Skessuhorn


Skessuhorn - 27.04.2022, Page 7

Skessuhorn - 27.04.2022, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2022 7 Við vinnum Aðalfundur deilda Stéttarfélags Vesturlands verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl kl.19:00 í Alþýðuhúsinu Sæunnargötu 2. Fundurinn er jafnframt fundur trúnaðarráðs og samninganefndar félagsins Deildirnar eru: Iðnsveinadeild, Iðnaðar- mannvirkja- og stóriðjudeild, Matvæla – flutninga- og þjónustudeild, Deild verslunar- og skrifstofufólks og Deild starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögum. Dagskrá: 1.Kynnin á niðurstöðum úr Gallup könnun Tómas Bjarnason kynnir 2.Venjuleg aðalfundarstörf deildanna 3.Kröfugerð vegna komandi kjarasamninga rædd 4.Umboð til landssambanda – á að afhenda þau eða halda þeim heima 5.Ófriður innan ASÍ - Ályktun 6.Önnur mál Stéttarfélag Vesturlands SK ES SU H O R N 2 02 2 Samhliða sumarkomunni og batn- andi veðri færist aukið líf í smábáta- hafnirnar við landið. Víða eru menn því farnir að huga að bátum sínum og veiðarfærum. Margir halda á sjó- inn einungis til afþreyingar, en aðr- ir setja stefnuna á strandveiðar sem hefjast mánudaginn 2. maí næst- komandi. Meðfylgjandi myndir eru frá Akraneshöfn um liðna helgi. Vorblíðan lék við mannskapinn og kjöraðstæður voru til að sjósetja bátana. Kvótinn verður tíu þúsund tonn Svandís Svavarsdóttir matvælaráð- herra hefur undirritað nýja reglu- gerð um strandveiðar. Alls verða nú 10.000 tonn af þorski í strand- veiðipottinum á þessu tímabili, þar af 1.500 tonn sem skiluðu sér af skiptimörkuðum á útmánuðum eins og við greindum frá í Skessu- horni. Hlutfall strandveiða af leyfi- legum heildarafla þorsks nemur því 4,5% og hefur ekki hefur svo stór- um hluta aflans áður verið úthlutað til strandveiða. „Þessari ákvörðun er ætlað að festa strandveiðar enn betur í sessi, en í dag fá margar fjöl- skyldur hluta sinna heimilistekna frá strandveiðum. Sá afli sem er til ráðstöfunar fyrir strandveiðar hverju sinni miðast við ráðgjöf Haf- rannsóknastofnunar og ákvörðun ráðherra um leyfilegan heildarafla,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Brátt hefst því fjórtánda strand- veiðisumarið frá því strandveið- um var komið á, en strandveið- ar eru stundaðar frá maí til ágúst. Grunnhugsunin að baki strandveið- um er að stunda megi veiðar með ströndinni á sjálfbæran og ábyrgan hátt en jafnframt opna möguleika fyrir þau sem ekki hafa yfir afla- marki að ráða á að reyna fyrir sér í sjávarútvegi. mm/ Ljósm. Guðmundur St Valdimarsson. Með vorinu færist aukið líf í hafnirnar Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.