjarða ályktaði um þetta nýlega og benti á að Baldur og siglingar yfir Breiðafjörð væru grunnstoð í samgöngumálum Vestfirðinga. Fiskeldi á Vestfjörðum skilar millj- örðum króna í þjóðarbúið og inn- an fimm ára mun ársframleiðsla fara yfir 50 þúsund tonn, helmingi meira en nú. Flutningar afurða og aðfanga munu því stóraukast og vegakerfið þarf að taka mið af því. Krafa sveitarfélaga á Vestfjörðum er að gamli Herjólfur verði notað- ur í Breiðafjarðarferðir uns ný ferja fæst. Hann hefur síðustu tvö ár ver- ið við bryggju í Eyjum, til vara fyrir Nýja Herjólf. Tekið er undir þessa kröfu hér. Núverandi Baldur stenst ekki nútímakröfur um þægindi í farþegaflutningum og er í engu samræmi við það að ferðaþjónusta er í dag mikilvægasta atvinnugrein þjóðarinnar. Löngu tímabært er að nútíminn hefji innreið sína í samgöngumál- um á Vestfjörðum. Má hér nefna mikilvægi þess að malbikun Dynj- andisheiðar verði lokið sem fyrst, að vegurinn um Suðurfirði til Bíldu- dals verði malbikaður og undirbún- ingur hefjist fyrir jarðgangagerð í gegnum Hálfdán á milli Bíldudals og Tálknafjarðar (6,1 km) og und- ir Mikladal á milli Tálknafjarðar og Patreksfjarðar (2,8 km). Allt eru þetta verkefni sem þing- menn Norðvesturkjördæmis verða að sameinast um enda mikilvæg fyr- ir kjördæmið og landið allt. Sundabraut er það þjóðhags- lega mikilvæg samgöngubót að all- ir þingmenn ættu að geta samein- ast um það verkefni. Eftir Hrun var Harpa byggð sem efldi tónlist- arlíf borgarinnar. Eftir heimsfar- aldurinn ætti þjóðin að sameinast um innviða- og samgöngubætur og lagningu Sundabrautar. Eyjólfur Ármannsson Höfundur var kjördæmakjörinn í 6. sæti í Norðvesturkjördæmi fyrir Flokk fólksins í alþingiskosningunum 25. september sl. Eldri borgarar eru þeir nefnd- ir sem komnir eru á þann ald- ur sem veitir þeim rétt til eftir- launa. Nafngiftin er aukaatriði, en það sem skiptir þennan félagsskap öllu er að hann hafi markmið sem bætt getur afkomu og ekki síst líðan félagsmanna. Það eru sjálf- sögð markmið að standa vörð um kjör eldri borgara, kjör sem hafa farið versnandi síðustu misseri svo óviðunandi er. En hvað get- ur vopnlaus maður? Það þýðir lítið að rétta hinn vangann eins og skrifað er í ónefndu riti. Það þarf ekki að fjasa um það að við lifum á undarlegum tímum svo ekki sé meira sagt. En nú fara breytingar í hönd eða við vonum það þó oftast fari allt í sama farið. Þarna á ég við nýafstaðnar alþing- iskosningar. Þá er um að gera að minna þá fulltrúa sem nú hafa náð kjöri á að standa við gefin loforð. Eins má minna á að doði borgar- anna er oftast þannig að rumskað er rétt fyrir kosningar. En hvað skyldi nú valda því að svo illa gengur að bæta kjör eldri- borgara og kjörin svo ömurleg sem raun ber vitni? Og gæti það einnig verið að þeir sem fara með þennan málaflokk þurfi ekki að kvíða ellinni miðað við að þeim lánist að verða gamlir, því þeir hafa þegar tryggt sér góðan lífeyri nú þegar. Ekki veit ég, en eitthvað er að. Sem betur fer eru til eftir- launahópar sem hafa góðan lífeyri og í sumum tilfellum meira en þeir geta torgað. Breytingar? Það er spurningin. Frá því fyrir ca. hálfri öld er ég fór að fylgjast með þjóðmálum eins og hinn almenni stritari, ekki endilega kafa djúft í spillinguna, hefur nánast lítið breyst. Ríkis- stjórn eftir ríkisstjórn hefur ekki tekist eða viljað koma kjörum svokallaðra eldri borgara þannig fyrir að sómi sé að. Í viðtölum við ráðamenn eru svörin að mál- ið er í skoðun og vonir standa til breytinga. Þannig að skilaboðin eru: Haldið í vonina. Umræðan þarf að vera lausna- miðuð, því að samtíma sagnfræði skilar litlu og grein eftir grein sem lýsir ömurlegum kjörum sem auð- vitað á rétt á sér og hamra þarf á, en virðist ekki ná eyrum þeirra sem með málaflokkinn fara. En þá er þrautin þyngri því lausnin liggur ekki á borðinu því þeir sem ráða málaflokkn- um þverskallast sífellt, enda bún- ir að tryggja sér öruggt ævikvöld allavega fjárhagslega, en heils- una kaupir enginn. Það þarf að jafna kjör eftirlaunaþega. Mis- skiptingin þar er orðin óþolandi eins og raunar í öllu þjóðfélaginu. Velferðarráðuneytið gefur út við- miðunartölur sem þarf til lág- marks framfærslu, en eftir því er ekki farið. Alþingi er nú vel mannað ungu fólki. Eigum við að binda von- ir við þann hóp vaskra kvenna og manna? Því miður er lítil von til þess að þeir sem hafa allt að tí- föld laun margra þeirra sem berj- ast við okurhúsnæðiskostnað skilji og finni hinn raunverulega vanda. Þeir sem hættir eru störfum vegna aldurs, sjúkdóma eða hvað það er sem gerir viðkomandi óvinnufær- an, eiga ekki að þurfa að standa í kjarabaráttu. Það á að vera metn- aður frjálsrar og velmegandi þjóð- ar að tryggja þeim sem af elju og samviskusemi hafa lagt sitt að mörkum til uppbyggingu þjóð- félags sem rifið hefur sig upp á stuttum tíma úr moldarkofunum í það að vera eitt besta í heimi. Það er ekki eitt besta í heimi ef eftirlaunaþegum er ekki tryggð lágmarks framfærsla. Annað er sjálfstæðri þjóð ekki samboðið. Það má nefna t.d. eitt atriði sem leggja þarf áherslu á, það er að eldri borgurum verði gert mögu- legt að búa sem lengst í húsum og íbúðum sínum, sem þeir hafa stritað fyrir alla sína ævi á heiðar- legan hátt og hvergi komið nálægt fjármálasukki. Þarna er ég með í huga hin mjög svo háu fasteigna- gjöld. Þau eru að mínu mati ekki sanngjörn gagnvart láglaunahóp- um, hvað svo sem má segja um þá sem eru með ofurlaun án þess að ég skilgreini það nánar. Nú eigum við að fylgjast með hverjar áherslur flokkanna verða fyrir næsta kjörtímabil og er mér þá skiljanlega ofarlega í huga mál- efni eldra fólks, því nú er ég flokk- aður meðal þeirra og verð að lifa af skammtinum eins og ég kalla það. Ég nefndi hér áðan undar- lega tíma. Þegar lífskjörin hafa versnað sem aldrei fyrr þá geng- ur það auðvitað ekki að hjá stjórn- völdum, að seilast sýknt og heilagt í vasa þeirra sem eru nánast tóm- ir, því þannig hefur það verið. Það er ekki hygginna manna háttur að róa á mið þar sem lítið eða ekkert er að hafa. Hvorki ég eða nokkur getur kennt þeim sem völdin hafa, því þeir virðast lítið heyra, eða sjá það réttlæti sem felst í því að borgurum þessa lands þurfi ekki að kvíða ellinni eða ævikvöldi sem á að vera hverjum manni nota- legt miðað við að heilsan sé í lagi, og skilað hefur góðu ævistarfi af þrautseigju og samvisku. En til þess að eitthvað breyt- is til batnaðar verða viðkomandi að láta heyra í sér og rökstyðja sitt mál og hamra á þvi endalaust. Þannig hefur það verið og mun alltaf verða, að þeir fiska sem róa. Ég óska eldri borgurum alls hins besta í allri baráttu og starf- semi komandi ára. Ingibjartur G. Þórjónsson Góðborgarar á Íslandi – er vonin ein eftir? Sundabraut og ný Breiðafjarðarferja í forgang

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.