Skessuhorn


Skessuhorn - 27.04.2022, Page 8

Skessuhorn - 27.04.2022, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 20228 Datt af sexhjóli BORGARFJÖRÐUR: Á þriðjudagskvöld í liðinni viku slasaðist karlmaður á mjöðm eftir að hafa velt sexhjóli. Óhappið varð við Hraunsmúla. Var hann að aka heim að hlaði en tók of krappa beygju og missti stjórn á hjólinu. Datt hann af því og fór hjólið yfir mjöðmina á honum. Kenndi hann sér eymsla í mjöðm og hægri hand- legg og var fluttur á HVE á Akranesi. -vaks Amma ekki heima AKRANES: Gerð var leit að sex ára stúlku úr Grundaskóla á þriðju- dagsmorgun í liðinni viku, en hún hafði ekki skil- að sér í skólann og var öll lögregla ræst út til leitar. Fannst hún skömmu síðar á Garðagrund á móts við Byggðasafnið ásamt jafn- öldru sinni úr sama bekk. Þær höfðu tekið þá sam- eiginlegu ákvörðun að heimsækja ömmu annarr- ar stúlkunnar en hún var ekki heima þegar þær kíktu í heimsókn. Búið var að kalla út björgunarsveit, en nánast á sömu mínútunni komu stúlkurnar í leitirn- ar og var því útkallið dreg- ið til baka. -vaks Stafrænt umsóknarferli fyrir fjárhags- aðstoð AKRANES: Starfs- menn velferðar- og mann- réttindasviðs Akraneskaup- staðar, í samvinnu við sam- band íslenskra sveitarfé- laga, hafa undanfarnar vik- ur unnið að breytingum á umsóknarferli fjárhagsað- stoðar með það að mark- miði að einfalda ferlið fyr- ir notendur. Breytingarn- ar eru fyrstu skref- in í sameigin legri staf- rænni vegferð sveitarfé- laga í samvinnu við Staf- rænt Ísland. Markmið- ið með breytingunum er að einfalda og bæta þjón- ustu við notendur, fækka skrefum og um leið tryggja öryggi og stöðugleika við umsýslu umsókna. Sjálf- virk gagnaöflun frá Þjóð- skrá og Skattinum einfald- ar ferlið fyrir umsækjand- ann mikið og einnig felst í því mikið hagræðing fyrir starfsfólk. Mikil áhersla var lögð á að ferlið væri hann- að út frá þörfum notenda. Umsækjandi þarf aðeins að skrá sig með rafrænum skilríkjum, svara nokkrum spurningum og veita heim- ild til að sækja gögn. Öll samskipti fara í gegnum umsóknargátt á Ísland.is og er niðurstaða afgreiðslu birt þar. Frá og með apr- íl 2022 verður tekið á móti umsóknum í gegnum island.is. -vaks Hjartamagnýl dregur úr dauðs- föllum LANDIÐ: „Gamla lyfið, acetýlsalicýlsýra, sem er betur þekkt sem aspirín, magnýl, eða hjartamagnýl, virðist hafa sterk og tölfræðilega marktæk vernd- andi áhrif gegn dauðsföllum meðal þeirra sem greinast með alvarlega lungnabólgu af völd- um algengustu lungnabólgu- bakteríunnnar, sem kölluð er Streptococcus pneumoniae á fagmáli.“ Þetta segir Magnús Gottfreðsson, prófessor í smit- sjúkdómum við Háskóla Íslands og yfirlæknir á Landspítala, um niðurstöður í nýlegri rannsókn sem unnin var af vísindafólki Háskóla Íslands og Landspítala. Birtist grein í hinu virta tímariti Journal of Internal Medicine þar sem þessar niðurstöður eru dregnar fram en greinin byggist á rannsókn Kristjáns Godsk Rögnvaldssonar sem doktors- nemi við Læknadeild HÍ og læknir á Landspítala. Magn- ús Gottfreðsson er leiðbein- andi hans í verkefninu. „Þessi verndandi áhrif komu strax fram og voru raunar sterkust í bráðafasa sýkingarinnar, en þá er einmitt verulega aukin hætta á ýmiss konar fylgikvillum eins og hjartabilun og kransæða- stíflu og dánartíðnin er há. En áhrifin entust í eitt ár og lík- lega lengur sem er afar merki- legt. Þetta á við um þá sem eru að taka lyfið þegar þeir veikjast eftir að leiðrétt hefur verið fyr- ir hugsanlegum bjögum,“ segir Magnús. -mm Aflatölur fyrir Vesturland 16 .apríl. - 22. apríl Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes: 8 bátar. Heildarlöndun: 29.014 kg. Mestur afli: Ver AK: 7.071 kg í fimm löndunum. Arnarstapi: 4 bátar. Heildarlöndun: 13.205 kg. Mestur afli: Valdís ÍS: 4.119 kg í tveimur löndunum. Grundarfjörður: 3 bátar. Heildarlöndun: 31.314 kg. Mestur afli: Hringur SH: 24.716 kg í einum róðri. Ólafsvík: 16 bátar. Heildarlöndun: 250.003 kg. Mestur afli: Kristinn HU: 65.236 kg í fjórum löndunum. Rif: 12 bátar. Heildarlöndun: 136.606 kg. Mestur afli: Rifsari SH: 31.183 kg í tveimur róðrum. Stykkishólmur: 7 bátar. Heildarlöndun: 35.722 kg. Mestur afli: Kári SH: 7.732 kg í tveimur löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Hringur SH – GRU: 24.716 kg. 20. apríl. 2. Ólafur Bjarnason SH – ÓLA: 21.539 kg. 21. apríl. 3. Guðmundur Jensson SH – ÓLA: 20.964 kg. 21. apríl. 4. Kristinn HU – ÓLA: 19.795 kg. 21. apríl. 5. Rifsari SH –RIF: 17.725 kg. 22. apríl. -dóh Guðrún Hulda Pálsdóttir hefur verið ráðin nýr ritstjóri Bænda- blaðsins og tekur við af Herði Kristjánssyni 1. júní næstkomandi. Guðrún Hulda er öllum hnútum kunn á Bændablaðinu en hún hef- ur starfað þar síðastliðin sjö ár sem blaðamaður, auglýsingastjóri og umsjónarmaður Hlöðunnar. „Staða Bændablaðsins er sterk því lesendur vita að þeir geta gengið að innihaldsríkri umfjöll- un, óvæntri þekkingu og mikil- vægum upplýsingum, auk þess sem blaðið er vettvangur fyrir áhuga- verð skoðanaskipti. Ég mun halda áfram þeirri vegferð sem Hörð- ur hefur, með þvílíkri natni og eljusemi, leitt undanfarin ár. Við erum lítill en samhentur hópur sem stöndum að blaðinu og mun- um áfram miðla upplýsandi fregn- um af landbúnaði og fjölbreytt- um málefnum honum tengdum á skýran og heiðarlegan hátt,“ segir Guðrún Hulda í tilkynningu. Guðrún Hulda hefur 15 ára reynslu í fjölmiðlum. Áður en hún kom til starfa á Bændablaðinu starfaði hún hjá tímaritinu Eið- faxa sem ritstjóri og blaðamaður og þar áður hjá Morgunblaðinu. Guðrún Hulda er með BA gráðu í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og nam Umhverfis- og auðlindafræði á meistarastigi í sama skóla. mm Ný viðbygging við leikskólanna í Stykkishólmi hefur verið tekin í notkun en síðasta föstudagsmorgun mættu foreldrar með börnin sín á nýja Bakka. Að sögn leikskólastjóra var ekki annað að sjá en að börnin væru glöð með nýtt umhverfi enda búin að fylgjast grannt með fram- vindu byggingarinnar undanfarna mánuði. Fram kemur á vefsíðu Stykkis- hólmsbæjar að vegna heimsfar- aldursins hefðu verklok dregist á Bakka þar sem innréttingar og fleira skilaði sér seint úr flutningum. Enn eru minni háttar atriði sem eftir á að ganga frá innanhúss auk þess að ljúka við klæðningu hússins. Þá er einnig frágangur á lóð eftir. Viðbyggingin er 72 fermetrar og hýsir nú 13 börn en nokkur eiga eftir að bætast við hópinn og verða alls 19 börn á Bakka. Í sumar verða 92 börn á leikskólanum í Stykkis- hólmi. Aldrei hafa verið svo mörg börn í skólanum síðan hann flutti úr húsnæði St. Franciskusspítala í nýtt húsnæði við Búðanesveg. Næstkomandi föstudag, 29. apr- íl, verður opinn dagur í leikskólan- um. Þá bjóða börnin foreldrum og forráðamönnum í heimsókn á milli klukkan 14 og 16 og gefst þá kostur að skoða Bakka. vaks Vorverkin hjá Vegagerðinni eru komin í fullan gang, enda sumar- ið handan við hornið. Samkvæmt tilkynningu frá stofnuninni er unnið hörðum höndum að því að gera við holur sem hafa myndast í bundnu slitlagi á vegum víða um land. „Holur myndast þegar vatn liggur í vegum. Vatn finnur sér alltaf leið. Ef það er t.d. mjög lítil sprunga í malbiki kemst vatn þar undir og safnast fyrir. Þegar vatn frýs eykst rúmmál þess og þegar það þiðnar aftur, er malbikið upp- spennt. Ef þungur bíll ekur þar yfir og brýtur það niður getur hola myndast mjög hratt,“ segir Birkir Hrafn Jóakimsson, forstöðumaður á mannvirkjasviði Vegagerðarinn- ar. Hann segir að gert sé við holur eins fljótt og kostur er, oft í mjög erfiðum aðstæðum. „Þegar vorið kemur og aðstæður leyfa, förum við annað hvort í heilar yfirlagnir eða staðbundnar viðgerðir á stór- um eða litlum holum,“ segir Birk- ir Hrafn og bendir á að holur séu ekki séríslenskt fyrirbæri. „Við hér á Íslandi erum ekki ein um að berjast við holur þegar vor- ið kemur með sínum leysingum. Ég hef fengið fréttir frá kollegum mínum um allan heim og þetta er alls staðar. Hins vegar erum við illa sett núna eftir mjög þungan vetur,“ segir Birkir Hrafn. mm Nýja viðbygging leikskólans Bakka í Stykkishólmi. Ljósm. stykkisholmur.is Ný viðbygging við leikskólann í Stykkishólmi Sjaldan fleiri holur eftir erfiðan vetur Guðrún Hulda er nýr ritstjóri Bændablaðsins

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.