Skessuhorn


Skessuhorn - 30.03.2022, Side 31

Skessuhorn - 30.03.2022, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2022 31 Íþróttamaður vikunnar Íþróttamaður vikunnar er nýlegur liður hjá Skessu­ horni. Þar leggjum við fyrir tíu spurningar til íþrótta­ manna úr alls konar íþróttum á öllum aldri á Vestur­ landi. Íþróttamaður vikunnar að þessu sinni er körfu­ bolta­ og hestakonan Signý Ósk frá Stykkishólmi. Nafn: Signý Ósk Sævarsdóttir Walter Fjölskylduhagir? Ég bý hjá mömmu minni og stjúppabba ásamt bróður mínum. Auk þess bý ég líka hjá pabba mínum og stjúpmömmu minni. Hver eru þín helstu áhugamál? Mér finnst skemmti­ legast að ferðast, spila körfubolta, vera í kringum hesta og hef líka mjög gaman að því að baka. Hvernig er venjulegur dagur hjá þér? Ég mæti í skólann, fer svo heim og reyni að læra eða bara slaka á. Síðan fer ég á 9. flokks æfingu í körfubolta, þar á eft­ ir á meistaraflokks æfingu og svo upp í hesthús ef ég hef tíma og orku. Hversu oft æfir þú í viku? Ég æfi fjórum til fimm sinnum í viku. Hver er þín fyrirmynd í íþróttum? Ég er ekki viss um að ég gæti valið aðeins eina fyrirmynd en ég myndi klárlega segja Anna Soffía Lárusdóttir og Gunnhild­ ur Gunnars. Af hverju valdir þú hestamennsku og körfubolta? Ég valdi hestamennsku vegna þess að ég ólst upp í kringum hesta og mamma mín hefur alltaf verið dug­ leg að taka mig með á hestbak alveg síðan ég man eft­ ir mér og mér hefur alltaf fundist það skemmtilegt. Ég byrjaði í körfu aðallega út af því að það var lítið af íþróttum í boði og körfubolti var skemmtilegasta íþróttin af því sem var í boði. Hver er fyndnastur af þeim sem þú þekkir? Alfa Magðalena liðsfélaginn minn. Hvað er það skemmtilegasta og leiðinlegasta við þínar íþróttir? Ég myndi segja að félagsskapurinn væri hátt á mínum lista í báðum íþróttunum. Leiðin­ legast finnst mér þegar illa gengur. Hverjir eru þínir helstu kostir og gallar? Mín­ ir kostir eru ég er mjög skipulögð, samviskusöm og dugleg en gallarnir mínir eru að ég get verið rosalega þrjósk og viðkvæm. Hefur gaman af því að baka Víkingur Ólafsvík tók á móti ÍR á laugardaginn í riðli 1 í B deild karla í Lengjubikarnum í knattspyrnu og fór leikurinn fram á Ólafsvíkurvelli. Arnór Siggeirsson kom heima­ mönnum yfir á 22. mínútu og mín­ útu fyrir hálfleik bætti Kristófer Daði Kristjánsson við öðru marki fyrir Víking. Pétur Hrafn Friðriks­ son minnkaði muninn fyrir ÍR tíu mínútum fyrir leikslok en lengra komust þeir ekki og urðu síð­ an að sjá á eftir Jóni Gísla Ström sem fékk rautt spjald á 90. mínútu, lokatölur 2­1 fyrir Víking. Á sunnudaginn léku KFS og Kári í sama riðli á Domusnova vellinum í Breiðholti og endaði leikurinn með jafntefli, 3­3. Frans Sigurðs­ son kom KFS á bragðið á 19. mín­ útu en fimm mínútum síðar misstu þeir Aron Smára Magnússon út af með rautt spjald. Það virtist þó ekki koma að sök því eftir hálftíma leik kom Daníel Már Sigmarsson KFS í tveggja marka forystu en Kára­ menn voru snöggir til því Fylk­ ir Jóhannsson minnkaði muninn mínútu síðar. Fimm mínútum fyr­ ir hálfleik fékk Haukur Helgason, leikmaður KFS, sitt annað gula spjald og leikmenn KFS tveim­ ur færri fyrir hálfleik. Kári jafnaði þó ekki metin fyrr en á 82. mínútu með marki frá fyrirliðanum Andra Júlíussyni og fimm mínútum síð­ ar kom hann þeim yfir með öðru marki sínu í leiknum. Það dugði þó ekki til sigurs því mínútu fyrir leikslok jafnaði Leó Viðarsson fyr­ ir KFS og jafntefli því niðurstaðan. Víkingur Ó og Kári enduðu jöfn í öðru og þriðja sæti riðilsins með sjö stig en ÍR í því efsta með tólf stig og fer í úrslitakeppni sex liða. Á sunnudaginn mættust einnig lið GG og Reynis Hellissandi í riðli 3 í C deild karla og fór leik­ urinn fram á Domusnova vellin­ um í Breiðholti. GG komst yfir í leiknum með marki Ivan Jugovic á 31. mínútu og á 79. mínútu var Reynismaðurinn Kristján Freyr Tómasson rekinn af velli. Mín­ útu síðar skoraði Birkir Snær Sig­ urðsson annað mark GG en einum færri náðu Reynismenn að minnka muninn í uppbótartíma með marki frá Birni Óla Snorrasyni, lokatöl­ ur 2­1 fyrir GG. Reynir er enn án sigurs í riðlinum en á einn leik eft­ ir gegn Hvíta riddaranum og verð­ ur hann á Ólafsvíkurvelli laugar­ daginn 2. apríl og hefst klukkan 14. Skallagrímur lék síðasta leik sinn í riðli 5 í C deild karla síðasta miðvikudag gegn KÁ og var leik­ urinn á Ásvöllum í Hafnarfirði. Skallagrímur var þremur mörk­ um undir eftir fyrri hálfleikinn og heimamenn komust í 7­0 áður en Hlöðver Már Pétursson skor­ aði sárabótarmark fyrir Skallagrím mínútu fyrir leikslok. Skallagrímur lauk leik í Lengjubikarnum þetta árið í þriðja sæti riðilsins með þrjú stig. vaks Um helgina fór fram Íslands­ mót unglinga í badminton í hús­ um Tennis­ og Badmintonfélags Reykjavíkur. Badmintonfélag Akra­ ness sendi alls tólf keppendur á mótið og vann ÍA sjö Íslandsmeist­ aratitla og einn sigurvegara í U11 B. Máni Berg Ellertsson varð þre­ faldur Íslandsmeistari U15. Í U11 A varð Guðrún Margrét Halldórs­ dóttir tvöfaldur Íslandsmeistari í tvíliða­ og tvenndarleik og í öðru sæti í einliðaleik. Davíð Logi Atla­ son varð Íslandsmeistari í tvíliðaleik U11 og í öðru sæti í einliða­ og tvenndarleik. Arnar Freyr Fannars­ son varð Íslandsmeistari í tvíliðaleik U15. Andri Viðar Arnarsson sigraði í einliðaleik U11 B og Tinna María Sindradóttir varð í öðru sæti í ein­ liðaleik U11 B. vaks Tveir úr Keilufélagi Akraness voru valdir til að spila fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramóti U21 í keilu sem haldið verður í Sví­ þjóð dagana 19.­30. júní í sumar. Það eru þeir Ísak Birkir Sævarsson og Jóhann Ársæll Atlason en auk þeirra er lið drengja skipað Hinriki Óla Gunnarssyni úr Keiludeild ÍR og Mikael Aroni Vilhelmssyni frá Keilufélagi Reykjavíkur. Stúlkna­ liðið skipa þær Alexandra Krist­ jánsdóttir, Elva Rós Hannesdóttir, Hafdís Eva Laufdal Pétursdóttir og Málfríður Jóna Freysdóttir. arg Signý Ósk. Ljósm. Kristín Vald. Sjö Íslandsmeistaratitlar í hús hjá Badmintonfélagi Akraness Guðrún Margrét, Máni Berg og Davíð Logi. Ljósm. af facebook síðu BA. Tveir Skagamenn á leið á HM U21 í keilu Svipmynd úr leik GG og Reynis Hellissandi sem fór 2-1 fyrir GG. Lengjubikarnum að ljúka hjá liðunum af Vesturlandi Úr leik Víkings Ólafsvík og ÍR á laugardaginn. Ljósm. af

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.