Skessuhorn - 30.03.2022, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 202224
Umhverfisnefnd Heiðarskóla í
Hvalfjarðarsveit hefur árlega reynt
að láta gott af sér leiða með ein
hverjum hætti og gjarnan tek
ið þátt í verkefninu Jól í skókassa.
Nefndin ákvað að gera það ekki á
þessu skólaári og finna umhverfis
vænni leið til að gera góðverk. Var
því ákveðið að safna fjármunum og
styrkja gott málefni. Ætlar nefndin
að halda bingó, fatamarkað og
vöfflukaffi í Heiðarskóla á morgun
fimmtudag og að þessu sinni mun
allur ágóði renna til hjálparstarfs í
Úkraínu.
Boðið verður upp á bingó með
glæsilegum vinningum og þeir sem
vilja geta komið með föt á slá til að
selja til að styrkja málefnið. Þá verð
ur hægt að setjast niður yfir kaffi og
vöfflu og spjalla við fólk eftir langt
hlé frá samkomum. Bingóspjaldið
verður selt á 500 krónur og vaffla
og kaffi á 1000 krónur. Enginn posi
er á staðnum svo það þarf að koma
með pening.
Viðburðurinn verður í Heiðar
skóla og hefst kl. 18:00 og eru allir
velkomnir.
arg
Nemendur í 3. bekk í Grundaskóla
á Akranesi voru í listaverkagöngu á
fimmtudagsmorgun í liðinni viku
þegar blaðamaður Skessuhorns
hitti á þau á leið í vinnuna. Þau
voru svo sannarlega til í mynda
töku og héldu svo ferð sinni áfram
að skoða listaverk bæjarins.
vaks
Meirihluti sveitarstjórnar Hval
fjarðarsveitar sendir eftirfarandi
svar við pennagrein Ólafs Óskars
sonar dags. 9. mars síðastliðinn:
Meirihluti sveitarstjórnar Hval
fjarðarsveitar vísar til fyrra svars
frá 22. febrúar sl. vegna fjölmargra
þeirra hugleiðinga sem fram koma
í grein bréfritara. Til að mynda
kemur þar nokkuð skýrt fram að
framtíðarsýn á legu þjóðvegar 1 í
gegnum sveitarfélagið er á forræði
Vegagerðarinnar sem hefur ráðið
verkfræðistofuna VSÓ til ráðgjafar
við verkefnið. Sveitarstjórn Hval
fjarðarsveitar hefur í þeirri vinnu
ekki lagt fram tillögur um hvaða
kostir séu skoðaðir og hverjir ekki,
svo það sé ítrekað, en greinarhöf
undur ýjar að því í skrifum sínum
að svo sé. Líkt og áður hefur kom
ið fram hefur, á þessu stigi máls
ins, ekki verið óskað eftir tillög
um né umsögnum frá sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar um frumtillög
ur að legu þjóðvegar 1 um sveitar
félagið. Sveitarstjórn gerir ráð fyr
ir að við valkostagreiningu sína sé
Vegagerðin með til hliðsjónar öll
þau gögn sem hún hefur látið vinna
fyrir sig í gegnum tíðina. Þar á
meðal matsskýrslu VSÓ ráðgjafar
um veg um Grunnafjörð frá árinu
2009 og skýrslu Mannvits frá apr
íl 2018 um samanburð gangnaleiða
nýrra Hvalfjarðarganga. Í skýr
slu Mannvits kemur m.a. fram að
stytting þjóðvegar 1 er um 2,8 km.
verði hagkvæmasti kostur við legu
nýrra Hvalfjarðarganga valinn. Þá
er gert ráð fyrir að gangamunni
að norðanverðu komi upp á mörk
um jarðanna Kúludalsár og Graf
ar. Hins vegar getur stytting þjóð
vegar 1 mest orðið um 1 km. með
vegi um mynni Grunnafjarðar.
Ólafur veltir fyrir sér hvers
vegna sveitarstjórnarfulltrú
ar nágrannasveitarfélaga séu ekki
að vinna að framgangi leiðar yfir
Grunnafjörð, sveitarstjórn Hval
fjarðarsveitar getur ekki svarað fyr
ir það. Ólafur vísar jafnframt í svar
samgönguráðherra, núverandi inn
viðaráðherra, við fyrirspurn þing
mannsins Guðjóns Brjánssonar
árið 2020. Fyrirspurn Guðjóns er
nokkuð ýtarleg og svar ráðherra
sömuleiðis. Rétt er það sem fram
kemur í svari ráðherra að sveitar
stjórn Hvalfjarðarsveitar tók á
þeim tíma ekki efnislega afstöðu til
veglínu um mynni Grunnafjarðar
og vildi ekki tefja gildistöku aðal
skipulagsins líkt og fram kemur í
greinargerð skipulagsins, enda lá
fyrir að Umhverfisstofnun legð
ist gegn vegalagningunni. Að lok
um vill sveitarstjórn árétta fyrri
afstöðu sína að það er hlutverk og
verkefni Vegagerðarinnar að leggja
til valkosti og finna bestu lausnir í
samgöngumálum og hafa samráð
við sveitarstjórn og íbúa sveitar
félagsins. Það er á síðari stigum
sem sveitarstjórn Hvalfjarðarsveit
ar tekur afstöðu til þeirra valkosta
sem lagðir verða fram. Vonandi set
ur Vegagerðin kraft í þessa grein
ingarvinnu svo hægt sé að vinna
málið áfram og ljúka því.
Það er ekki ætlun meirihluta
sveitarstjórnar að standa í frekari
skrifum við greinarhöfund, enda er
verkefnið ennþá á vinnslustigi hjá
Vegagerðinni og ráðgjafa hennar.
Málið mun síðar í ferlinu koma til
umfjöllunar og ákvarðanatöku hjá
sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar líkt
og áður er getið.
Með vinsemd og virðingu,
Meirihluti sveitarstjórnar
Hvalfjarðarsveitar.
Sveitarstjórn Hvalfjarðar kýs að
bæta litlu við af nýjum svörum við
ítrekuðum fyrirspurnum okkar og
ósk um valmöguleika um veg fyrir
Grunnafjörð samhliða öðrum kost
um sem kynntir hafa verið. Sveitar
stjórnin lætur sem þetta komi ekki
sveitarfélaginu við, það sé eingöngu
mál Vegagerðarinnar. Furðulegt
samt að grípa ekki tækifærið og
samþykkja ágæta tillögu minnihluta
sveitarstjórnar þeirra Elínar Óskar
Gunnarsdóttur og Rögnu Ívars
dóttur um að bæta valkosti við um
Grunnafjörð. Auk þess sem það eru
einnig fleiri sem hafa óskað eftir að
þeirri leið væri bætt við.
Við vorum búin að átta okkur á
þessari skoðun sveitarstjórnar fyr
ir allnokkru síðan. Við undirrit
uð ásamt fleiri aðilum höfum því
einnig verið í sambandi við fulltrúa
Vegagerðarinnar, átt fundi með
þeim bæði í Borgarnesi og einnig
í höfuðstöðvum Vegagerðarinn
ar. Það er ánægjulegt að geta sagt
frá því að á síðast fundi okkar þann
22. mars með Bergþóru Þorkels
dóttur vegamálastjóra og hennar
samstarfsfólki þá kom skýrt fram
að Vegagerðin mun bæta Grunna
fjarðarleiðinni inn sem valkosti.
Mjög ánægjuleg niðurstaða. Það er
samt sem áður löng leið framund
an þar til að endanlegar tillögur um
vegalagninguna liggja fyrir. Mikil
vinna við skýrslur, hönnun, kostn
aðargreiningar, umhverfismat og
margt fl. Að því loknu verða tillög
ur sendar meðal annars til sveitar
stjórnar til umsagnar. Vonandi að
þá verði vel tekið á móti tillögun
um og þær afgreiddar málefnalega
af þeirri sveitarstjórn sem þá verð
ur við störf.
Eins og fram kemur í svari
sveitar stjórnar þá er ekki fyrirhugð
að að gefa bréfritara frekari svör eða
veita frekari
upplýsingar
v a r ð a n d i
v e g a b æ t
urnar. Ekki
eru gerðar
athugasemdir við það, enda aug
ljóslega mun áhrifaríkara að ræða
beint við starfsfólk Vegagerðar
innar. Undirritaður vonast samt
sem áður eftir góðu samstarfi við
sveitarfélagið um uppbyggingu í
þessari fallegu sveit og að sveitar
stjórnin svari þeim erindum sem
þeim kunna að berast frá undir
rituðum. Þó svo að allir möguleg
ir kostir fyrir vegalagningu verði
skoðaðir, þá er mjög mikilvægt
að sem flestir láti í sér heyra, sem
gæti haft áhrif á loka niðurstöð
una, hvaða kostur verður valinn. Þá
verður væntanlega ekki bara horft í
krónur og aura heldur margir aðrir
þættir teknir inn í jöfnuna. Einnig
er mikilvægt að t.d. sveitarstjórnar
menn í nágranna sveitarfélögunum,
núverandi og einnig þeir sem verða
í framboði í vor, skoði málið vel og
láti í sér heyra, það eru jú þeir sem
eiga að vinna að hagsmunum okk
ar kjósenda. Mér finnst t.d. að hjá
Samtökum sveitarfélaga á Vestur
landi ætti að vera lögð mikil áhersla
á að skoða þessi mál frá grunni. Það
er t.d. ekki boðlegt, þar sem hags
munirnir hljóta að vera mjög miklir
eins og t.d. á Akranesi og í Borgar
byggð, að þá þegja sveitarstjórnar
menn bara þunnu hljóði. Það má
líka ítreka að umferðarmannvirki
koma öllum vegfarendum við, líka
þau sem eru í öðrum sveitarfélög
um.
Með vinsemd og virðingu.
Ólafur Óskarsson
Fyrir hönd eigenda sumarhúsa-
svæðis í land Beitistaða
Golfklúbburinn Leynir á Akranesi
segir í tilkynningu að samið hafi
verið við Hlyn Guðmundsson um
að taka að sér rekstur veitinga í Frí
stundamiðstöðinni á Garðavöllum.
Leynir auglýsti í mars eftir nýjum
rekstraraðila og bárust klúbbnum
níu umsóknir. Veitingastaðurinn
Galito var fyrrum rekstraraðili en
hann hafði séð um veitingarekstur
inn frá því húsið var tekið í notkun
árið 2019.
Þá segir í tilkynningunni að mat
reiðslumaðurinn Hlynur Guð
mundsson hafi mikla reynslu í
faginu og ætli að flytja fyrirtækið
sitt, Hlynur Kokkur Veisluþjón
usta, frá Hafnarfirði upp á Akranes.
Þá segir einnig að Golfklúbburinn
Leynir og Hlynur ætli að undirbúa
sumarið vel og leggja metnað í að
efla þjónustu við kylfinga sem og
aðra gesti sem sækja Garðavelli. Á
næstu vikum er stefnt á að ljúka við
endurbætur á salnum og gera hann
tilbúinn fyrir vorið. vaks
Pennagrein
Pennagrein
Svarbréf við lokasvari Hvalfjarðarsveitar
Björgum
sveitinni
Frá meirihluta sveitarstjórnar
Hvalfjarðarsveitar
Krakkarnir stilltu
sér upp og voru
mjög stillt.
Ljósm. vaks.
Kátir krakkar á göngu
Bingó í Heiðarskóla til
styrktar hjálparstarfi í Úkraínu
Frístundamiðstöðin á Garðavöllum. Ljósm. vaks
Samið við nýjan veitingaaðila
á Garðavöllum