Skessuhorn


Skessuhorn - 27.04.2022, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 27.04.2022, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 20226 Eva Björg til- nefnd til breskra verðlauna AKRANES: Skáldsaga Evu Bjargar Ægisdóttur, Stelp- ur sem ljúga, er á svoköll- uðum löngum lista CWA Daggers verðlauna í Bret- landi í flokknum besta þýdda glæpasagan. Hin virtu samtök breskra glæpasagnahöfunda standa að verðlaununum. Það var árið 2019 sem Stelpur sem ljúga kom út hjá Veröld. Bók- in nefnist Girls Who Lie á ensku. Sem fyrr er það Victor- ia Cribb sem þýddi bókina eins og fyrstu bók hennar, Marr- ið í stiganum. Það eru alls tíu glæpasögur á langa listanum, en sjötíu bækur voru gjald- gengar. Aðeins tvær norræn- ar glæpasögur voru á listan- um að þessu sinni. Eva Björg hlaut í fyrra verðlaun fyrir Marrið í stiganum í flokknum „New Blood“ eða frumraun ársins. Arnaldur Indriðason er eini Íslendingurinn sem hlot- ið hefur hinn virta Gullrýt- ing sem samtökin veita, en Eva Björg er sú eina sem hef- ur hlotið hann fyrir frumraun ársins. -se Hestur sparkaði í stúlku B O R G A R F J Ö R Ð U R : Hringt var í Neyðarlínuna rétt fyrir hádegi síðasta fimmtudag og tilkynnt um að hestur hefði sparkað í andlit þriggja ára stúlku. Var hún á vappi ásamt foreldrum með hrossum og virðist eitt hrossið hafa spark- að í hana með þeim afleiðing- um að hún missti meðvit- und og rotaðist í stutta stund. Engin vitni voru að atvik- inu en lögregla kom fljótlega á staðinn og var stúlkan þá komin til meðvitundar. Var hún með bólgur í andliti og skurð en þreytt og verkjuð og var flutt á slysadeildina í Foss- vogi til aðhlynningar. -vaks Lét ófriðlega BORGARNES: Rétt eft- ir miðnætti síðasta miðviku- dag bankaði karlmaður upp á í Gistiheimilinu Bjargi, baðst gistingar og hafði í hótun- um. Fannst hann skömmu síð- ar í rútu skammt frá og reyndi lögregla að tala við mann- inn. Lét hann ófriðlega og var mjög æstur en óskaði síðan eftir gistingu. Fékk hann hana að lokum og gisti í fangaklefa lögreglunnar á Akranesi um nóttina. -vaks Ók glæfralega AKRANES: Lögreglumað- ur á gangi eftir vinnu varð vitni að glæfralegum akstri á Garðagrund þar sem ungur ökumaður ók mjög hratt fram úr kennslubifreið við gatna- mót, sem er stranglega bann- að. Fór hann fram úr bif- reiðinni og öðrum bíl og síð- an öfugu megin við umferðar- eyju við gangbraut. Málið þykir grafalvarlegt því ef ein- hver hefði verið á gangbraut- inni hefði getað orðið alvar- legt slys. -vaks Nýr húsvörður í Grundaskóla AKRANES: Lárus Guðjónsson hefur verið ráðinn í starf hús- umsjónarmanns í Grundaskóla á Akranesi. Húsvarðarstarf í Grundaskóla var lagt niður fyr- ir um áratug vegna skipulags- breytinga hjá Akraneskaupstað en nú hefur verið ákveðið að endurvekja þetta starf í skólan- um. Húsumsjónarmaður mun einnig sinna þjónustu við leik- skólana Garðasel og Akrasel. Lárus mun hefja störf í Grunda- skóla í byrjun júní. -vaks Mozart færir sig um set AKRANES: Hárnyrtistof- an Mozart mun verða lokað á Skagabraut 31, 1. maí næst- komandi en stofan hefur ver- ið þar til húsa síðastliðin 18 ár. Stefanía Sigurðardóttir, eig- andi Mozart, mun halda áfram rekstri á Dvalarheimilinu Höfða þar sem hún hefur unnið samhliða rekstri Mozart síðustu þrjú ár og verður stofan öllum opin þar. Mozart var stofnuð árið 1998 og fagnar því 25 ára afmæli á næsta ári. -vaks Á sumardaginn fyrsta var Skeifu- dagurinn að venju haldinn á Mið- -Fossum. Að þessu sinni höfðu reyndar liðið tvö ár frá síðustu hátíð, en það mátti rekja til Covid-19. Skeifudagurinn er uppskeruhátíð þeirra nemenda LbhÍ sem stunda nám í hestafræðum og þjálfun. Að þessu sinni var því einnig fagnað að skólinn hefur nú tryggt sér til eign- ar glæsilega aðstöðu að Mið-Foss- um sem nýtt hefur verið undir reið- mennsku og hestatengda kennslu undanfarin ár. Dagurinn hófst á fánareið og setningarávarpi Ragnheiðar I. Þórarinsdóttir rektors LbhÍ. Sig- ríður Bjarnadóttir brautarstjóri hestafræðibrautar flutti ávarp og tvö sýningaratriði voru frá nem- endum í hestafræði. Nemendur búfræðibrautar sýndu tamningar- tryppi sín og Randi Holaker og Guðbjartur Þór Stefánsson reið- kennarar vetrarins kynntu þau og fóru yfir starf vetrarins. All- ir nemendur í reiðmennskuáföng- um kepptu síðan í fjórgangi og var síðan riðið til úrslita annars vegar hjá nemendum hestafræðibrautar og hins vegar búfræðinemenda sem kepptu um Gunnars bikarinn. Að lokinni dagskrá var boðið til kaffis í hestamiðstöðinni og síðan ávarp- aði Helgi Eyleifur Þorvaldsson brautar stjóri búfræði samkomuna og veitti viðurkenningar ásamt því að tilkynna verðlaunahafa. Degin- um lauk svo með útdrætti í stóð- hestahappdrætti Grana. Úrslit dagsins Morgunblaðsskeifuna 2022 hlaut Helgi Valdimar Sigurðsson frá Skollagróf í Hrunamannahreppi en þetta er þriðja skeifan sem fer heim að Skollagróf þar sem bæði bróðir Helga og systir hlutu skeifuna 2019 og 2016. Foreldrar þeirra, Fjóla Helgadóttir og Sigurður Jónsson, stunduðu sömuleiðis bæði nám á Hvanneyri á sinni tíð fyrir tæpum fjórum áratugum. Skeifuna hlýtur sá nemandi sem náð hefur bestum árangri á frumtamningaprófi og í reiðmennsku III. Eiðfaxabikar hlaut Linda Bjarna- dóttir en hann er veittur fyrir bestu einkunn í bóklegum áfanga reið- mennsku III. Reiðmennsku- og ásetuverðlaun Félags tamningamanna hlaut Sig- ríður Magnea Kjartansdóttir og veitti Silvía Sigurbjörnsdóttir for- maður FT þau verðlaun. Framfaraverðlaun Reynis hlaut Gissur Gunnarsson en þau eru veitt til minningar um Reyni Aðal- steinsson tamningameistara frá Sigmundarstöðum, þeim nemanda sem sýnt hefur hvað mestan áhuga og ástundun og tekið sem mestum framförum í reiðmennsku. Gunnarsbikarinn er síðan veittur þeim sem stendur hæst í fjór- gangskeppni búfræðinema og er veittur til minningar um Gunnar Bjarnason og hlaut hann Sigríður Magnea Kjartansdóttir. Loks sigraði Ágústa Rut Har- aldsdóttir fjórgang nemenda í BS hestafræðibraut. mm Stoltir verðlaunahafar á Skeifudeginum. Hrunamaður hreppti Skeifuverðlaunin

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.