Skessuhorn - 12.04.2022, Blaðsíða 10
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 202210
Undanfarna mánuði hafa verið í
gangi gatnaframkvæmdir á Suður-
götu á Akranesi. Á vef Akra-
neskaupstaðar kemur fram að
miklar tafir hafa orðið á verkinu og
til dæmis hafi þurft að endurhanna
hluta þess eftir að ástand lagna kom
í ljós í götunni. Um gamlar lagn-
ir er að ræða og var ástand þeirra
óþekkt að miklu leyti áður en verk-
ið hófst.
„Nú fer þó að birta til og verk-
takinn getur farið að setja meiri
þunga í framkvæmdirnar. Ykkur
til upplýsinga þá verður kalda-
vatnslögnin endurnýjuð í götunni,
niðurföll verða endurnýjuð og
ný regnvatnslögn verður lögð í
götuna. Þá verður skipt um jarðveg
í götunni og hún endurbyggð. Nýtt
malbik verður svo lagt yfir, kafl-
inn sem um ræðir nær frá Mána-
braut að Suðurgötu 117.“ Gera má
ráð fyrir að fyrri áfanginn sem er
í gangi núna muni verða í vinnslu
fram í maí. Síðari hluti verksins
mun hefjast að fyrri áfanga loknum
og ná eitthvað inn í sumarið. vaks
Nýr framboðslisti hefur komið
fram í sameinuðu sveitarfélagi
Stykkishólmsbæjar og Helgafells-
sveitar. Ber hann nafnið Íbúalistinn
Stykkishólmi og Helgafellssveit
og hefur listabókstafinn Í. Listann
leiðir Haukur Garðarsson skrif-
stofustjóri frá Rarik og í öðru sæti
er Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir
kennari. Listinn í heild er þannig:
Nr. 1. Haukur Garðarsson, skrif-
stofustjóri hjá Rarik
Nr. 2. Ragnheiður Harpa Sveins-
dóttir, kennari
Nr. 3. Ragnar Már Ragnars-
son, forstöðumaður tæknideildar
Snæfellsbæjar
Nr. 4. Heiðrún Höskuldsdóttir,
læknaritari og verslunareigandi
Nr. 5. Kristján Hildibrandsson,
ferðaþjónustubóndi og kennari
Nr. 6. Erla Friðriksdóttir, eigandi
og framkvæmdastjóri Íslensks
Æðardúns
Nr. 7. Ingveldur Eyþórsdóttir, yfir-
félagsráðgjafi Félags- og skólaþjón-
ustu Snæfellinga
Nr. 8. Steindór Hjaltalín Þorsteins-
son, rafvirki hjá Skipavík
Nr. 9. Unnur María Rafnsdóttir,
fjármálastjóri hjá BB & sonum.
Nr. 10. Halldóra Margrét Pálsdótt-
ir, nemi í FSN
Nr. 11. Gísli Sveinn Grétarsson,
fjölmiðlafræðingur
Nr. 12. Þórleif Hjartardóttir,
móttökuritari St.Fransiskusspítala
Nr. 13. Lárus Ástmar Hannesson,
kennari
Nr. 14. Helga Guðmundsdóttir,
fiskverkakona.
gj/ Ljósm. aðsend.
Framboðslisti D-listans í Snæfells-
bæ fyrir bæjarstjórnarkosningarn-
ar 14. maí nk. var samþykktur
samhljóða á fundi í fulltrúaráði
Sjálfstæðisfélaganna í Snæfellsbæ
síðastliðinn miðvikudag.
Í síðustu bæjarstjórnarkosning-
um hlaut D-listinn fjóra bæjarfull-
trúa af sjö og gefa þrír af þeim kost
á sér áfram til forystu; þau Björn
Haraldur, Júníana Björg og Auður.
Bæjarstjóraefni D-listans er Krist-
inn Jónasson núverandi bæjarstjóri
í Snæfellsbæ, en hann hefur verið
bæjarstjóri þar samfleytt síðan árið
1998, eða í 24 ár.
Eftirfarandi skipa listann:
Nr. 1. Björn Haraldur Hilmarsson,
útibússtjóri.
Nr. 2. Júníana Björg Óttarsdóttir,
ráðgjafi.
Nr. 3. Auður Kjartansdóttir, fjár-
málastjóri.
Nr. 4. Jón Bjarki Jónatansson,
sjómaður.
Nr. 5. Eiríkur Böðvar Rúnarsson,
véltæknifræðingur.
Nr. 6. Jóhanna Jóhannesdóttir,
ferðamálafræðingur.
Nr. 7. Kristgeir Kristinsson,
sjómaður.
Nr. 8. Lilja Hrund Jóhannsdóttir,
matreiðslumeistari.
Nr. 9. Illugi Jens Jónasson, skip-
stjóri.
Nr. 10. Þorbjörg Erla Halldórs-
dóttir, lögreglukona.
Nr. 11. Gunnar Ólafur Sigmarsson,
framleiðslustjóri.
Nr. 12. Viktoría Kr. Guðbjartsdótt-
ir, stjórnmálafræðingur.
Nr. 13. Zekira Crnac, húsmóðir.
Nr. 14. Bárður Guðmundsson,
útgerðarmaður.
mm
Í upphafi síðustu viku barst
Matvælastofnun tilkynning um
að skæðar fuglaflensuveirur hefðu
fundist í íslenskum haferni sem
drapst í október 2021. Þetta er
í fyrsta skipti sem slíkar veirur
finnast hér á landi. „Þetta rennir
stoðum undir það mat sérfræðinga
að miklar líkur séu á að alvarleg
afbrigði fuglaflensuveira berist með
farfuglum hingað til lands. Það er
því brýnt að alifuglaeigendur gæti
sérstaklega vel að sóttvörnum sem
lúta að því að koma í veg fyrir smit
úr villtum fuglum. Jafnframt er
mikilvægt að allir sem finna dauða
villta fugla tilkynni Matvælastofn-
un um þá,“ segir í tilkynningu frá
MAST.
Haförninn sem um ræðir var
með senditæki á sér og því er vitað
að hann drapst 8. október í fyrra
við Breiðafjörð. Fuglafræðingar hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands sóttu
fuglinn og bættu honum í hóp
annarra hafarna sem drepist hafa á
síðastliðnum árum og hópurinn var
síðar sendur til Þýskalands til ýmiss
konar rannsókna, sem tengjast verk-
efni á vegum Náttúrufræðistofnun-
ar. Þýska rannsóknarstofan hefur
sem reglu að ganga úr skugga um
hvort fuglaflensuveirur séu í þeim
villtu fuglum sem þeir fá til rann-
sóknar og þá greindust skæðar
fuglaflensuveirur í þessum fugli.
Fram kemur í frétt stofnunarinnar
að um er að ræða alvarlegt afbrigði
af fuglaflensuveirum af gerðinni
H5N1. „Engar sérstakar ráðstaf-
anir verða gerðar vegna þessarar
greiningar þar sem langt er liðið
frá því að fuglinn fannst og staður-
inn sem hann fannst á er langt frá
byggðu bóli,“ segir í tilkynningu
MAST.
Það afbrigði veirunnar sem
greindist (H5N1) er það sem geis-
að hefur víða um Evrópu á undan-
förnum mánuðum og nú einnig
í Kanada og Bandaríkjunum. Í
upphafi þessa árs bárust fréttir af því
að sama afbrigði af fuglaflensuveir-
um hefði fundist í Austur-Kanada
og með rannsóknum á erfðaefni
þeirra var hægt að sýna fram á að
þær hafi borist með fuglum frá
Evrópu, hugsanlega með viðkomu
hér á landi. „Af þessum tilfellum
má draga þá ályktun að miklar líkur
séu á að skæðar fuglaflensuveirur
berist með farfuglum til landsins.
Það er því enn mikilvægara en áður
að fuglaeigendur geri ráðstafanir til
að koma í veg fyrir að smit berist í
fuglana þeirra úr villtum fuglum.“
Loks er minnt á að sum afbrigði
fuglaflensu geta sýkt fólk. Því er
ávallt mikilvægt að gæta persónu-
legra sóttvarna við handfjötlun á
villtum fuglum. Ef taka þarf upp
dauðan fugl skal það gert með
einnota hönskum og hann settur
í plastpoka eða með því að stinga
hendi í plastpoka og taka fuglinn
upp með pokanum og draga pokann
svo yfir fuglinn og loka fyrir.
mm
Svona var staðan á Suðurgötu síðastliðinn föstudag. Ljósm. vaks
Miklar tafir á gatnafram
kvæmdum á Suðurgötu
Sjálfstæðisflokkurinn
í Snæfellsbæ birtir
framboðslista sinn
Ellefu af fjórtán sem skipa D-lista í Snæfellsbæ. Ljósm. af.
Haförninn á meðfylgjandi mynd sást vankaður við Rif á Snæfellsnesi í nóvember
2017. Ekki er útilokað að um sama fugl sé að ræða, þótt það sé engan veginn víst.
Ljósm. úr safni Skessuhorns/af.
Skæð fuglaflensuveira fannst í
haferni sem drapst við Breiðafjörð
Nýr framboðslisti í sameinuðu
sveitarfélagi á Snæfellsnesi