Skessuhorn


Skessuhorn - 30.03.2022, Síða 8

Skessuhorn - 30.03.2022, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 20228 Fjöliðjan fær bif- reið með lyftu AKRANES: Bæjarráð Akra­ ness samþykkti á fundi um miðjan febrúar að kannað yrði með leigu á sérútbúinni bifreið með lyftu fyrir hjóla­ stóla fyrir starfsemi Fjöliðj­ unnar. Á fundi bæjarráðs síð­ asta fimmtudag kom fram að leitað hafi verið eftir upplýs­ ingum hjá leigufélögum um leigu á sérútbúinni bifreið en slík bifreið er ekki til og tæki það einhverja mánuði að útbúa slíka. Á söluskrá er sér­ útbúin bifreið sem stenst allar kröfur og þarfir fyrir starfsemi Fjöliðjunnar í dag. Kostnaður við bifreiðakaupin er 6,8 millj­ ónir og samþykkti bæjarráð kaup á henni en leiga á slíkum bíl er ekki möguleg þar sem engin slík er til í landinu. Það tekur að lágmarki sex mánuði að fá bíl erlendis frá og fyrir­ séð að kostnaður yrði þá mikið mun hærri, segir í fundargerð. -vaks Ráðinn sölu- stjóri hjá Origo AKRANES: Skagamaður­ inn Ísleifur Örn Guðmunds­ son hefur verið ráðinn sölu­ stjóri gæða­ og innkaupa­ lausna hjá upplýsingatækni­ fyrirtækinu Origo og verð­ ur hlutverk hans að stýra og efla sölustarf deildarinnar. Í tilkynningu segir að Ísleifur Örn hafi undanfarin ár starf­ að sem framkvæmdastjóri inn­ flutningsfyrirtækisins Habit­ us. Þá hefur hann einnig starf­ að sem sölu­ og markaðs­ stjóri ferðaþjónustufyrirtæk­ isins Safari Quads og tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum tengt stjórnun og stefnumót­ un. Ísleifur Örn stundaði og lauk BS gráðu í viðskipta­ fræði með áherslu á stjórnun frá University of Alabama in Huntsville í Bandaríkjunum og Háskóla Íslands. -vaks Aflatölur fyrir Vesturland 19.-25. mars Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes: 12 bátar. Heildarlöndun: 3.025.666 kg. Mestur afli: Venus NS: 1.000.788 kg í einni löndun. Arnarstapi: 3 bátar. Heildarlöndun: 96.256 kg Mestur afli: Kristinn HU: 46.669 kg í sex löndunum Grundarfjörður: 14 bátar. Heildarlöndun: 970.947 kg. Mestur afli: Brynjólfur VE: 256.065 kg í fjórum róðrum. Ólafsvík: 14 bátar. Heildarlöndun: 286.873 kg. Mestur afli: Guðmund­ ur Jensson SH: 37.756 kg í þremur löndunum. Rif: 13 bátar. Heildarlöndun: 685.995 kg. Mestur afli: Bárður SH: 258.733kg í fimm róðrum. Stykkishólmur: 3 bátar. Heildarlöndun: 281.086 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 275.116 kg í ellefu löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Venus NS – AKR: 1.000.788 kg. 24. mars. 2. Svanur RE – AKR: 560.800 kg. 23. mars. 3. Hákon EA – AKR: 425.022 kg. 23. mars. 4. Guðrún Þorkelsdóttir SU – AKR: 283.274 kg. 22. mars. 5. Víkingur AK – AKR: 232.213 kg. 22. mars. -dóh Síðastliðinn laugardag rigndi mik­ ið um vestanvert landið samhliða hlýjum vindum. Snjóbráð var sam­ kvæmt því mikil. Árnar í Borgar­ firði höfðu engan veginn við vatns­ flaumnum og margar sem brutu­ st fram með klakahlaupi og látum. Meðal annars var óvenjulega mikið flóð í Andakílsá og Gufuá sem alla jafnan er eins og smálækjarspræna. Þá hafði hefðbundinn farvegur Hvítár ekki undan að færa til sjávar allt vatnið af upptökusvæði árinn­ ar. Meðfylgjandi mynd var tekin á afleggjaranum að Hvítárbakka, en þar flæddi yfir veginn og nokkrir heybaggar fóru auk þess á siglingu og stefndu til sjávar. mm/ Ljósm. Hulda Hrönn Sigurðard. Aðgerðahópur gegn vindorkuver­ um í Norðurárdal í Borgarfirði hef­ ur sent erindi á alla frambjóðend­ ur til sveitarstjórnar í Borgarbyggð. Hópurinn vill að skýr afstaða fram­ bjóðenda liggi fyrir í málinu áður en gengið verður til kosninga til sveit­ arstjórnar í vor. Erindið undirrita 90 íbúar og landeigendur í héraðinu. Í erindi segir m.a.: „Á þessu kjörtímabili sveitar­ stjórnar í Borgarbyggð hafa íbúar í Norðurárdal og Þverárhlíð staðið í ströngu. Landeigendur, fjölskyld­ ur þeirra og annað fólk sem á þar athvarf eða er annt um þessar nátt­ úruperlur Borgarfjarðar hafa mátt standa í baráttu við erlenda menn og húskarla þeirra sem vilja reisa risa­ vaxin vindorkuver í Norðurárdal og Þverárhlíð. Við teljum að þessi áform séu óbætanleg náttúruspjöll, verði af framkvæmdum, og atlaga að tilveru okkar. Við höfum barist á móti þess­ um átroðningi af fremsta megni og um þá mótstöðu er yfirgnæfandi og eindregin samstaða. Sveitarstjórn­ in getur leyst þetta vandamál. Hún hefur það vald sem til þess þarf og við völdum þangað fólk sem við treystum til þess að verja hagsmuni okkar. Nú eru sveitarstjórnarkosningar framundan. Þá koma þeir fram sem vilja þjóna okkur á næsta kjörtímabili og gera grein fyrir hugmyndum sín­ um um betra samfélag og segja okk­ ur hvernig þeir ætla að vinna að því. Nú leitum við til ykkar sem eruð í framboði og förum fram á það að þið svarið þessu erindi og gerið ljósa grein fyrir því hver afstaða ykkar er í þessu máli. Við þurfum á aðstoð ykkar að halda og við þurfum þess vegna að þekkja skoðanir ykkar. Sú þekking er okkur nauðsynleg í þeirri baráttu sem framundan er,“ segir í fyrirspurn sem 90 kjósendur, land­ eigendur og náttúruverndarsinnar í Borgarbyggð hafa sent frambjóð­ endum. mm Nóg hefur verið að gera á hvala­ skoðunarbátnum Írisi að undan­ förnu. Gísli Ólafsson skipstjóri og eigandi Írisar segir að síðustu daga hafi verið talsvert um afbókanir og þá aðallega út af veðri, en auk þess er vetrarfríið búið í Evrópu. Gísli kveðst vera búinn að fá alveg nóg af þessari ótíð sem af er vetri. „Við förum sjálfsagt ekki á sjó fyrr en á mánudag eða þriðjudag, það er leiðinda spá framundan,“ sagði hann þegar rætt var við hann á föstudaginn. „En það hefur verið nóg af hval að undanförnu og það gleður gests hjartað að sjá hval rétt við bæjardyrnar leika listir sínar,“ segir Gísli. Hann segist ekki eiga von á að farþegum fjölgi hjá sér fyrr en í júní. Fjórir eru í áhöfn Írisar. Útgerðin er skráð í Grundarfirði en gert er út frá Ólafsvík. af Aðgerðarhópur gegn vindorku- verum spyr frambjóðendur Asahláka og flóð í borgfirsku ánum Íris að láta úr höfn á fimmtudaginn með gesti í hvalaskoðun. Ótíðin einnig verið erfið hvalaskoðunarskipum

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.