Skessuhorn - 27.04.2022, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 202212
Á fundi atvinnu- og nýsköp-
unarnefndar Stykkishólmsbæjar í
byrjun apríl var tekin fyrir ósk fyrir-
tækisins Asco Harvester ehf. um
lóð að Nesvegi 22a í bænum. Asco
Harvester var stofnað af systkinun-
um Önnu Ólöfu, Ingvari Arndal
og Ómari Arndal Kristjánsbörn-
um. Það framleiðir sjávarsláttuvélar
sem slá sjávargróður og geta hreins-
að rusl og annan úrgang sem hleðst
upp á viðkvæmum stöðum. Fyrsti
sláttupramminn frá Asco Harvester
var sjósettur í Stykkishólmi sumarið
2017 og fyrirtækið hlaut m.a. frum-
kvöðlaverðlaun SSV sama ár.
Beiðni fyrirtækisins til atvinnu-
og nýsköpunarnefndar nú snýst um
að fá lóð til að byggja aðstöðu til
vinnslu, rannsókna og kynninga á
framleiðslu þörunga, en einnig felst
í henni ósk um samstarf um atvinnu-
uppbyggingu í Stykkishólmi. Vinna
er í gangi varðandi húsnæðið sem
verður um 1000 fermetrar. Lóðin
stendur auð og hentar vel til þessar-
ar starfsemi. Fyrir hugaður er íbúa-
fundur þar sem fyrirtækið kynnir
nánar áform sín. Nefndin tók vel í
erindið og lýsti í fundargerð ánægju
með áhuga Asco Harvester ehf. á að
efla og auka fjölbreytni atvinnulífs
á staðnum.
Að sögn Önnu Ólafar fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins tók það
nýlega upp samstarf við Sæfell sem
leitt er af bræðrunum Gunnlaugi
og Halldóri Árnasonum. Einnig
var Sigurður Pétursson fenginn til
liðs við reksturinn sem hluthafi og
stjórnarformaður, en hann stofnaði
og var framkvæmdastjóri fiskeldis-
fyrirtækisins Arctic Fish á Vest-
fjörðum. Hún segir því sterkan hóp
með víðtæka reynslu að baki fyrir-
tækinu og það eigi eftir að reynast
því vel.
gj
Keppni sem nefnist Upptaktur-
inn eru tónsköpunarverðlaun barna
og ungmenna sem hér á landi hef-
ur verið haldin frá 2012 í samstarfi
Hörpunnar, Barnamenningarhá-
tíðar, RÚV og Listaháskóla Íslands.
Þar fær ungt fólk, með brennandi
áhuga á tónlist og tónlistarsköp-
un, tækifæri til að senda tónsmíð-
ar eða drög að þeim inn til keppni
og vinna markvisst úr hugmynd-
um sínum með fulltingi listnem-
enda og listamanna. Að þessu sinni
voru 65 lög eða tónverk send inn í
keppnina, en fjórtán voru valin til
að verða útsett til flutnings hljóm-
sveitar. Afrakstur af þeirri keppni
mátti síðan sjá á tónleikum Upp-
taktsins sem fram fóru í Hörpu í
Reykjavík 5. apríl síðastliðinn. Þar
léku atvinnuhljóðfæraleikarar tón-
verkin sem valin höfðu verið. Með-
al þeirra sem náðu áfram í keppn-
inni í ár var fimmtán ára piltur úr
Borgarnesi, Ágúst Davíð Steinars-
son. Hann sendi til keppninnar
lag sem hann nefnir Vals í C-moll.
Hann er jafnframt fyrsti nemandi
Tónlistarskóla Borgarfjarðar sem
nær þetta langt í keppninni. Blaða-
maður Skessuhorns hitti þenn-
an unga og hæfileikaríka tónlistar-
mann að máli.
Stærðfræðin legið
vel fyrir
Ágúst Davíð er yngstur í röð fimm
systkina og býr ásamt móður sinni
Írisi Júlíu Ármannsdóttur í Bjargs-
landinu í Borgarnesi. Í vor útskrif-
ast hann úr 10. bekk Grunnskól-
ans í Borgarnesi. En hefur hann
tekið ákvörðun um framhaldið,
næstu skref í námi? „Ég er ekki
alveg búinn að ákveða hvað ég geri
í haust. Ég er á línunni milli þess
að sækja um á náttúrufræðibraut í
Menntaskóla Borgarfjarðar, og nýta
þekkingu mína t.d. í stærðfræði og
efnafræði, eða sækja um í Mennta-
skólanum í Tónlist en sá skóli er
í Reykjavík,“ segir Ágúst Davíð.
Stærðfræðin hefur alla tíð legið
vel fyrir honum og vann hann t.d.
til verðlauna í Stærðfræðikeppni
grunnskólanna á Vesturlandi þegar
keppnin var síðast haldin í FVA.
Þá varð hann í öðru sæti nemenda
í 8. bekk, en annar Borgnesingur
vermdi þá fyrsta sætið, en nemend-
ur úr Borgarnesi hafa jafnan verið
öflugir í stærðfræði í þeirri keppni.
Spilar fyrir
aðra nemendur
Ágúst Davíð segist hafa byrjað
að læra á píanó í Tónlistarskóla
Borgar fjarðar þegar hann var átta
ára. Kennararnir hans hafa m.a.
verið þær Jónína Erna Arnardótt-
ir, Zsuzsanna Budai og Birna Þor-
steinsdóttir sem leiðbeinir honum
nú. Nú stefnir hann á að ljúka mið-
stigi næsta haust en slíkur áfangi
er metinn til eininga fyrir stúd-
entspróf. „Það er búið að vera mjög
gaman að læra á píanó og ég ætla
að halda því námi áfram. Það hef-
ur stundum verið sagt að hæfileikar
í tónlist og stærðfræði fari saman.
Ég held að það eigi við mig,“ segir
hann. Tónlistin er helsta áhugamál
Ágústs Davíðs. Til marks um það
hefur hann leyft skólafélögum sín-
um í Grunnskólanum í Borgarnesi
að njóta. „Ég er yfirleitt fljótur að
borða í hádegishléinu í skólanum
og eftir það gríp ég oft í píanóið
og spila fyrir krakkana í matsaln-
um. Það eru aðallega nemendur
á yngsta stigi sem heyra þegar ég
spila, en þau eru í mat á eftir okk-
ur á elsta stiginu.“ Aðspurður um
hvað hann spili segir hann það vera
allskonar lög, klassísk og önnur.
Missti af sjálfri
uppskeruhátíðinni
Verkið sem Ágúst Davíð sendi í
Upptakt heitir eins og áður segir
Vals í C-moll. Hann segist áður hafa
verið búinn að semja annað lag. Þá
hefur hann einnig tekið þátt í Nót-
unni, tónlistarkeppni á Vesturlandi,
sem fór fram í Stykkishólmi í mars.
„Svo var ég að semja eitthvað meira
þegar ég var yngri og sem nem-
andi í tónlistarskólanum. Það var
erfiðara, en þá kunni ég enga tón-
fræði.“ Aðspurður segir hann að
það hafi verið gaman að heyra verk
eftir sig flutt af hljómsveit í Hörp-
unni. „Ég reyndar missti sjálfur
af viðburðinum í Hörpu, var með
flensu og komst ekki. Sigfríður
Björnsdóttir skólastjóri tónlistar-
skólans og mamma fóru fyrir mína
hönd og tóku við viðurkenningu og
verðlaunum. Sigfríður hefur einnig
verið mjög dugleg að hjálpa mér að
komast suður. Eftir að lagið hafði
komist áfram í keppninni fékk ég
aðstoð nemenda Listaháskólans til
að útsetja það fyrir hljómsveit. Það
var mjög skemmtilegt og fróðlegt,“
segir Ágúst.
Fram kemur í spjalli okkar að
Ágúst Davíð hafi tekið sig á hvað
hreyfingu og mataræði varðar. „Ég
var allt of feitur sem krakki og ákvað
að gera eitthvað í því. Ég fór því að
ganga í klukkutíma alla daga og hef
þannig smám saman náð að losna
við aukakílóin. Ég mæli svo sannar-
lega með því að ungt fólk hreyfi sig
reglulega og mikið, fari út að ganga
hvernig sem veðrið er. Það hreinsar
og endurnærir einnig sálina að fara
reglulega í góðan göngutúr,“ segir
Ágúst Davíð að endingu.
mm
Fyrsti þangsláttupramminn frá
Asco Harvester, Sigri, var sjósettur
við hátíðlega athöfn í Stykkis-
hólmi sumarið 2017.
Ljósm. úr safni.
Asco Harvester sækir um lóð í Stykkishólmi
Þangskurðarprammi frá Asco Harvester. Ljósm. aðsend.
Þangskurðarvélin prófuð. Ljósm. aðsend.
Ungur Borgnesingur komst áfram
í tónlistarkeppni Upptakts
Nú stendur valið um náttúrufræðibraut í MB eða Menntaskólans í Tónlist
Ágúst Davíð framan við vegginn hjá N1 í Borgarnesi, en hann tók þátt í að mála
hann ásamt fleiri ungmennum í unglingavinnunni.
Ágúst Davíð Steinarsson tónskáld og nemandi í 10. bekk Grunnskólans í Borg-
arnesi. Hér framan við Tónlistarskóla Borgarfjarðar.