Skessuhorn - 27.04.2022, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2022 19
1.maí 2022 hátíðar- og
baráttufundur í
Dalabúð, Búðardal kl.14:30
Dagskrá:
Ræða dagsins
Skemmtiatriði;
Elísabet Orlslev sönkona
Tónlistaskóli Auðarskóla
Kaffiveitingar að lokinni dagskrá
Drekkhlaðið borð af hnallþórum og fleira góðgæti að
hætti Katrínar og vaskra skáta á leið til Danmerkur
Kjölur og Sameyki, stéttarfélög í almannaþjónustu
Stéttarfélag Vesturlands
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
- MINNINGARTÓNLEIKAR AÐ REYKHOLTI -
1. maí kl. 16:00.
Stuðmaðurinn knái frá Hvítárbakka,
Jakob Frímann Magnússon,
kemur fram ásamt völdum gestum, ytur
sín þekktustu lög og segir frá tilurð þeirra
eins og honum einum er lagið.
Félagar leikdeildar Skallagríms ytja lag úr sýningunni
Slá í gegn í minningu Árna Guðjónssonar.
Allur ágóði fer til styrktar Minningarsjóðs Heimis Klemenzsonar
og barna Árna Guðjónssonar.
Komum saman að Reykholtkirkju og eigum saman notalega
stund á fallegum stað í minningu góðra borg rskra drengja.
Miðaverð kr. 4.000
Minnum einnig á reikninga:
Minningarsjóður Heimis: 326-22-1916 kt: 5001190980
Styrktarstjóður Árna: 370-22-43542. Kt 2908582409
Sö
kk
ól
fu
r e
hf
. -
d
ot
.is
Aðalfundur
Stéttarfélags Vesturlands verður í Alþýðuhúsinu
Sæunnargötu 2a miðvikudaginn 4. maí kl. 19:00
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
félagslögum
2. Önnur mál
Þrír heppnir félagar úr hópi fundarmanna
fá óvæntan glaðning.
Góðar veitingar í boði.
Félagar: Sýnum samstöðu, fjölmennum
á aðalfundinn!
Stjórn Stéttarfélags Vesturlands S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
2
Dagur í lífi...
Nafn: Vésteinn Tryggvason
Fjölskylduhagir/búseta: Ein-
hleypur og barnlaus.
Starfsheiti/fyrirtæki: Öryggis- og
gæðastjóri hjá Þörungaverksmiðj-
unni.
Áhugamál: Ferðalög, matargerð og
tónlist.
Dagurinn: Þriðjudagurinn 12. apr-
íl 2022.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú gerð-
ir? Vaknaði klukkan 6:50 og slökkti
á podcastinu sem var búið að vera í
spilun alla nóttina.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Borða vanalega ekki morgunmat en
stalst samt í litla sneið af gulrótar-
köku þegar ég var kominn í vinnuna.
Hvenær fórstu til vinnu og hvern-
ig? Keyrði til vinnu klukkan 7:20.
Fyrstu verk í vinnunni? Halda
morgunfund með starfsfólki og
skoða tölvupóstinn.
Hvað varstu að gera klukkan 10?
Fylgjast með löndun úr skipinu okk-
ar Gretti.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Fór
út á hráefnisplan og tíndi ferskan
krækling úr þarahrúgunni.
Hvað varstu að gera klukkan 14?
Vinna uppi á skrifstofu við skýrslu-
gerð og fleira.
Hvenær hætt og það síðasta sem
þú gerðir í vinnunni? Rétt fyrir
fimm tók ég einn hring niðri í verk-
smiðju og lét mig svo hverfa.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Fór
í sund. Fer alltaf í sund eftir vinnu
þá daga sem er opið í lauginni. Er
vanalega fyrstur ofan í og næ þannig
nokkrum mínútum í friði og ró,
fljótandi eins og rekaviður í djúpu
lauginni.
Hvað var í kvöldmat og hver eld-
aði? Ég eldaði mér kræklingapasta
með kræklingnum sem ég tíndi í
vinnunni.
Hvernig var kvöldið? Rólegt og
fallegt eins og flest kvöld í sveitinni.
Hvenær fórstu að sofa? Leið út af
upp úr klukkan 11.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að hátta?
Stillti vekjaraklukkuna á hæfilegan
tíma.
Hvað stendur upp úr eftir daginn?
Hvað það var fallegt veður og hvað
ég gat verið mikið úti í sólinni.
Öryggis- og gæðastjóra á Reykhólum