Skessuhorn - 27.04.2022, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2022 11
Hjúkrunarforstjóri á Fellsenda í eitt ár
Hjúkrunarheimilið Fellsendi vill ráða
hjúkrunarforstjóra til eins árs frá og með ágúst 2022.
Heimilið er staðsett í fallegri sveit Miðdala, um 20 km
fyrir sunnan Búðardal.
Á Fellsenda er rekið hjúkrunarheimili fyrir 27 íbúa sem
glíma við geðsjúkdóma/geðfatlanir af ýmsum toga.
Á Fellsenda ríkir góður starfsandi og heimilisbragur enda
er starfið þar framsækið og metnaðarfullt.
Krafist er íslensks hjúkrunarleyfis og framúrskarandi
stjórnunar- og samstarfshæfileika sem og hæfni til að
vinna sjálfstætt.
Hjúkrunarforstjóri hefur faglega forystu og ábyrgð á sviði
hjúkrunar og umönnunar á heimilinu.
Stjórnar faglegri þróun, rekstri og starfsmannahaldi
heimilisins í samvinnu við deildarstjóra hjúkrunar. Reynsla
af stjórnun er æskileg.
Allar nánari upplýsingar veita Helga Garðarsdóttir,
hjúkrunarforstjóri í síma 694 2386 eða helga@fellsendi.
is og Þórður Ingólfsson, formaður framkvæmdastjórnar í
síma 893 1125 eða thordur.ingolfsson@hve.is.
Umsóknir og ferilsskrár skulu sendar til
framkvæmdastjórnar á netfangið
thordur.ingolfsson@hve.is í síðasta lagi 15. maí 2022.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða umsókn sem er
eða hafna öllum.
Framkvæmdastjórn Hjúkrunarheimilisins Fellsenda
Hjúkrunarforstjóri
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarforstjóra
hjúkrunarheimilisins Fellsenda.
Fellsendi er hjúkrunarheimili fyrir 28 heimilismenn.
Húsnæði hjúkrunarheimilisins var tekið í notkun árið
2006 og er vandað að allri gerð.
Fellsendi er 20 km. fyrir sunnan Búðardal og í 130 km.
fjarlægð frá Reykjavík. Sjá nánar fellsendi.is.
Hjúkrunarforstjóri ber ábyrgð á hjúkrun, fjárhags-
legum rekstri og stjórnun að öðru leyti. Hjúkrunar-
forstjóri er ábyrgur gagnvart stjórn Fellsenda.
Leitað er að hjúkrunarfræðingi; menntun og reynsla í
geðhjúkrun er æskileg.
Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og samskiptum er
nauðsynleg.
Umsóknir, þar sem gerð er gr in fyrir menntun og star s-
ferli, berist stjórn hjúkrunarheimilisis merkt:
Ólafur K. Ólafsson, Borgarbraut 2, 340 Stykkishólmi eða
á ne fang ð oko@syslumenn.is fyrir 10. janúar 2014.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Upplýsingar veitir Ólafur K. Ólaf son, sýslumað r og
formaður stjórnar, í síma 430 4100.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
1
4
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Hjúkrunarheimilið Fellsendi, Fellsenda 371 Búðardal,
sími 434 123
Hreint ál úr íslenskri orku | nordural.is
Norðurál leitar að framsýnum og metnaðarfullum
einstaklingi, sem hefur brennandi áhuga á fræðslu
málum, til að sinna skemmtilegum verkefnum í um
hverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Fræðslustjóri er hluti af öflugu teymi á mannauðssviði.
Fræðslustjóri
Nánari upplýsingar, s.s. um menntunar- og hæfniskröfur, veita Jensína K.
Böðvars dóttir (jensina@vinnvinn.is) og Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.
is) í síma 552 1212. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem
trúnaðar mál. Starfið hentar öllum kynjum. Æskilegt er að viðkomandi hefji
störf sem fyrst. Starfsstöð er á Grundartanga, en starfsfólki bjóðast ferðir til
og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu.
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí næstkomandi.
Sótt er um á www.vinnvinn.is.
Starfssvið og viðfangsefni: Skipulag og stjórnun fræðslu og
þjálfunar, þarfagreining, gerð fræðsluáætlana, innleiðing og
eftir fylgni. Fræðslustjóri sinnir innleiðingu rafrænnar fræðslu,
stöðugum umbótum á sviði fræðslumála og veitir starfsmönnum
og stjórnendum ráðgjöf.
Jafnlaunaúttekt
PwC 2020
Framtíðin er spennandi í álframleiðslu á Íslandi og mun fram-
þróun grænnar álframleiðslu hafa raunveruleg áhrif á útblástur
gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu.
Miðvikudaginn 20. apríl gáfu nokk-
ur félagasamtök Heilsugæslunni í
Búðardal og á Reykhólum ómtæki
sem hægt er að nota í bráðatilfell-
um, en einnig á stöðinni til aðstoð-
ar við greiningar á heilsugæslunni
sjálfri. Tækið hentar til að skoða
á hraðan hátt vandamál í lungum,
gallsteina, skoða blöðrurúmmál
og til að finna æðar, sem og til að
sjá púls í endurlífgun. Það kemur
ekki í stað stærri ómtækja, sem geta
skoðað nákvæmara og stærra svæði,
þannig að enn sem áður þarf að
senda sjúklinga í flestar ómskoðan-
ir annað, en tækið er engu að síður
góð viðbót við þau greiningartæki
sem nauðsynleg eru á heilsugæslu-
stöð.
Þórður Ingólfsson heimilis-
læknir tók við gjöfinni og sýndi
svo í framhaldinu hvernig tækið
virkar á handlegg eins af bráðalið-
um heilsugæslustöðvarinnar. Tæk-
ið sjálft er á stærð við farsíma og
sendir gögn í spjaldtölvu sem sýnir
ómunina. Það er einkar nett og tek-
ur ekki mikið pláss, sem gerir það
að verkum að það hentar einstak-
lega vel til bráðanotkunar.
Kvenfélagið Fjólan, Kven-
félagið Katla, Handverksfélag-
ið Assa, Lionsklúbbur Reykhóla
og Lionsklúbbur Búðardals færðu
heilsugæslunni gjöfina og voru full-
trúar flestra félaganna viðstaddir
afhendingu.
bj
Gáfu heilsugæslunni í Búðardal og á
Reykhólum ómtæki til bráðanotkunar
Fulltrúar félagasamtakanna sem gáfu tækið stilltu sér upp við nýja sjúkrabílinn í
tilefni dagsins. Á myndinni eru: Sveinn Ragnarsson, Andrea Björnsdóttir, Berglind
Vésteinsdóttir, Steinunn Lilja Ólafsdóttir, Erna K. Hjaltadóttir, Þórður Ingólfsson,
Jón Egill Jónsson, Guðmundur Ólafsson, Ingvar Samúelsson og Guðmundur Freyr
Geirsson. Á myndina vantar fulltrúa Kvenfélagsins Kötlu.
Þórður prófaði ómtækið á handlegg
bráðaliða heilsugæslustöðvarinnar.
Hann reyndist vera með bæði bláæðar
og slagæðar!
Ingólfur sýnir hvernig tækið er notað
og hversu nett það er.