Skessuhorn - 27.04.2022, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 17. tbl. 25. árg. 27. apríl 2022 - kr. 950 í lausasölu
699 3444
molby@fastlind.is
Löggiltur fasteignasali
ÁRALÖNG ÞEKKING
OG REYNSLA AF
FASTEIGNAMARKAÐI
Á VESTURLANDI
BOGI MOLBY
Allir kaupendur og seljendur fá
Vildarkort Lindar
hjá fjölmörgum fyrirtækjum
sem veitir 30% afslátt
Betri framtíð fyrir
fermingarpeninginn
arionbanki.is/ferming Framtíðarreikningur Arion banka
Leggðu fermingarpeninginn inn hjá Arion
og fáðu allt að 12.000 kr. mótframlag
Fáðu næsta
pakka á N1
ALLA LEIÐ
440 1000 n1.is
Þótt hefja hafi mátt grásleppuveiðar víðast hvar 20. mars, eru enn fáir sem gera
út hér við vesturströndina. Fimm bátar hafa í vetur verið gerðir út frá Akranesi og
eru þrír þeirra búnir með 25 veiðidaga, hámarksfjöldann. Veiðar hafa gengið vel
á Akranesi. Einungis tveir bátar eru gerðir út frá Snæfellsbæ og má hér á myndinni
sjá annan þeirra, Rán SH, að veiðum skammt frá Öndverðarnesi á mánudags-
morgun. Skipverjar á Rán hafa mokfiskað að undanförnu, mest um tíu tonn af
óskorinni grásleppu eftir eina vitjun. Sjá nánar á bls 2. Ljósm. af.
Þessum árstíma fylgir einatt auk-
in hætta á gróðureldum, allt frá
því í apríl og fram á mitt sumar
þegar nýr gróður hefur náð yfir-
höndinni í þurru landi. Eðli máls-
ins samkvæmt hafa íbúar áhyggjur
af gróður eldum og þá ekki síst íbú-
ar í Skorradal þar sem flóttaleiðir
eru fáar og eldsmatur mikill kvikni
eldur. Hulda Guðmundsdóttir á
Fitjum vakti athygli Skessuhorns
á málinu og segist hafa fengið þær
upplýsingar að staðan hjá Land-
helgisgæslunni hvað varðar slökkvi-
skjólu sé slæm; eina skjólan sem til
er í landinu sé óvirk. „Þetta gerð-
ist líka síðasta vor,“ rifjar Hulda
upp, en þá voru tugir gróðurelda í
landinu í þurru vori. Eina skjólan
sem til var þá skemmdist í eld-
um í Heiðmörk. Hún segir að eini
raunhæfi búnaðurinn til að slökkva
skógarelda á frístundasvæðum sé
slíkur slökkvibúnaður á allar þrjár
þyrlur Landhelgisgæslunnar.
Nú er engin tiltæk slökkviskjóla
í landinu, en slíkt líta menn alvar-
legum augum í ljósi þeirrar gagn-
semi sem þær hafa sýnt. Í svari
Landhelgisgæslunnar við fyrir-
spurn Skessuhorns kemur fram
að það eldvarnar- og slökkviliðs-
mál í landinu heyri undir innviða-
ráðuneytið, en ekki dómsmála-
ráðuneytið sem fer með málaflokk
Landhelgisgæslunnar.
Sjá nánar frétt á bls. 14.
mm
Slökkviskjóla var fyrst prófuð hér á
landið vorið 2009 þegar slökkviliðsæf-
ing fór fram við Fíflholt á Mýrum.
Ljósm. úr safni/mm.
Engin slökkviskjóla
tiltæk í landinu