Skessuhorn


Skessuhorn - 30.03.2022, Qupperneq 26

Skessuhorn - 30.03.2022, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 202226 Undanfarin 40 ár hefur Vegagerðin og Borgarbyggð lagt til að fara með þjóðveg nr. 1 út í Hvítá austan við Brúartorgið og Bjargsland í Borg­ arnesi. Í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar 2022­ 2034 þá er eitt erfiðasta verkefni sveitarstjórnar að ákveða framtíðar staðsetningu þjóðvegar nr. 1 í gegn­ um Borgarnes. Allir sem hafa farið í gegnum Borgarnes vita að bærinn er langur og mjór, því ekki margir kostir er varðar nýtt vegstæði fyr­ ir þjóðveg nr. 1, sem tekur tillit til umferðaröryggis, náttúruvernd­ ar og íbúabyggðar. Það er eðlilegt að skiptar skoðanir séu um mál­ ið enda mun hún hafa mikil áhrif á umhverfi, landslag og íbúa í Bjargs­ landi. Undirritaður hefur hug­ leitt málið í mörg ár, ritaði m.a. grein í Mbl. 22.6.2013 „Hjáleiðir til góðs“. Núverandi vegur í gegn­ um Borgarnes um Borgarbraut og að hringtorgi við Snæfellsnesveg er ekki góður m.t.t. umferðaröryggis og flæði umferðar. Vegagerðin hefur ekki látið kanna umhverfisáhrif leiðarinnar eða aðra kosti. Hjáleið út í Borgarfjörðinn hefur marga ókosti og margt bend­ ir til að veglínan eigi erfitt með að komast í gegnum mat á umhverfis­ áhrifum framkvæmda. Kynna þarf fyrir íbúum í Borgarnesi hvað fyrir­ huguð hjáleið út í Borgarfirði hafi á umferðarhávaða, breytingar á landslagi og útivistarsvæði. Núverandi þjóðvegur fer um Brúartorg og Borgarbraut framhjá íbúabyggð og honum fylgir tölu­ verður umferðarþungi og hávaði. Vegagerðin hefur bent sveitarfé­ laginu á að nauðsynlegt sé að fækka gatnamótum til að auka umferðar­ öryggi, en tíu aðkomuleiðir eru inn á núverandi þjóðveg. Skipulagslega séð er erfitt að fækka gatnamótum án þess að íþyngja íbúum. Sveitarstjórn Borgarbyggð­ ar ákvað 2014 að fara í samræður við fulltrúa Vegagerðarinnar um umferðaröryggi á þjóðvegi 1 í gegn­ um Borgarnes, í framhaldi var skip­ uð nefnd af fulltrúum sveitarstjórn­ ar og Vegagerðarinnar. Árið 2017 kom út skýrsla þar sem m.a. var ákveðið að tryggja betra umferð­ aröryggi í gegnum Borgarnes með því að koma upp umferðarstýr­ ingu á Borgarbraut við tvö gatna­ mót í gegnum Borgarnes, en þau verða væntanlega komin upp í byrj­ un sumars. Íbúabyggðin norðan við Brú­ artorg (Sandvíkin) liggur í um 2,5 metra hæð yfir sjó. Í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2000­2022 er mið­ að við 5 metra flóðahættusvæði Hvítá, það er því nauðsynlegt að finna leið til verja byggðina. Það væri hægt að gera með uppbyggð­ um vegi sem byggður yrði út í fjörðinn framan við Sandvíkina á milli Brúartorgs og vestan við bæinn Bjarg. Undirritaður leggur til að skoð­ aður verði nýr valkostur, það er að fara á milli Borgarbrautar og fyr­ irhugaðar hjáleiðar út í Borgar­ fjörðinn. Veglínan myndi liggja frá núverandi þjóðvegi við Brú­ artorg (bensínstöðvarnar), þar kæmi hringtorg til að leiða þá sem eiga erindi inn í Borgarnes. Með­ fram strandlengjunni yrði um 800 metra langur vegur að klettun­ um vestan við bæinn Bjarg. Grafin yrðu 540 metra löng jarðgöng sem myndu liggja að Hrafnakletti og síðan kæmi 650 metra nýr veg­ ur að núverandi hringtorgi við Snæfellsveg. Úr jarðgöngum yrði hægt að fá um 22.000 rúmmetra af burðarlagsefni sem hægt væri að nýta í vegagerðina. Fyrrnefnd leið hefur ekki verið skoðuð og metin, en margt bendir til að hún sé betri m.t.t. náttúruverndar, umferðarhá­ vaða og fjárhagslegra hagsmuna. Lagt er til að unnið verði mat á umhverfisáhrifum þriggja veglína: A. Núverandi leið í gegnum Borgarnes, um Borgarbraut að hringtorgi Snæfellsnesvegar. B. Hjáleið út í Borgarfjörðin í samræmi við aðalskipulag Borgar­ byggðar 2010­2022. C. Vegstæði sem færi austan við Brúartorg og Sandvík, með jarðgöngum undir Bjarg og inn á núverandi þjóðveg norðan við Hrafnaklett og að hringtorgi við Snæfellsnesveg. Rauð lína sýnir hugmynd að nýrri veglínu þjóðvegar nr.1. Gera þarf arðsemismat fram­ kvæmda. Ef hægt er að finna leið sem er hagkvæmari og meira í sátt við umhverfið þá er æskilegt að skoða þann kost. Virðingarfyllst, Ragnar Frank Kristjánsson, landslagsarkitekt FÍLA, hjá RFK umhverfisráðgjöf Hringvegur um Borgarnes Pennagrein Minjastofnun Íslands hefur úthlutað úr Fornminjasjóði og Húsafriðunarsjóði að fenginni umsögn hlutaðeigandi nefnda, samtals um 376 milljónum króna. Að jafnaði er úthlutað úr sjóðunum einu sinni á ári og hlutfall styrkupp­ hæðar ekki haft hærra en sem nem­ ur 50% af kostnaðaráætlun verk­ efnisins. Allnokkur verkefni á Vest­ urlandi hlutu styrk að þessu sinni. Fornminjasjóður • Arnarstapi 1602­1787: Inve­ stigation of a Danish monopoly trade port and its associated archaeological remains. Kevin Martin, 2.350.000 kr. • Bænhúsaskráning í Dalasýslu. Fornleifastofnun Íslands ses, 1.140.000 kr. • Rannsókn á fornum rústum í Ólafsdal. Fornleifastofnun Íslands ses, 2.500.000 kr. • Fornleifar í Fagurey. Forn­ leifastofnun Íslands ses, 1.380.000 kr. • Alls bárust 78 umsóknir um styrki úr Fornminjasjóði og veittir voru 33 styrkir upp á sam­ tals 66.750.000 kr. Húsafriðunarsjóður Friðlýstar kirkjur: • Borgarkirkja, 200.000 kr. • Fitjakirkja í Skorradal , 400.000 kr. • Hallgrímskirkja í Saurbæ, 400.000 kr. • Hvanneyrarkirkja, 700.000 kr. • Innra­Hólmskirkja, 3.200.000 kr. • Rauðamelskirkja, Ytri­Rauði­ mel, 850.000 kr. • Stafholtskirkja, 400.000 kr. Friðlýst hús og mannvirki: • Hreppslaug í Andakíl, 500.000 kr. • Hvanneyri – íþróttahús, 400.000 kr. • Hvanneyri – skólahús, 650.000 kr. • Skólahúsið á Bifröst, 4.500.000 kr. • Norska húsið Stykkishólmi, 1.050.000 kr. Friðuð hús og mannvirki: • Ráðagerði, Vesturgata 24B Akranesi, 850.000 kr. • Reynisrétt, Vestri Reyni, 500.000 kr. • Hlíðartúnshús í Borgarnesi, 1.000.000 kr. • Pakkhús í Ferjukoti, 1.350.000 kr. • Bókhlöðustígur 9 í Stykkishólmi, 1.300.000 kr. • Kristjánshús í Stykkishólmi, 2.600.000 kr. • Sívertsenshús, Víkurgata 3 í Stykkishólmi, 2.250.000 kr. • Sjónarhóll, Höfðagata 1 í Stykk­ ishólmi, 700.000 kr. • Súgandiseyjarviti í Súgandisey, Stykkishólmi, 2.000.000 kr. • Sæmundarreitur 8 í Stykkis­ hólmi, 1.200.000 kr. • Ásgarður í Flatey, Breiðafirði 1.100.000 kr. • Jónshús, Grundarbraut 1 Ólafs­ vík, 600.000 kr. • Brautarholt I Haukadalshreppi, 2.400.000. kr. • Að auki var veitt 1.600.000 kr. til húsakönnunar í Stykkishólmi. Alls bárust 285 umsóknir um styrk úr húsafriðunarsjóði árið 2022. Veittir voru 242 styrkir og úthlutað var 300 milljónum króna. Ofangreint er birt með fyrirvara um misritun blaðsins og er vísað á heimasíðu Minjastofnunar varð­ andi frekari upplýsingar: www. minjastofnun.is. gj Styrkir Minjastofnunar til Vesturlands árið 2022 Fitjakirkja í Skorradal. Rannsókn á verslunarminjum á Arnarstapa hlaut styrk úr Fornminjasjóði. Nýjasti hluti endurgerðar Hlíðartúnshúsanna í Borgarnesi. Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010- 2022.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.