Skessuhorn - 27.04.2022, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 202224
Verkalýðsfélag Akraness, Sameyki, VR, FIT,
Kennarasamband Íslands og Sjúkraliðafélag Íslands
standa fyrir dagskrá á hátíðar- og baráttudegi
verkafólks 1.maí 2022
1. MAÍ
AKRANESI!
Félagsmenn fjölmennið! 1. maí-nefndin
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Safnast verður saman við skrifstofu VLFA að Þjóðbraut 1,
kl: 14:00 og genginn hringur að bæjarskrifstofum Akraness þar
sem hátíðardagskrá hefst í sal eldri borgara á Akranesi
Kvennakórinn Ymur syngur nokkur lög
Kaffi og kökur - Fjöldasöngur - Ræðuhöld
Bíósýningar fyrir börnin eru kl 13:00 og 16:00 í Bíóhöllinni.
ATH ! foreldrar þurfa að nálgast rafrænan frímiða á vlfa.is
(ekki er hægt að hleypa ótakmarkað inn á sýningarnar vegna brunavarna og fl.)
Við vinnum
Sendum félagsmönnum okkar og landsmönnum öllum
baráttukveðjur í tilefni dagsins
Anna Bjarnadóttir íþróttafræðing-
ur hefur undanfarin ár unnið að
bættri lýðheilsu á Akranesi fyrir
Akraneskaupstað. Til dæmis hef-
ur hún staðið fyrir göngum tvisvar
í viku fyrir 60 ára og eldri sem tek-
ið hefur verið eftir þar í bæ. Hópur-
inn fer frá N1 klukkan 9 árdegis á
mánudögum og á miðvikudög-
um klukkan 10. Anna hefur ástríðu
fyrir hreyfingu og stundar reglu-
lega göngu hér og þar um náttúru
Íslands. Reynir oftast að fara um á
hjóli eða gangandi á milli staða á
Akranesi.
Anna er Vestfirðingur, frá Suður-
eyri við Súgandafjörð. Þar ólst hún
upp við að stunda íþróttir og hreyf-
ingu og hefur sá áhugi fylgt henni
allar götur síðan. Auk þess að starfa
sem íþróttakennari við FVA hefur
hún verið í starfi hjá Akraneskaup-
stað með hreyfingu fyrir 67+. Í vet-
ur hefur hún komið inn í félags-
starf bæjarins og verið með æfingar
þar auk þess að sjá um leikfimi hjá
Félagi eldri borgara á Akranesi og
göngurnar fyrir 60 ára og eldri.
„Gönguferðirnar eru á mánu-
dögum og miðvikudögum. Á
Göngur fyrir 60 ára og eldri á Akranesi
mánudögum er gengið rösklega
og rólegri göngur á miðvikudög-
um. Yfirleitt erum við í kringum
15 sem mætum í göngurnar en
oft fleiri. Göngurnar eru yfirleitt
í kringum 70-80 mínútur á mánu-
dögum en um klukkutíma á mið-
vikudögum. Oft gerum við æfingar
í gönguferðunum. Til að brjóta upp
hversdagsleikann endum við stund-
um á því að koma við í Kallabakaríi
að göngu lokinni. Upphaflega var
það þannig að það var leikfimi yfir
vetrarmánuðina en svo ákvað ég
að prófa eitt vorið að bjóða upp á
göngur eftir að leikfimin hætti. Það
tókst svona vel að við höfum haldið
því áfram síðan 2018 að mig minn-
ir,“ segir Anna.
„Ég byrjaði þannig að ég bauð
upp á áskorunargöngur. Þá tók-
um við þrjár göngur í viku sem
byrjuðu klukkan 8 á morgnana og
gengum 10-15 km í hverri göngu.
Það var virkilega vel mætt í þess-
ar göngur. Í ágúst 2020 gengum
við í kringum Akrafjall sem var
mjög skemmtilegt. Við ákváðum
að láta Covid ekki stoppa okkur
og héldum áfram að ganga þrátt
fyrir ástandið og auðvitað var það
upp og niður hvernig mætingin var
þegar faraldurinn stóð sem hæst, en
við gengum okkur í gegnum hann
ef svo má segja, og erum enn að,“
segir Anna að endingu.
se
Við Sólmundarhöfða.
Gönguhópurinn við Höfða.
Gönguhópurinn í Kallabakaríi að einni göngu lokinni.
Gönguhópurinn að loknum plokkdegi.