Skessuhorn


Skessuhorn - 30.03.2022, Qupperneq 10

Skessuhorn - 30.03.2022, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 202210 Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis­, orku­ og loftslagsráð­ herra, gerði í vikunni sem leið grein fyrir úthlutun fjármuna til upp­ byggingar innviða og náttúruvernd­ ar á ferðamannastöðum. Gert er ráð fyrir um 2,8 milljarða króna fram­ lagi til næstu þriggja ára. Í ár verð­ ur úthlutað rúmlega 914 milljón­ um króna úr Landsáætlun um upp­ byggingu innviða sem gerir kleift að halda áfram því verkefni að byggja upp efnislega innviði á ferða­ mannastöðum, svo sem göngustíga, útsýnispalla, bílastæði og salerni. Aukin áhersla er á langtímaáætlan­ ir í uppbyggingu staða en einnig á aukna miðlun og merkingar, ekki síst á stöðum þar sem samspil er á milli náttúru og menningarsögu­ legra minja. 65 nýir staðir Landsáætlun um uppbyggingu inn­ viða til verndar náttúru og menn­ ingarsögulegum minjum er stefnu­ markandi áætlun sem Alþingi sam­ þykkti 2018. Verkefnaáætlanir eru gerðar til þriggja ára og eru upp­ færðar á hverju ári. Ný verkefnaá­ ætlun sem ráðherra kynnti nær til áranna 2022­2024. Alls er nú 151 verkefni á áætlun næstu þriggja ára á rúmlega 90 ferðamannastöð­ um, þar af 65 ný verkefni sem bæt­ ast við að þessu sinni. Meðal stórra verkefna má nefna uppbyggingu á Geysissvæðinu, byggingu útsýnis­ palls og göngustíga í Ásbyrgi, yfir­ byggingu minja þjóðveldisbæjar­ ins á Stöng í Þjórsárdal, skála með góðri heilsárs salernisaðstöðu í Vaglaskógi, vandaða göngustíga við Búrfellsgjá, áframhaldandi umbæt­ ur á aðgengi ofan við Gullfoss með steyptum stígum og frekari skref til bættrar aðstöðu við Jökulsárlón. Tæp 5% á Vesturland Í landsáætlun um uppbyggingu innviða frá 2022­2024 eru þrettán verkefni á Vesturlandi sem hljóta styrki, alls að upphæð 136,6 millj­ ónir króna, en það jafngildir 4,86% af því fé sem ráðstafað verður næstu þrjú árin á landinu öllu. Þessi svæði á Vesturlandi eru öll á forræði Umhverfisstofnunar, Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls og Minjaverndar. Þetta eru: Arnarstapi / Hellnar. Deiliskipulag; endurbætur á göngustíg að Músa­ gjá. 8.000.000 kr. Búðir – friðland. Aðkomusvæði við Sjávargötu og Klettsgötu. 5.684.000 kr. Eldborg í Hnappadal. Bílastæði fyrir gesti sem fara á Eldborg; göngubrú frá bílastæði að göngu­ stíg; skilti við upphaf gönguleiðar. 22.800.000 kr. Grábrók. Malbikun bílastæðis. 3.500.000 kr. Ólafsdalur í Gilsfirði. Minjavernd hf. Göngustígar og önnur upp­ bygging fyrir ferðamenn á svæðinu 46.076.000 kr. Surtshellir (Vígishellir, afhellir). Minjastofnun Íslands. Tvö skilti um menningarminjar við bílastæði. 1.640.000 kr. Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull. Frumgreining á uppbyggðum hjóla­ og göngustíg. 2.005.000 kr. ÞS / Gufuskálavör ­ Gufuskálar. Endurgerð og varðveisla minja um sjósókn; fræðsluskilti. 4.804.843 kr. ÞS / Malarrif. Viðburða­ og áning­ arpallur við gestastofu. 6.507.500 kr. ÞS / Skarðsvík. Fræðsluskilti. 1.688.000 kr. ÞS / Öndverðarnes. Bílastæði; minjaheildarsvæði í samráði við Minjastofnun Vesturlands. 19.154.200 kr. ÞS Jökulháls. Skilti og merkingar. 2.260.000 kr. ÞS Svalþúfa. Stækkun og úrbætur á bílastæði; göngustígar, tengingar og landmótun. 12.560.000 kr. mm Íbúaþing var haldið í Dalabyggð um nýliðna helgi, 26. og 27. mars. Þar komu saman íbúar, hollvinir Dalanna og verkefnisstjórn Brot­ hættra byggða, sem er skipuð full­ trúum Byggðastofnunar, SSV, Dalabyggðar og íbúa. Linda Guð­ mundsdóttir, nýráðinn verkefn­ isstjóri Brothættra byggða, mætti á fundinn, en hún hyggst flytja í Dalina með vorinu og taka við starfi í júní. Sigurborg Kr. Hann­ esdóttir stýrði þinginu, sem var með því sniði að litlir hópar tóku fyrir málefnin, ræddu og skráðu, en þátttakendur forgangsröð­ uðu síðan verkefnunum í þing­ lok. Þetta form á umræðum dreg­ ur fram skoðanir sem ekki heyrast þegar fólk þarf að stíga í pontu og það dregur einnig fram mismun­ andi mikilvægi verkefna. Heitar umræður sköpuðust um ýmis hagsmunamál, svo sem atvinnumál, húsnæðismál og mál­ efni yngri kynslóðar. Í vikunni á undan var fundur hjá elstu nem­ endum Auðarskóla, þar sem ung­ mennin komu fram með sína fram­ tíðarsýn; um atvinnu, frístundir og ímynd Dalanna. Á þinginu kynntu síðan þrjár stúlkur þau mál sem helst brunnu á unga fólkinu, jafn­ framt því sem þær tóku fullan þátt í öllum umræðum þingsins. Yngstu íbúarnir fengu líka sitt eigið þing, þar sem sjóndeildarhringur þeirra kom skýrt fram; skólalóðin, rólur, rennibraut, úitivera og þrautabraut svo eitthvað sé nefnt. Það er óhætt að segja að hugur sé í Dalamönnum, því margar hug­ myndir að bættu samfélagi komu fram og áhugi á því að efla allt frá tómstundum til sérhæfðra starfa og framkvæma allt frá göngustígum til jarðganga. Nafn á verkefnið var eitt umræðuefnið og komu fram margar hugmyndir, en kosið var um tvö þau hlutskörpustu, annars vegar Dalir úr dvala og hins vegar DalaAuður. Heitin er mjög lýsandi fyrir hug íbúa, sem vilja vekja upp styrkleika Dalanna og virkja auðinn. DalaAuður varð hlutskarp­ ari, en ekki munaði miklu. Auður getur vísað í Auði djúpúðgu, land­ námskonu Dalanna, en líka í auð­ lindir eða auðlegð Dalanna. Auk þess sem nafnið er auðvitað líka nafn á osti, framleiddum í Búðar­ dal. Þingið er gott veganesti fyrir verkefnisstjóra og stjórn verkefnis­ ins, en íbúar hafa einnig tækifæri til að móta áherslur síðar. bj/ Ljósm. Kristján Þ Halldórsson. Stærsta einstaka verkefnið á Vesturlandi, sem nýtur stuðnings ríkisins, er göngustígagerð og önnur uppbygging fyrir ferða- menn í Ólafsdal, verkefni sem Minjavernd stendur að. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson. Tæpum þremur milljörðum ráðstafað til ferðamannastaða Spenna í loftinu undir lok þingsins. Dalir virkja auðinn Íbúaþing fór fram í Dölum um liðna helgi Jóhanna, Jasmín og Dagný Sara kynntu hugmyndir unga fólksins.Heitar umræður um atvinnumál. Kosið var um nafn á verkefnið.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.