Skessuhorn - 12.04.2022, Side 8
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 20228
Aðstoðar
bankastjóri yfir í
Skeljung
LANDIÐ: Akurnesingurinn
Ásgeir H. Reykfjörð Gylfa-
son mun á næstu dögum láta
af starfi aðstoðarbankastjóra
Arionbanka. Iða Brá Bene-
diktsdóttir, framkvæmdastjóri
viðskiptabankasviðs bankans,
hefur verið ráðin í hans stað.
Fram kemur í tilkynningu
til kauphallar að Ásgeir hafi
verið ráðinn forstjóri Skel
fjárfestingafélags hf. og mun
ásamt Jóni Ásgeiri Jóhannes-
syni stjórnarformanni og
aðaleiganda fyrirtækisins stýra
uppbyggingu öflugs skráðs
félags á markaði. -mm
Ók yfir á rangan
vegarhelming
DALABYGGÐ: Hringt
var í Neyðarlínuna skömmu
eftir hádegi síðasta þriðju-
dag í liðinni viku og tilkynnt
um óhapp við Gilsfjarðar-
brú á Vestfjarðarvegi. Þar
hafði ökumaður ekið yfir
á rangan vegarhelming og
framan á aðra bifreið sem
kom á móti. Slæmt skyggni
var á vettvangi vegna snjó-
kófs og skafrennings. Annar
ökumaðurinn ók hægt og
áttaði sig ekki á því hvar hann
væri staddur á veginum fyrr
en hann lenti á hinum bíln-
um. Engin slys urðu á fólki
en bifreiðarnar voru talsvert
skemmdar eftir áreksturinn.
-vaks
Gluggagægir í
heimsókn
AKRANES: Seinni part
laugardags var tilkynnt um
rauðhærðan mann með skegg
sem var að labba að húsum og
kíkja á glugga. Lögregla fór á
staðinn en varð ekki vör við
aðilann. Síðar sást í öryggis-
kerfi um hvaða aðila var að
ræða og gat lögreglan borið
kennsl á viðkomandi. Málið er
upplýst en ekki er vitað hvað
manninum gekk til. -vaks
Vorfílingur í
ökumönnum
VESTURLAND: Lögreglan
hefur undanfarið orðið vör
við áberandi aukningu í
hraðakstri hjá ökumönnum á
svæðinu. Svo virðist að vorfíl-
ingur sé hlaupinn í ökumenn
og þeir séu að kitla pinnann
einum of mikið. Lögregla
biður ökumenn að aka eftir
aðstæðum og fara varlega eins
og hægt er. -vaks
Frítt í sund fyrir
yngri en 15 ára
BORGARBYGGÐ: Í árslok
2021 kom upp sú hugmynd að
bjóða ungmennum í Borgar-
byggð frítt í sund sem lið í
heilsueflingu sveitarfélagsins.
Borgarbyggð er heilsuefl-
andi og von bráðar barnvænt
samfélag og er þetta liður í
þeirri vegferð sveitarfélags-
ins að stuðla að bættri heilsu,
lífsgæðum og vellíðan. Fram
kemur á vefsíðu Borgarbyggð-
ar að ungmenni sem vilja nýta
sér þessa gjöf geta farið í
íþróttamiðstöðvar sveitarfé-
lagsins og látið stofna fyrir sig
kort sem gildir frá og með 1.
apríl 2022 til og með 31. mars
2023. -vaks
Kortavelta jókst
mikið í fyrra
LANDIÐ: Heildar greiðslu-
kortavelta á Íslandi nam
rúmum 1.040 milljörðum
króna árið 2021 og jókst um
12,6% á milli ára að raunvirði.
Í samantekt Rannsóknaseturs
verslunarinnar kemur fram að
kortavelta Íslendinga hérlend-
is var 918,7 milljarðar kr. og
jókst um 7,6% á milli ára að
raunvirði. Kortavelta erlendra
ferðamanna hér á landi nam
tæpum 121,4 milljörðum kr.
og jókst um rúm 75% á milli
ára að raunvirði. -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
2. apríl. 8. apríl
Tölur (í kílóum) frá Fiski
stofu
Akranes: 6 bátar.
Heildarlöndun: 49.593 kg.
Mestur afli: Ísak AK: 19.130
kg í fimm löndunum.
Arnarstapi: 4 bátar.
Heildarlöndun: 64.583 kg.
Mestur afli: Kristinn HU:
35.493 kg í fjórum löndunum.
Grundarfjörður: 6 bátar.
Heildarlöndun: 504.313 kg.
Mestur afli: Drangey SK:
202.098 kg í einum róðri.
Ólafsvík: 9 bátar.
Heildarlöndun: 126.484 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
72.156 kg í tveimur löndun-
um.
Rif: 12 bátar.
Heildarlöndun: 864.114 kg.
Mestur afli: Magnús SH:
189.682 kg í níu róðrum.
Stykkishólmur: 1 bátur.
Heildarlöndun: 5.190 kg.
Mestur afli: Fjóla SH: 5.190
kg í einni löndun.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Drangey SK – GRU:
202.098 kg. 03. apríl.
2. Rifsnes SK – RIF: 99.810
kg. 04. apríl.
3. Sigurborg SH – GRU:
95.996 kg. 03. apríl.
4. Tjaldur SH –RIF: 88.884
kg. 7. apríl.
5. Tjaldur SH –RIF: 88.482
kg. 2. apríl.
-dóh
Um nónbil síðastliðinn fimmtudag
var Slökkvilið Snæfellsbæjar kallað
út vegna elds á bifreiðaverkstæði í
Rifi. Kviknað hafði í bíl sem var í
viðgerð, en starfsmaður verkstæðis-
ins náði að slökkva eldinn áður en
hann breiddist frekar út. Bifreiðin
er talin ónýt en annað tjón varð
ekki.
af
Sveitarstjórn Dalabyggðar
samþykkti á fundi sínum síðasta
þriðjudag að ráða Herdísi Ernu
Gunnarsdóttur í starf skólastjóra
Auðarskóla. Herdís er með B.Sc.
í líffræði og B.Ed. í grunnskóla-
kennarafræði og hefur leyfisbréf
sem leik-, grunn- og framhalds-
skólakennari. Auk þess er hún
að leggja lokahönd á lokaritgerð
sína í M.Ed. námi í stjórnun
menntastofnana við Háskóla
Íslands.
Á vefsíðu Dalabyggðar kemur
fram að Herdís Erna hafi starf-
að sem kennari frá árinu 1995 en
þá hóf hún störf sem umsjónar-
kennari við Grunnskólann að
Laugum. Þá starfaði hún í fjög-
ur ár sem umsjónarkennari við
Grunnskólann á Siglufirði en hóf
svo störf árið 2004 sem grunn-
skólakennari við Grunnskól-
ann í Búðardal, síðar Auðarskóla.
Árið 2012 tók Herdís til starfa
við leikskóladeild Auðarskóla og
gegndi þar störfum deildarstjóra
og aðstoðarleikstjóra þar til árið
2021 þegar hún tók tímabundið
við starfi skólastjóra Auðarskóla.
vaks
Fréttablaðið greindi frá því síðast-
liðinn föstudag að Karl Gauti
Hjaltason fv. alþingismaður Flokks
fólksins og síðar Miðflokksins hafi
kært lögreglustjórann á Vestur-
landi til ríkissaksóknara fyrir að
hætta rannsókn á hendur yfirkjör-
stjórn á Vesturlandi vegna talningar
atkvæða í Borgarnesi að loknum
alþingiskosningum 25. septem-
ber sl. Karl Gauti var einn þeirra
frambjóðenda sem náði þingsæti á
kosninganótt en missti það svo eftir
endurtalningu yfirkjörstjórnar á
Vesturlandi daginn eftir.
Fréttablaðið hefur eftir Karli
Gauta að ekki hafi verið ætlun
löggjafans að slaka á kröfum held-
ur þvert á móti að auka þær. „Í raun
og veru var engin meining með því
þegar kosningalögum var breytt
að slaka á kröfum um öryggi og
vönduð vinnubrögð kjörstjórna,
innsiglun kjörgagna og öllu verk-
lagi við kosningar,“ segir Karl
Gauti. Lögreglustjórinn á Vest-
urlandi felldi eins og kunnugt er
niður rannsókn málsins og vísaði
í breytingar sem Alþingi gerði á
kosningalögum meðan á rann-
sókninni stóð. Karl Gauti segir
við Fréttablaðið að það sé hlutverk
dómstóla að skera úr um refsinæmi
meintra brota við framkvæmd
kosninga. mm
Nemastofa atvinnulífsins var form-
lega stofnuð síðastliðinn þriðjudag
í húsnæði Iðunnar fræðsluseturs,
að viðstöddum ráðherra, fulltrúum
úr atvinnulífi og skólameisturum
framhaldsskólanna. Nemastofa
atvinnulífsins er í jafnri eigu Iðunn-
ar og Rafmenntar fyrir hönd fyrir-
tækja og félagsmanna sem standa
að viðkomandi félögum.
Nemastofan verður samstarfs-
vettvangur samtaka í atvinnulífinu
um bætt vinnustaðanám og fjölg-
un faglærðs starfsfólks. „Markmið
með Nemastofu atvinnulífsins er að
fjölga fyrirtækjum og iðnmeistur-
um sem taka nema á vinnustaða-
námssamning. Með tilkomu stofn-
unarinnar eykst yfirsýn yfir fjölda
nemenda í vinnustaðanámi auk
þess sem aðgengi nemenda að
starfsnámi verður bætt og einfald-
að,“ segir í kynningu. Samhliða
stofnun Nemastofu atvinnulífsins
var vefur hennar formlega opnað-
ur: nemastofa.is. mm
Auðarskóli í Dalabyggð. Ljósm. úr safni
Herdís Erna ráðinn
skólastjóri Auðarskóla
Talningarfólk að störfum við endur-
talningu atkvæða á Hótel Borgarnesi
26. september 2021 Ljósm. mm.
Kærir lögreglustjórann á Vesturlandi
Eldur í bíl á bifreiðaverkstæði
Frá stofnun Nemastofu atvinnulífsins. Ljósm. Stjórnarráðið.
Nemastofa atvinnulífsins
tekur til starfa