Skessuhorn - 27.04.2022, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 202216
Sumri fagnað víða um Vesturland
Fjölskyldumessa í samstarfi við Skátafélag Akraness var í Akraneskirkju fyrsta
sumardag. Að sögn Þóru Bjargar Sigurðardóttur prests hófst dagskráin með
skrúðgöngu frá Tónlistarskólanum og að kirkjunni. Þar var stutt fjölskyldustund
og mikið sungið. Hoppukastali og pylsur voru í boði á Bjargarsteinslóðinni við
Vinaminni. Á þriðja hundrað gestir mættu og var mikil og góð hátíðarstemning,
að sögn sr. Þóru Bjargar. Ljósm. Anna Kristjánsdóttir.
Hestamenn í Dreyra á Akranesi hafa um árabil haft fyrir
venju að fara í Langasandsreið á Sumardaginn fyrsta.
Komið er við á Dvalarheimilinu Höfða áður en haldið er á
sandinn. Ljósm. mm.
Ungar stúlku fá pylsu í partíi í Skallagrímsgarði. Ljósm. mm.
Þétt setinn bekkurinn í Akraneskirkju þegar fjölskyldumessa var haldin í samstarfi við skátana.
Ljósm. Garða- og Saurbæjarprestakall.
Sumardagurinn fyrsti var sólríkur og fagur í Grundarfirði. Samstaða L-listinn bauð þá íbúum Grundarfjarðar upp á grillaðar
pylsur við Sögumiðstöðina og var þó nokkur umferð af svöngum vegfarendum sem gæddu sér á dýrindis pylsum og nutu
veðurblíðunnar. Loftur Árni Björgvinsson er hér að kokka fram íturvaxnar sápukúlur sem vöktu mikla lukku. Ljósm. tfk.
Þessi ungi herramaður framleiddi mikið magn af sápukúlum með þar til gerðum
spaða í Grundarfirði. Ljósm. tfk.
Í Stykkishólmi er ferðaþjónustan farin að taka við sér. Hafnarvagninn Fish &
chips er kominn á sinn stað við höfnina og mikið líf er á veitingastöðum. Að sögn
Eduard Guerrero Adorna móttökustjóra á Fosshótel Stykkishólmi eru bókanir
þokkalegar fyrir maímánuð og mjög góðar fyrir sumarið. Allar líkur eru því á að
greinin sé að byrja að jafna sig eftir erfitt tímabil vegna faraldursins. Hafnarvagn-
inn Fish and Chips er opinn yfir sumartímann og er í eigu Guðmundar Rúnars
Hallgerðarsonar. Ljósm. sá
Þessar fjórar dugmiklu vinkonur voru búnar að stilla sér upp
fyrir framan Kjörbúðina í Grundarfirði með allskyns freist-
andi góss til sölu á sumardaginn fyrsta. Þær voru að safna
fé til styrktar SOS barnaþorpum og gekk söfnunin ágætlega
hjá þessum upprennandi sölukonum. F.v. Hrafney Dóra,
Ellen Alexandra, Emilía Rós og Ísabella Ósk. Ljósm. tfk.
Heiðdís Björk Jónsdóttir grillaði pylsur í gríð og erg í
Grundarfirði. Ljósm. tfk.
Félagarnir Birgir Pálsson og Sæmundur Sigmundsson slaka
á í góða veðrinu fyrsta sumardag. Ljósm. mm.