Skessuhorn - 30.03.2022, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2022 19
Á fundi bæjarstjórnar Akraness 22.
mars síðastliðinn var tekin fyrir
umsókn um breytingu á skipulagi
Breiðarsvæðis vegna Bárugötu 15,
en fyrirhugað er að breyta núver
andi húsi á lóðinni í fjölbýlishús
með allt að átta íbúðum. Húsið sem
um ræðir er gamla Hótel Akraness
sem flestir Skagamenn þekkja og
eiga margar góðar minningar frá
þeim sögufræga stað. Í þó nokkurn
tíma hefur verið í umræðunni að
byggja ofan á núverandi hús og
hafa bæjaryfirvöld nú gefið grænt
ljós á að Bárugötu 15 verði breytt.
Skipulags og umhverfisráð lagði
til við bæjarstjórn að fyrirliggj
andi skipulagslýsing yrði auglýst
með hefðbundnum hætti og hef
ur bæjar stjórn nú samþykkt auglýs
ingu skipulagslýsingar.
„Markmið breytingarinnar er að
heimila uppbyggingu á fjölbýlis
húsi, stuðla að fjölgun íbúa í þess
um hluta bæjarins. Mikil breyting
hefur orðið á hvað varðar atvinnu
umhverfi á svæðinu til dæmis með
breyttri nýtingu á þeim mannvirkj
um sem áður hýstu fiskverkun og
útgerð HB &Co og síðar Brims.
Uppi eru áætlanir um enn frekari
breytingar á nálægum svæðum til
dæmis á Breiðinni. Fjölgun íbúða á
svæðinu er skref í styrkingu svæð
isins þegar horft er til fjölgun íbúa
og tækifæri á búsetu á neðri Skaga,“
segir í fylgiskjali með afgreiðslu
nefndarinnar.
Þá segir að Bárugata sé ein
neðsta íbúðarhúsagatan á Akranesi
og þar mætast íbúðabyggð, versl
un og þjónusta og atvinnusvæði.
Á neðri Skaga hafa mörg íbúðar
hús verði ýmist flutt annað, stund
um innan svæðis, eða verið rifin og
hafa mörg hús við Bárugötu horf
ið í gegnum tíðina og íbúum þá
um leið fækkað á svæðinu. „Sam
setning atvinnutækifæra á Akranesi
hefur breyst mikið og hefur útgerð
og fiskverkun dregist saman en
að sama skapi hafa aðrar atvinnu
greinar fyllt í skarðið og hefur fjöl
breytni atvinnutækifæra aukist mik
ið ekki síst með Breiðinni þróunar
setri. Uppbygging á íbúðarhúsnæði
á þessu svæði á Akranesi stuðlar
að jafnvægi byggðarinnar í nálægð
við fjölmörg fyrirtæki á neðri hluta
Akraness.“
Einnig segir að í húsakönnun sé
Bárugata 15 skilgreind á byggingar
tímabili 19251949 og í fasteigna
skrá er byggingarár tilgreint 1945,
húsið falli því ekki undir 29. gr.
laga um menningarminjar 80/2012
um friðuð mannvirki þar sem öll
hús og mannvirki sem eru 100 ára
eða eldri séu friðuð. Bárugata 15
er skilgreint með varðveislugildi
tvö sem einstakt hús, húsaraðir
og götumyndir. Áætlun er um að
byggja ofan á núverandi hús, húsið
verði ekki rifið og verður því áfram
hluti götumyndar Bárugötu en með
eitthvað breyttu útliti.
vaks
Bárugata 15 eins og hún lítur út í dag. Eigandi hússins er Ragnar Guðmundsson hjá Múrverki RG. Hann hefur undanfarin
ár gert miklar lagfæringar á húsinu og undirbúið það verk að byggja tvær hæðir ofan á það. Framkvæmdir munu hefjast á
næstunni og stefnir Ragnar á að þeim verði lokið eftir eitt ár. Ljósm. vaks
Hótel Akranesi verður breytt í fjögurra hæða fjölbýlishús
Helena Vignisdóttir hótelstjóri á Hótel Varmalandi ræðir
hér við Rögnvald Guðmundsson ferðaráðgjafa og formann
Ólafsdalsfélagsins.
Bryndís Guðmundsdóttir eigandi Lava Resort á Miðhrauni
og Óskar Þór matreiðslumeistari kynntu starfsemi hins nýja
ferðaþjónustustaðar.
Páll Ásgeirsson markaðsstjóri Hótel Húsafells og Sigrún Þormar sviðsstjóri þjón-
ustu hjá Snorrastofu í Reykholti.
Ragnhildur Helga Jónsdóttir og Ástríður Sigurðardóttir kynntu Landbúnaðar-
safnið og Ullarselið á Hvanneyri.
Helga Margrét hjá Landnámssetri Íslands og Hlynur Ragnarsson frá Bara Ölstofu
lýðveldisins í Borgarnesi.
Bjarnheiður Jóhannsdóttir og Anna Sigrún Grétarsdóttir
kynntu Vínlandssetur og Eiríksstaði í Dölum.
Margrét Rósa eigandi Hótel Glyms og Englendingavíkur.
Hekla og Brynjar eigendur Hótel Laxárbakka ræða við gesti.