Skessuhorn - 03.11.2021, Síða 38
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 202138
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir þegar þú ert
ekki í skólanum?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Grunnskóla
Snæfellsbæjar í Ólafsvík)
Matthías Daði Gunnarsson
„Vera í fótbolta.“
Gabríel Berg Rúnarsson
„Líkamsræktin.“
Kristall Blær Barkarson
„Að skellinaðrast.“
Arnar Tryggvi Karlsson
„Fara í fótbolta.“
Eyþór Júlíus Hlynsson
„Keyra vespu.
Knattspyrnufélag ÍA hefur ráð-
ið Aldísi Ylfu Heimisdóttur sem
aðstoðarþjálfara meistaraflokks
kvenna og þjálfara 2. flokks kvenna.
Aldís Ylfa sem er 25 ára hefur þjálf-
að í yngri flokkum félagsins í mörg
ár og aðstoðað við þjálfun yngri
landsliða. Aldís Ylfa er með KSÍ
B þjálfaragráðu og sækir nú nám-
skeið til KSÍ A réttinda. Hún mun
því starfa með Magneu Guðlaugs-
dóttur sem ráðin var aðalþjálfari hjá
meistaraflokki og 2. flokki kvenna á
dögunum.
vaks
Borgnesingurinn Alexandrea Rán
Guðnýjardóttir keppti á föstu-
daginn á Heimsmeistaramóti ung-
linga í klassískri bekkpressu sem
fram fór í Vilníus í Litháen. Þar
nældi hún í silfurverðlaun í -63
kg flokki þegar hún lyfti 97,5 kg
og bætti þar með sinn persónu-
lega árangur um fimm kíló. Hún
reyndi við nýtt Íslandsmet í þriðju
lyftu þegar hún var með 102,5 kíló
á stönginni. En sú lyfta mistókst
naumlega.
arg
A ð a l f u n d u r
Krabbameins-
félags Borgar-
fjarðar verður
haldinn mánu-
daginn 8. nóv-
ember kl. 20:00
í sal Brák-
arhlíðar í Borg-
arnesi. Á dag-
skrá fundar er
heimsókn frá Unni iðjuþjálfara frá
Ljósinu. Ljósið er endurhæfingar-
og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem
hefur fengið krabbamein og að-
standendur þeirra. Loks eru venju-
leg aðalfundarstörf. „Þar verða
meðal annars ræddar breytingar
á samþykktum félagsins í takt við
tímann og kynnt dagskrá vetrar-
ins. Stjórn hvetur bæði félagsmenn
og aðra áhugasama til að mæta og
bæta í hug-
m y n d a b a n k -
ann hvern-
ig hægt sé að
auka við þjón-
ustu og dag-
skrá félagsins á
svæðinu í þágu
bæði krabba-
meinsgreindra
og aðstandenda
þeirra. Við veltum upp hvernig við
getum bæði staðbundið og raf-
rænt aðstoðað og náð til fólks bæði
í þéttbýli og til sveita sem glímir
við krabbamein í sínu daglega lífi.
Og hvað fólk vill almennt aðstoð
með? Er það helst endurhæfing?
Réttindamál? Námskeið? Spjöll-
um saman,“ segir í tilkynningu frá
Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar.
mm
Það var líf og fjör á leikskólanum
Krílakoti í Ólafsvík á miðvikudag
í síðustu viku. Þá mættu allir sem
vildu í búningum, bæði börn og
starfsfólk. Haldið var Halloween
ball og mátti vart á milli sjá hverj-
ir væru spenntari fyrir deginum
börnin eða starfsfólkið og greini-
lega búið að undirbúa daginn vel.
Í leikskólanum mátti þennan dag
sjá bæði beinagrindur, nornir, pr-
insessur, ofurhetjur og ýmiskonar
verur.
þa
Píluklúbbur Akraness hélt Meist-
aramótið í pílu á laugardaginn í að-
stöðu Pílufélagsins í íþróttahúsinu
á Vesturgötu og voru tíu leikmenn
skráðir til leiks. Mikil barátta ein-
kenndi mótið og margir hörkuleik-
ir sem fóru fram. Í fyrri undanúr-
slitaleiknum kepptu þeir Sigurður
Tómasson og Stefán Bjarki Ólafs-
son. Óhætt er að segja að Siggi
Tomm hafi sópað Stefáni Bjarka
undir teppið, eins og oft er sagt
á pílumáli, því Siggi Tomm vann
leikinn 5-0. Í hinum undanúr-
slitaleiknum mættust þeir Sverrir
Þór Guðmundsson, meistarinn frá
því í fyrra, og Sigurður Guðfinns-
son. Úr varð ótrúlega spennandi
viðureign þar sem Diddi eins og
hann er kallaður komst yfir 4-3 í
leiknum og virtist vera að tryggja
sig inn í úrslitin. En Sveppi eins og
Sverrir er nefndur náði að jafna 4-4
og hafði síðan mikla yfirburði í síð-
asta leggnum og endaði viðureign-
ina á glæsilegu Bulls Eye.
Úrslitaleikurinn var þó ekki eins
spennandi því Siggi Tomm var á
eldi þennan laugardaginn, sigraði
Sveppa og legginn örugglega og
með miklum tilþrifum 7-2. Siggi
Tomm fagnaði því sigri á Akra-
nesmeistaramótinu í pílu árið 2021
og ljóst að það verður sótt hart að
honum þegar hann ver titilinn á
næsta ári.
vaks
Hrekkjavaka á Krílakoti
Frá Krabbameinsfélagi
Borgarfjarðar
Aldís Ylfa ráðin
aðstoðarþjálfari hjá ÍA
Alexandrea kom
heim með silfur
Siggi Tomm vann Meistaramótið í pílu
Glaðbeittir kepp-
endur á mótinu.
Þessir kepptu í undanúrslitunum: Sveppi, Stebbi, Siggi og Diddi.